Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 20

Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Blaðsíða 20
428 ÚTVARPSTÍÐINDI lega hjarðræningja af værum blundi. Hið mikla kvöld rann upp eins og vænta mátti, heiðríkt og bjart af tungli. Pallur hafði verið gerður í þægilegu og hagstæðu tré, og þar sátu þær í hnipri, frú Packletide og hin launaða lagskona hennar, ungfrú Mebbin. Geit, sem jarmað gat svo einkar þrálátlega, að ætla mætti með tiltölulega mikilli vissu, að jafn- vel hálfheyrnarlaust tígrisdýr heyrði til hennar í aftankyrrðinni, var tjóðruð í hæfilegri fjarlægð. Með ágætis riffil og mikla þolinmæði í veganesti beið svo veiðikonan komu bráðarinnar. „Ég geri ráð fyrir, að við stofn- um okkur í allmikla hættu?“ sagði ungfrú Mebbin. Hún var ekki beinlínis smeik við villidýrið, en henni var sjúklega annt um að gegna ekki agnarögn meiri skylduverkum, en laun h ennar stóðu til. „Bull,“ sagði frú Packletide. „Þetta er fjörgamalt tígrisdýr. Það gæti ekki stokkið hingað upp, jafn- vel þótt það langaði til þess.“ Ef það er gamalt tígrisdýr, finnst mér, að þér ættuð að fá það ódýr- ara. Þúsund rupees eru miklir pen- ingar.“ Viðhorf Louisu Mebbin til pen- inga yfirleitt, — það gilti einu, hvað þeir hétu eða voru, — líktist lang- mest umhyggju elztu systur. Það var hetjusamri meðalgöngu hennar að þakka, að margri rúblunni hafði ver- ið bjargað frá því að falla í botn- lausa þjórféhítina í gistihúsinum í Moskva, og frankar og centímur loddu við hana ósjálfrátt, þótt rokið hefðu út í veður og vind úr hönd- um óhlífnari manna. Heilabrot henn- ar um lækkunina á markaðsverði aflóga tígrisdýrs fór út um þúfur við það, að dýrið sjálft kom á vett- vang. Jafnskjótt og það hafði fest sjónir á tjóöraðri geitinni, lagðist það á magann, augsýnilega miklu fremur í því skyni að fá sér örlitla hvíld, áður en það leggði til atlögu, en því dytti í hug að hremma bráð sína úr launsátri. „Ég held, að það sé veikt,“ sagði Louisa Mebbin á máli Hindúa, og svo var sú setning ætluð höfóingja þorpsins, sem lá 1 leyni uppi í tró' þar í nánd. „Þei, þei!“ sagði frú Packletide, og í sömu andránni tók tígurinn að röíta í áttina til íórnarlambsins. „Núna, núna!“ hrópaði ungfrú Mebbin æst. „Ef það snertir ekki geitina, þurfum við ekki að borga hana.“ (Agnið var ekki innihaldið). Það kvað við hár hvellur, og hið stórvaxna gulmórauða dýr hrökk til hliðar, en valt svo út af og lá dauða- kyrrt. Á einu vetfangi hafði hópur innfæddra safnazt saman á staðn- um með mildu írafári, og óp þeirra báru hin góðu tíðindi skjótt til þorps- ins, þar sem tekið var undir með sigrihrósandi bumbuslætti. Og sigur- gleði þeirra og fögnuður enduróm- aði feginslega í hjarta frú Packle- tide. Hádegisverðarboðið í Curzon- stræti virtist þegar óendanlega miklu nær. Það var Louise Mebbin, sem beindi athygli þeirra og hennar að þeirri staðreynd, að geitin lægi í dauða- teygjunum eftir banvænt byssuskot, þar sem aftur á móti engin merki hinna helvænu skeyta riffilsins var

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.