Útvarpstíðindi - 13.09.1948, Blaðsíða 6
318
ÚTVARPSTÍÐINDI
við að flytja leikritið sama dag um
allan heim og mun það vera einna
síðast flutt hér hjá okkur.
Eins og að framan getur, verður
leikritið flutt hér á norsku og er
leikstjóri og leikendur norskir. Leik-
stjóri er Gunnar Niels Hansen, en
leikendur eru alls þrettán og meðal
þeirra Finn Bernhoft, David Knud-
sen, Eugen Schönberg, Jörn Ording,
Stein Grieg Halvorsen, en hann var
hér með norsku leikurunum í vor,
Borseth Rasmussen og Ragnhild
Hald.
1 leikritinu koma fram allar helztu
persónur mannkynssögurinar og eru
þær látnar túlka sjónarmið sín.
Að líkindum verður leikritið flutt
hér 21. þessa mánaðar, en þann
dag vei'ður þing Sameinuðu þjóð-
anna sett í París.
Það skal að lokum endurtekið, að
næsta furðulegt er, að leikritið skuli
ekki hafa verið þýtt á íslenzku og
flutt hér á máli þjóðarinnar. Það
mun hafa verið tilætlun Sameinuðu
þjóðanna, að það væri flutt í útvarp-
ið á rnáli hverrar þjóðar og ef væg-
ast sagt eins og verið sé að svíkjast
frá skyldu sinni með þeirri aðferð,
sem hér er höfð.
ÚTVARPSVIÐGERÐASTOFA
OHó B. Arnar
Klapparstíg 16 Reykjavik
annast allskonar viðgerðir á útvarps-
tækjum og öðrum skyldum tækjum.
Fyrsta flokks vinnustofa og góðir
starfskraftar. — Sanngjarnt verð.
— 20 ára reynsla. —
Sími 2799
Útvarp um miðjan
dag fyrir húsmæður
Nýjung d Norðurlöndum
KONURNAR, sem á undanförnum
árum hafa haldið uppi kvennaþætti
útvarpsins eiga þakkir skyldar. Þær
hafa séð svo um, að þessi þáttur,
sem áður fyrr var allt af á hrak-
hólum og starfsmenn útvarpsráðs
voru allt af í vandræðum með, hefur
orðið lifandi þáttur í starfi útvarps-
ins og' svo lítur út sem hann eigi
vaxandi vinsældum að fagna meðal
kvenfólksins, en það mun vera beztu
hlustendurnir.
Á Norðurlöndum er nú uppi hreyf-
ing meðal útvarpsmanna um það, að
auka stórlega útvarp fyrir húsmæð-
ur. Er sums staðar í ráði að hafa
sérstakt útvarp fyrir þær um miðjan
dag, þegar þær hafa lokið heimilis-
störfum sínum, eða réttara sagt
morgunverkum og mun slíkt útvarp
nú vera hafið í Svíþjóð, en vera í
þann veginn að hefjast í Danmörku
og Noregi.
Um leið er tekið fyrir nýtt efni
til flutnings. Flutt eru aðeins stutt
erindi um heimilishald og heimilis-
iðju, um búsáhöld, húsgögn, um
sauma og prjón og barnauppeldi og
yfirleitt allt, sem fyrst og fremst
snertir dagleg störf konunnar á
heimilunum.
Hvernig væri að taka upp svona
starfsemi hér?