Bankablaðið - 01.12.1976, Síða 20
IN MEMORIAM
Halldór Helgason,
bankaú tibússt j óri
Fyrir nokkru barst sú sorgarfregn um Lands-
banka íslands, að Halldór Helgason, útibús-
stjóri Landsbanka íslands á Akureyri, væri lát-
inn.
í sjálfu sér kom þessi frétt ekki alveg að
óvörum. Pó er það alltaf svo, að maðurinn með
ljáinn kemur að óvörum. Það væri ekki að
skapi hins látna að setja hendur í skaut, þótt
vofeiflegar fréttir berist, heldur berja á bátinn
og safna kröftum til nýrrar atlögu.
Ég vil hér með fátæklegum orðum kveðja
þennan vin minn og samstarfsmann. Pegar ég
lít yfir liðna tíð til upprifjunar á samverustund-
um, vefst mér tunga um tönn. Pað er af miklu
að taka. Hér verður ekki skráð ævistarfið, eða
fluttur mikill lofsöngur. Pað væri ekki að skapi
Halldórs.
Halldór var liðlega fimmtíu ára gamall og
hafði starfað í útibúi Landsbankans á Akur-
eyri nokkuð yfir tuttugu og fimm ár. Áður
mun hann hafa starfað að nokkru við bóka-
verslun.
Halldór var norðlenskrar ættar, en fyrst og
síðast var hann Akureyringur. Hann var nett-
vaxinn, léttur á gangi, gamansamur, en alvar-
legur. Hann var vel gerður á allan hátt. Það er
mikill mannskaði að fráfalli hans, langt um
aldur fram.
Áhugamál Halldórs voru mörg og margvís-
leg, en fyrst og fremst voru það bankamál og
félagsmál, sem tóku hug hans allan. Utan dag-
legra starfa í bankanum eyddi hann drjúgum
tíma af frístundum sínum til að sinna margs
konar félagsmálum. Hann var áhugasamur
söngmaður og söng með karlakór um árabil.
Þá var hann áhugasamur í Frímúrarareglunni og
Lionshreyfingunni. Gengdi hann þar æðstu
trúnaðarstörfum. Mikill áhugamaður um knatt-
spyrnu og átti mjög gott safn íþróttarita. Þá
mun hann hafa fengist nokkuð við kennslu.
Eins og fyrr segir var Halldór mikilhæfur
bankamaður. Hann kom ungur til starfa að
bankanum. Hann var búinn að gegna þar flest-
um störfum og hafði verið útibússtjóri bank-
ans nokkra hríð, er kallið kom. Hann var mjög
opinn fyrir öllum nýjungum í bankarekstrinum,
18 BANKABLAÐIÐ