Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Qupperneq 24
432
ÚTVARPSTIÐINDI
LITIÐ LJóÐABRÉF
til ólínu skaldkonu sendir Helgi Hjörvar.
(Svar).
„Hrngur allt á eina sveif,
um ástir vart ég hirði.
En sú sem fyrst mitt hjarta hreif,
hún var úr Skagafirði.
Dregur föl um liólm og höf,
horfum við á það bæði.
Yfir hennar grónu gröf
gerirðu til mín kvæði.
Valt mun traust á veika sál,
vil ég ei um það rita.
Sjónin verður sumum tál.
Sælla er að trúa en vita“.
MORGUNVÍSA.
Jón frá Hvoli sendir eftirfarandi þrjár
stökur:
„Morgunstundin mær og hlý
mér fær gleði hlýja.
Blessuð sólin brosir í
bili millum skýja“.
SÓL OG SUNNANVINDUR.
„Ofantinda urðar mið
út um rinda valla,
sunnanvindinn saman við
sólarlindir falla".
ADEILUVISA.
„Eftir því sem andinn manns
öðlast þekking meiri,
verða til af völdum hans
vítisáliöld fleiri“.
ÓKUNNUR HÖFUNDUR.
Einn af lesendunum sendir eftirfar-
andi stökur og ségir höfund ókunnan.
Þekkið þið höfundinn?
„Hvar skal byggja? Hvernig fer?
Hvar á að reka að landi?
Hver inun tryggja hag minn hér?
Hvað á að liggja fyrir mér?
l>að um varðar þig ei grand.
Þér á að nægja vonin.
Guð ákvarðar láð og land,
lán, búgarðinn, auð og stand“.
Brunabótafélag
íslands
vátryggir allt lausafé
(nema verzlunarbirgðir).
Upplýsingar í aðalskrifstofu,
Alþýðuhúsinu (sími 4915) og
hjá umboðsmönnum, sem eru í
hverjum hreppi og kaupstað.
Tígrisdýri^ ...
Framh. af bls. 427.
iljunum vekja undrun aðdáenda
hennar.
„Það er undur, hvernig Louisa gat
þetta," verður flestum að orði.
Frú Packletide fer ekki framar
á rándýraveiðar.
„Aukakostnaðurinn er svo gífur-
legur," segir hún forvitnum vinum
sínum í trúnaði.
ILA íslenzkaöi,