Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 16

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 16
424 ÚTV ARPSTtÐTNDI ATHUGASEMD. Þetta er í samræmi við það, sem sagt er í forystugreininni. Fleiri bréf hafa borizt um þetta, en þetta bréf túlkar sjónarmið þeirra allra. NOKKRAR HUGLEIÐINGAR UM RIKISÚTVARPIÐ. SigurSur HciSberg skrifitr: „I 13. tbl. Útvarpstíðinda er grein, sem nefnist: „Raddir kunnra manna. Lýsingar merkra atburða geymast til framtíðarinnar.“ Þegar ég las þessa grein, fannst mér ég mega til að skrifa nokkrar línur í Útvarpstíðindin til að þakka þessum mönnum fyrir þessar framkvæmdir. Mér finnst ekki mega minna vera, en einn af samtíðarmönnunum láti til sin heyra. Ég er enginn spámaður, en þó held ég, að herra Jónasar Þorbergssonar, útvarps- stjóra verði minnst eftir nokkur hundruð ár sem merks brautryðjanda fyrir þessar framlcvæmdir. Mér finnst, að herra Jónasi Þorbergs- syni hafi farnast mjög vel sem útvarps- stjóra, eftir að hann hætti að skipta sér af stjórnmálum. Áður stóðu sífeldir stormar um hann og eru þeir nauðsyn- legir til þess að halda manninum vak- andi, en þeir mega ekki vera svo kaldir, að það sé ekki metið, sem vel er gert. Enn man ég þegar herra Einar H. Kvar- an kom til okkar eitt laugardaagskvöld í krnnaraskólann, þá orðinn gamall, ár- ið 1924 eða 1925 og las fvrir okkur eina af smásögum sfnum, Vistaskiptin, hve snilldarlega hann fór með það efni. Mikið þætti mér vænt um að eiga þann upplestur á plötu, en þess er nú ekki kostur. Mér er alltaf vel við gramma- fóninn, siðan ég las sögu, fyrir ca. 20 árum, sem hét „Höllin f Karpatafjöll- unum.“ Ungur maður missir unnustu sfna, sem hann elskaði. Það gera lík- lega allir unnustar fyrst í stað. Þessi stúlka var snilldar söngkona, og áður en hún dó, fékk unnustinn hana til þess' að syngja á plötu. Þessar plötur spilaði hann svo sér til yndis eftir dauða henn- ar. Fólkið hélt að stúlkan væri aftur- gengin og í höllinni væri magnaður Söfjuleg skáldsaga. Jón Gerreksson Jón Gerreksson Skálholtsbiskup er kunnur úr sögunni. Jón Björnsson skáld hefur skrifað mikla sögulega skáldsögu um þennan mann. Hún kom fyrst út í Danmörku 1946 og vakti mjög mikla athygli á Norður- löndum. Mun hún koma út á sænsku á þessu ári. Helgafell hefur nú gefið þessa merku bók út og kemur hún á bókamarkað- inn innan skamms. Sagan er ákaflega viðburðarík og „spenn- andi“. Hún lýsir þjóðháttum hér á landi í tíð Jóns Gerrekssonar, átökunum milli alþýðu og höfð- ingja og endalokum biskups, en honum var, sem kunnugt er, drekkt í Brúará. Jón Björnsson er ákaflega vand- virkur rithöfundur. Hann þræð- ir söguna af samvizkusemi, en gæðir hana jafnframt skáldlegri innsýn sinni. Jón Gerreksson verður bezta jólagjöfin fyrir alla þá, sem unna íslenzkum sögum. Helgafell Garöastræti 17. Skrifið eftir bókinni, og ykkur mun verða send hún um hæl gegn póstkröfu. — Hún kostar 60—80 krónur.

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.