Bankablaðið - 01.12.1976, Side 7
Nýmæli í samningunum
Þar eð samkomulaginu hefur nú verið dreift
meðal allra félagsmanna er óþarfi að prenta
það upp hér, en aðeins verður leitast við að gera
grein fyrir helstu breytingum sem gerðar voru.
1. Flutningur á milli flokka og þrepa.
Fjöldi launaflokka er óbreyttur, en aðstoðar-
bankastjórar fóru upp fyrir 12. flokk. Við
það skapaðist svigrúm á flokkatilfærslum og
var því samið um að allir sem voru í 7. fl.
og ofar skyldu flytjast upp um einn flokk.
Aðrir skyldu hækka um eitt þrep.
2. Annað launað starf.
í samkomulaginu frá 1974 stóð í 4. gr.
„Starfsmenn mega ekki, án leyfis bankastjóra,
taka að sér annað launað starf“ o. sv. frv.
Þetta ákvæði var nú fellt niður og mega nú
bankamenn fara í aukavinnu þegar vinnutíma
lýkur, án þess að spyrja bankastjórn leyfis!
3. Gera skal skriflegan ráðningarsamning.
í 5. gr. samkomulagsins segir meðal annars.
„Við fastráðningu skal gera skriflegan ráðn-
ingarsamning.“ Þetta er nýtt ákvæði í samn-
ingum bankanna en hefur lengi tíðkast í samn-
ingum annarra launþegasamtaka.
4. Formaður starfsmannafélags á fundi
bankaráðs.
í 6. gr. sem fjallar um trúnaðarmenn starfs-
manna og fl. er í 4. mgr. ákvæði þess efnis að
formaður starfsmannafélags eigi rétt á að koma
á fundi bankaráðs, til þess að ræða málefni
starfsmanna. Reyndar var samið um annað
orðalag á þessari grein en bankaráðin vildu
endilega gera breytingu á þessu atriði og þar
sem breytingin var til batnaðar var hún látin
óátalin. Er vonandi að formennirnir noti sér
ákvæði þetta til þess að koma málefnum starfs-
fólksins á framfæri við bankaráðin.
5. Matar- og kaffitímar í yfirvinnu.
Ástæða er til þess að vekja athygli á 2. mgr.
8. gr. sem fjallar um vinnu í matar og kaffi-
tímum nú þegar verið er að gera breytingar á
uppgjöri vegna síðdegisopnunar bankanna. Þar
segir m.a. skýrt að: „Matar- og kaffitímar á
yfirvinnutímabili, sem unnir eru, greiðast sem
viðbót við yfirvinnutíma, svo og kaffitímar í
yfirvinnu sé unnið að fremri mörkum þeirra.“
6. Ýmis ákvæði vegna vaktavinnu.
Nú komu í fyrsta sinn inn í samninga banka-
manna ýmis ákvæði vegna vaktavinnu, en slík
vinna hefur aukist gífurlega með tilkomu raf-
reikna bankanna.
7. 8,33% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur.
í 7. mgr. 14. gr. segir að frá 1.5. 1976
skuli greiða 8,33% orlofsfé á yfirvinnu og á-
lagsgreiðslur. Þá segir í 8 mgr. sömu gr. að
lágmark orlofsframlags sé kr. 15.000,00 til
starfsmanns sem starfað hefur allt árið.
8. Starfsmenn sem vinna 50% starfs eiga rétt
á fastráðningu.
Nú geta allir starfsmenn sem vinna minnst
50% starfs hlotið fastráðningu eftir sömu
reglum og aðrir starfsmenn. Áður gátu ein-
ungis þeir sem skiluðu minnst % hluta starfs
fengið fastráðningu.
9. Slysatryggingar.
Nú náðust í fyrsta sinn samningar um að
BANKABLAÐIÐ 5