Bankablaðið - 01.12.1976, Qupperneq 30
ann á. Sama dag klukkan 15.00 var hann seátur
við taflborðið í Melaskóla og gekk þar um
gólf, milli leikja, hnarreistur, með hendur að
baki, brosleitur, kíminn og kvikur sem tvítugur
unglingur, og lét ekkert fram hjá sér fara. Hann
var að leita sigurs.
Stjórn Sambands íslenskra bankamanna fól
þeim Adólfi Björnssyni, Útvegsbankanum,
Kristni Bjarnasyni, Búnaðarbankanum og Birgi
Friðþjófssyni, Landsbankanum, að sjá um fjöl-
teflið, undirbúning og framkvæmd. Hófst taflið
klukkan liðlega átta eftir ávarp Adólfs Björns-
sonar, sem bauð gesti, þátttakendur og sérstak-
lega Miguel Najdorf velkomna til skákhátíðar.
Najdorf, sem er á 67. aldursári lét engan bil-
bug á sér finna, þótt hann þyti eldsnar á fullri
ferð um allan salinn og tefldi á 29 borðum.
Vegalengdin, sem hann fór, léttur í spori, án
þess að þiggja vott eða þurrt, var umtalsverð
og ómæld en ekki mátti þreytumerki á mara-
þongöngu hans merkja.
Najdorf var hinn hressasti og kátasti eftir
leikslok og spurði mig, hvernig endaði þetta?
Ég sagði, þú sigraðir á 20 borðum, gerðir
8 jafntefli og einni skák tapaðir þú.
,,Við skulum þá vera saman á mynd.“
Meðan fjölteflið fór fram sat eiginkona
Najdorfs í setustofu Útvegsbankans og var í
sífellu að prjóna peysu úr íslensku ullargarni.
Hún sagði mér að nú væri hún að prjóna
þriðju peysuna í keppnislotu Najdorfs, en
vonaðist eftir að þær yrðu fjórar áður en yfir
lyki og myndi hún þá koma færandi hendi
heim, til þess að gleðja ættingja sína.
Sá, sem sigraði stórmeistarann, var Jóhann
Örn Sigurjónsson, Landsbanka, en þau Stefán
Þ. Guðmundsson, Leifur Jósteinsson, Páll Jóns-
son, Gunnar Herbertsson, Hilmar Karlsson,
Sólmundur Kristjánsson, Ólöf Þráinsdóttir og
Vilhjálmur Pálsson náðu jafntefli gegn honum.
Við sem störfuðum að undirbúningi og fram-
kvæmd þökkum öllum er ljáðu máli þessu lið
og settu svip á fjölteflið 8. september 1976.
Persónulega þakka ég samstarfsmönnum mín-
um sem raunverulega báru hita og þunga dags-
ins. Adolf Björnssoti.
Hraðskákmól bankamanna
Fimmtudaginn 11. nóvember efndi Samband
íslenskra bankamanna til hraðskákkeppni
bankamanna í salarkynnum Starfsmannafélags
Útvegsbankans.
Undirbúningsnefnd skipuðu, Bragi Björns-
son, Útvegsbankanum, Jóhann Örn Sigurjóns-
son, Landsbankanum og Stefán Þormar, Bún-
aðarbankanum.
Tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad kerfi
og hafði hver keppandi 15 mínútur fyrir hverja
skák.
Veitt voru fimm verðlaun 21. hefti Chess
Informator.
Keppnin hófst kl. 20.00 og lauk laust eftir
miðnætti. Keppendur voru 18, sjö úr Útvegs-
bankanum, sex úr Landsbankanum og fimm úr
Búnaðarbankanum. Tvær bankakonur tóku þátt
í keppninni og lauk henni með eftirskráðum
úrslitum:
1. Jóhann örn Sigurjónsson, Landsb. 5V2 v.
2. Gunnar Gunnarsson, Útvegsb. 5 v. 25 stig.
3. Stefán Þormar, Búnaðarb. 5 v. 24,5 stig.
4. Leifur Jósteinsson, Landsb. 5 v. 24 stig.
5. Kristinn Bjarnason, Búnaðarb. 5 v. 23 stig.
28 BANKABLAÐIÐ