Útvarpstíðindi - 25.10.1948, Side 14
398
ÚTVARPSTÍÐINDI
til samans, þótt ekki safnist hann
á fáar hendur. í þessu sambandi
rakti hann sögur nokkurra kynbóta-
afreka, sem metin verða til fjár,
sem og annarra, sem hann taldi
ómetanleg. Aukning uppskerunnar í
öllum löndum, þar sem kynbætur
eru reknar, gefur óhemjuverðmæti
í aðra hönd, en það er ómetanlegt,
þegar ræktunarmörk nytjajurtanna
eru víkkuð að miklum mun, líkt og
átt hefir sér stað víða í norðlægum
löndum og á svæðum, þar sem
þurrkar eru til trafala við ræktun-
ina.
En það er ekki hægt að stunda
hagnýt og fræðileg vísindastörf svo
að nokkuð gagn sé að, ef viss skil-
yrði eru ekki fyrir hendi, hélt pró-
fessorinn áfram og beygði inn á
svið stjórnmálanna. Frumskilyrði
allrar vísindastarfsemi heitir frelsi,
fjárhagslegt frelsi, frelsi frá áhyggj-
um um daglegt brauð, algert skoð-
anafrelsi. Það hefir viljað brenna
við víða, að frelsi vísindanna hafi
verið fyrir borð borið, og í tveim
einræðisríkjum hefir skoðanafrelsi
vísindamanna verið þurrkað út bók-
staflega og margir þeirra hnepptir
í fangelsi eða myrtir. Taldi hann
upp fjölmarga þýzka vísindamenn,
sem flúið höfðu land eða horfið,
sem og álíka marga Rússa, sem ekki
eru lengur í tölu lifenda, fremstan
þeirra prófessor Vavilov, einn af
tindunum í sögu erfðafræðinnar.
En hina rússnesku sorgarsögu um
stjórnmálaskipanir á sviði erfða-
fræðinnar og hvarf hinna beztu
erfðafræðinga er ekki tími til að
rekja hér að sinni, til þess verður
ef til vill tækifæri síðar. Lesendur
Morgunblaðsins hafa í dag (13. 10.)
fengið greinargóða frásögn um þessi
rússnesku leyðindamál eftir dr. Dar-
lington, hinn heimsfræga frumu-
fræðing. Að innihaldi er sú grein
því miður sönn, þótt ekki sé mér
kunnugt um, hvort þýðingin er hár-
nákvæm.
Stökkbreytingar framleiddar með
geislum og ýmsum efnum voru aðal-
mál mótsins. Merkustu erindin um
þau mál fluttu þau Charlotte Auer-
bach. frá Edinborg og prófessor
Demerec frá Cold Spring Harbor í
New York fylki.
Jens Clausen, Daninn frá Kali-
forníu, sagði frá tilraunum með
murutegund eina. Hefir hann fengið
hana víða að og ræktað hluta úr
sömu jurt á fjórum eða fimm ólík-
um stöðum, allt frá strönd Kali-
forníu til toppa Klettaf jalla.-Árangr-
arnir sýndu, hve mikið loftslagið
veldur um þróun tegundanna og
hagnýtir árangrar þeirra benda á
ráð, sem fylgja ber, þegar jurtir
eru fluttar landa á milli. Það er
svipað og að kasta peningum í Niku-
lásargjá, þegar of fjár er greitt til
að láta fólk ósérfrótt á sviði slíkra
rannsókna, stjórna sókn jurta til
fjarlægra landa.
Brezka konan Frances Seymour,
læknir að mennt, hefir síðastliðinn
áratug gert víðtækar rannsóknir á
ástæðum barnleysis í sumum hjóna-
böndum og fundið, að það er álíka
oft sök ófrjóleika karlmannsins og
konunnar. Þegar ekki er hægt að
gera við ófrjójeika karlmannsins og
hjónin vilja endilega eignast af-
kvæmi, hefir hún gripið til gerfi-
sæðingar og tekið sæði frá karl-
mönnum, sem hafa til brunns að