Bankablaðið - 01.12.1976, Síða 21
sérstaklega hvað tæknilegar nýjungar snerti.
Hann átti þess oft kost að skipta um störf í
bankanum, en Akureyri varð hans starfsvett-
vangur ævilangt. Öll störf í bankanum rækti
hann af framúrskarandi drengskap og skyldu-
rækni. Við fráfall hans verður stórt skarð og
vandfyllt. Þá er mikill sjónarsviptir, er hann
hverfur úr bæjarlífi Akureyrar.
Halldór var fremur dulur og talaði lítið um
einkamál. Hann var fágætur félagi og hrókur
alls fagnaðar. Nú við leiðarlok minnist ég
margra stunda í samfélagi við hann, á félags-
fundum bankamanna, íþróttavelli, ferðalögum
og á skemmtistundum. Halldór var mjög víð-
förull og hafði farið um mörg Evrópulönd til
lærdóms og skemmtunar.
Þegar ég flyt Halldóri hér hinstu kveðju, þá
minnist ég síðustu samfunda okkar. Það var
fyrir nokkru, að Halldór var hér á ferð í Lands-
bankanum og þá á leið til suðrænna landa.
Við köstuðum að vanda kveðjum hvor á annan,
glaðir og reifir. Okkur óraði ekki fyrir því,
að hér væri um hinstu kveðju að ræða. Það
var víðs fjarri. Halldór kom heim úr þessari
för og virtist ekki jafn kátur og áður. Leið
hans lá nú beint norður og síðan í sjúkrahús
á Akureyri. Þar háði hann sitt helstríð, sem nú
er lokið.
Halldór átti margt ógert í lífinu. Margur
mun sakna hans skemtilega svipmóts, greiða-
semi og háttvísi allrar. Ég er einn í þeim hópi.
Aðstandendum votta ég samúð svo og sam-
starfsmönnum mínum á Akureyri.
Það er skuggi yfir sorgarranni. Þegar stundir
líða og dagur lengist mildast sorgin, en hand-
tak Halldórs Helgasonar gleymist ekki. Við
starfsfólk Landsbanka íslands kveðjum hann
með virðingu og þökk og óskum honum farar-
heilla í nýjum heimkynnum.
Bjarni G. Magnússon.
Kristinn Vignir Hallgrímsson,
hagfræðingur
Okkur samstarfsmenn og vini Kristins Hall-
grímssonar setti hljóða, þegar fré ,in um snögg
og alvarleg veikindi hans barst okkur, er við
mættum til vinnu að morgni hins 9. mars sl.
Daginn áður hafði hann starfað með okkur
hress og kátur eins og venjulega. Réttri viku
síðar, hinn 16. mars, er ég frétti lát hans,
fannst mér ég vart geta trúað þeirri staðreynd,
þrátt fyrir þá viðvörun, sem á undan var geng-
in, svo sárt fannst mér að sjá á bak góðum
vini og nánum samstarfsmanni.
Kristinn Vignir Hallgrímsson var fæddur í
Reykjavík 2. janúar 1934 og var því aðeins
42 ára, þegar hann lést. Hann var sonur hjón-
anna Svanborgar Sigurðardóttur og Hallgríms
Péturssonar, sjómanns. Kristinn hóf nám í
Verslunarskóla íslands og lauk þaðan stúdents-
prófi vorið 1955. Að stúdentsprófi loknu hóf
hann nám í hagfræði við Dartmouth College
í Bandaríkjunum og lauk þaðan hagfræðiprófi
1957, en hóf þá þegar framhaldsnám við Lond-
on School of Economics og lauk þaðan meist-
araprófi í hagfræði 1961. Að námi loknu réðst
hann til starfa í hagfræðideild Seðlabankans,
BANKABLAÐIÐ 19