Bankablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 17
Verkfall bankamanna í Noregi
Bankamenn misstu þolinmæðina.
29. maí s.l. var sögulegur dagur í Noregi.
Eftir að hafa sýnt þolinmæði í þau 54 ár sem
liðin eru frá stofnun Norska bankamannasam-
bansins, fóru bankamenn í verkfall. Ástæðan
var m.a. að bankamenn í Noregi hafa nú í
mörg ár dregist aftur úr hliðstæðum stéttum og
bankarnir sýndu engan vilja til samninga. í
eina viku voru bankarnir lokaðir eða þar til
Almenningur sýndi verkfallinu mikinn áhuga og flestir
sýndu mikla samúð og skilning á því. — Verkfalls-
verðir unnu mikið og gott starf með þvi að upplýsa
almenning um verkfallið.
þingið neyddi bankamenn til að taka upp störf
að nýju með því að beita þvingunarlögum.
Upp úr samningum slitnaði þann 12. mars.
Bankamenn höfðu krafist launahækkana, sem
hefðu kostað bankana sem svaraði 11% af
útborguðum launum, en bankarnir vildu að-
eins samþykkja 4,5% hækkun. Ríkissáttasemj-
ari kom með sáttatillögu í apríllok sem hefði
haft í för með sér 7,1% hækkun. Sáttatillagan
var samþykkt af bönkunum en var hafnað af
stjórn NBF. Verkfall var boðað þann 3. maí
en því var frestað á meðan úrslit fengust í alls-
herjar atkvæðagreiðslu meðal bankamanna.
98% félaga NBF tóku þátt í atkvæðagreiðsl-
unni og þar af höfnuðu 92% meðlimanna sátta-
tillögunni.
Urslit lágu fyrir 26. maí og verkfall boðað
frá og með 29. maí Þá kom ríkisstjórnin inn
í málið og fór fram á að af verkfalli yrði ekki,
af því að ríkisstjórnin hefði í hyggju að setja
lög um ,,gerðardóm“. Þ.e.a.s. bankamenn áttu
að mæta til vinnu sinnar og sérstakur dómstóll
(gerðardómur) skyldi gera út um málið. Það
hefur verið venja í slíkum tilvikum í Noregi
að launþegasamtökin hafa farið að beiðni ríkis-
stjórnarinnar en í þetta sinn sagði stjórn NBF
nei.
Stjórn NBF skýrði afstöðu sína á þann veg
að norskir bankamenn hefðu lent í þessari
stöðu tvisvar áður og þá farið að beiðni ríkis-
stjórnarinnar, en að þessu sinni væri það mat
sambandsins að fulltrúar bankanna í samninga-
nefndum hefðu ekki reynt í neinni alvöru að
ná samningum heldur allan tímann stefnt að
því að málið færi fyrir gerðardóm.
Málinu lyktaði á þann veg að „gerðardóm-
urinn“ dæmdi bankamenn til þess að taka við
tillögum ríkissáttasemjara óbreyttum. En banka-
menn voru reynslunni ríkari.
S.R.S.
BANKABLAÐIÐ 15