Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 16
Urclit í ritgerðarcamkeppninni
í tilefni af 40 ára afmæli Sambands íslenskra
bankamanna á s.l. ári var ákveðið að efna til
ritgerðarsamkeppni meðal starfsfólks banka og
sparisjóða.
Efni ritgerðanna átti að fjalla um þróun
bankamála á íslandi næstu 30 ár (starfsmanna-
hald, stjórnun, þjónustu, vélvæðingu o. s.
frv.)
Dómnefnd skipuðu: Hannes Pálsson, að-
stoðarbankastjóri, fyrrv. form. SÍB, Pétur Sæ-
mundsen, bankastjóri og Jónas H. Haralz,
bankastjóri.
Skilafrestur var til 1. janúar 1976 og bár-
ust aðeins tvær ritgerðir. Björn Matthíasson,
hagfræðingur hjá Seðlabanka íslands hlaut 1.
verðlaun, kr. 100.000, en Gunnar Már Hauks-
son Búnaðarbanka íslands hlaut viðurkenningu
fyrir sína ritgerð kr. 10.000.
Því miður reyndist ekki unnt að birta rit-
gerðirnar í Bankablaðinu að þessu sinni.
l' ^ J ‘:.'Æ
ÍBhHI 4
Björn Matthíasson og Gunnar Már Hauksson.
14 BANKABLAÐIÐ