Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 14

Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 14
Konráð Adolphsson af mikilli leikni. Reyndist þessi þáttur námskeiðsins mjög nytsamur því í ljós kom, að ólíklegasta fólk átti létt með að tjá sig þegar á námskeiðið leið. Næsta stórverkefni námskeiðsins var að fjalla um trúnaðarmenn, en um það efni hafði Henning Diemar frá Danmörku framsöguerindi og kynnti þeirra skipulag og reynslu í þeim málum. Urðu almennar umræður um þetta efni og sýndi sig strax, að þátttakendur höfðu mik- inn áhuga á þessu máli og kom það berlega í Ijós í almennum umræðum síðar og hópvinnu, að þetta var eitt áhugaverðasta umræðuefni námskeiðsins. Að þessu loknu fjallaði Svavar Ármannsson um réttarstöðumálin og var gerður góður róm- ur að máli hans. Síðasta verkefnið á námskeiðinu sem kynnt var með framsöguerindi var um kjaramálin og stjórnaði Sólon R. Sigurðsson þeim umræð- um, fyrst með yfirgripsmikilli ræðu um stöðu samningamálanna eins og þau stóðu á þeirri stundu og síðan með því að svara fjölmörgum fyrirspurnum þátttakenda. Þessi mál voru einn- ig rædd nokkuð mikið þegar stjórn sambands- ins sat fyrir svörum, nokkru áður en námskeið- inu var slitið. Framangreind upptalning segir þó ekki nema af litlum hluta þess sem fram fór á þessu nám- skeiði, því einn veigamesti þátturinn var unn- inn í hópstarfi, sem undirbúið hafði verið áð- ur en ráðstefnan hófst. Þátttakendum var skipt niður í fjóra hópa sem stjórnað var af umræðu- stjóra, en stjórn sambandsins beindi fjölmörg- um spurningum til þessara hópa og fjölluðu þær einkum um hagsmunamál bankastarfs- fólks, skipulag og starfsemi S.Í.B. Leyfi ég mér að fullyrða, að með þessu fyrir- komulagi, tókst að koma af stað almennum umræðum um hagsmunamál bankamanna og fræðast hver af öðrum um þessi mál. Þá veittu stjórnarmenn S.Í.B. allar hugsanlegar upplýs- ingar um þessi mál á meðan á umræðum stóð og auðveldaði það mjög störf starfshópanna. Niðurstöður starfshópanna voru síðan kynntar af umræðustjórum og hófust almennar umræð- ur um þessar niðurstöður að því loknu. Þrátt Unnið í hópvinnu. fyrir mjög miklar umræður um niðurstöður starfshópanna komu fram háværar raddir um það að stjórn sambandsins ætti að fylgja þessu starfi eftir með áframhaldandi fundum þegar námskeiðinu yrði lokið, sem gætu byggst á því starfi sem þegar lá fyrir frá námskeiðinu. Sé gerð tilraun til að meta gagnsemi nám- skeiðs sem þessa, þá kemur mér efst í huga gagnsemi gagnkvæmrar kynningar bankamanna og almenn fræðsla um hagsmunamál þeirra. Á þessu námskeiði kom þetta mjög vel fram, því á örskömmum tíma náðu þátttakendur að blanda geði saman á óþvingaðan hátt og tjá sig um þau atriði sem þeim lá ofarlega í huga. Þá er það mikill styrkur fyrir stjórn sambands- ins að fá til ráðuneytis svo stóran og breiðan hóp félagsmanna til þess að gera upp hug sinn um hagsmuna- og framtíðarmál sambandsins. Ekki verður lokið við þessa fátæklegu frá- 12 BANKABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.