Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Page 13
ÚTVARPSTÍÐTNDI
421
að það voru þrennir eða fernir kost-
ir og ókostir, sem allir, sem ég
spurði, voru sammála um. Kostirnir
voru hitaveitan og nýju hósin, inn-
siglingin til Reykjavíkur og höfnin
... og vel klæddu stúlkurnar . . .
ókostirnir voru hótelskorturinn, —
vöntun á góðum skemmtistöðum og
drykkjuskapurinn í bænum.
Einn þeirra spurðu — Reykvík-
ingur, sem gegnum vinnu sína um-
gengst mikið samborgarana — svar-
aði á þessa leið: Fagrir litir á fjöll-
unum og klæðnaður kvenfólksins,
glókollarnir á barnaleikvöllunum og
blómin á Austurvelli heilla mig mest
á sumrin ... Meginókostir okkar
mæta bæjar eru drykkjuskapur unga
fólksins og það, að barnafjölskyldur
skuli þurfa að búa í bröggum ... Og
ung skrifstofustúlka tekur í sama
streng. Hún talar í svari sínu um
fallega innsiglingu og Esjuna og
Tjörnina, en bætir svo við, að það
sem verst sé við borgina hennar sé
— eins og hún orðar það — „slow-
foxtrott bílanna á rúntinum á kvöld-
in ... og drykkjuskapur á böllum. ..
Annars get ég ekki stillt mig um
að lesa- hér svar fjögurra ungra og
blómlegra stúlkna, sem skrifuðu eft-
irfarandi um kosti og ókosti höfuð-
staðarins: Við viljum fá skemmtileg
veitingahús (restaurant) með dá-
samlegum sýningum, milli þess sem
góð hljómsveit spilar — stað, sem
maður getur komið inn á á tímabil-
inu átta til tólf ... Einnig viljum
við fá meiri listagarða, með háum
trjám og fallegum gosbrunnum, þar
sem hægt er að hafa mikið ... af
rómó ...
Þar sem hægt er að hafa mikið af
rómó. — Reykjavík er orðin 50.000
manna borg, og hér eru f jórar ungar
stúlkur, sem vilja fá listigarða og
gosbrunna, þar sem hægt sé að hafa
mikið af rómantík. Og þó er Reykja-
vík í rauninni öll orðin meira en lít-
ið rómantísk, því hún er öskubusk-
an, sem á örfáum árum hefur oln-
bogað sig inn á milli þeirra höfuð-
staða veraldarinnar, sem „komnir
eru á kortið". Hún er orðin svo
I
romantísk, að erlendir blaða- og út-
varpsmenn sækja hana heim, til að
skýra höggdofa samlöndum sínum
frá því, að Reykvíkingar eigi svo
mikið af bílum, að þeir fari með þá
eins og óvitar með leikföng. Hún er
orðin svo stór, að voldugar þjóðir
senda hingað menn sína til að vernda
rétt þegna sinna og fylgjast með
málefnum Islendinga ... Því Reykja-
vík ER orðin stórborg, og í henni má
finna allar blessanir og bölvanir
stórborgarinnar ... og sjálfsagt einn
eða tvo hluti til viðbótar.
Rafgeymavinnustofa vor f
Oaröastrœti 2, þriðju hœð.
annast hleðslu og viðgerðir
á viðtaekjarafgeymum.
Viðtækjaverzlun Ríkisins