Bankablaðið - 01.12.1976, Síða 33
starfaði um árabil hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga. Hann var
m.a. kaupfélagsstjóri á Seyðisfirði
og Kópavogi. Síðar sneri hann sér
að bankastörfum, fyrst sem for-
stöðumaður útibús Búnaðarbank-
ans á Egilsstöðum. Pá réðist hann
í þjónustu Seðlabanka íslands árið
1961. Fékk hann þar mjög víðtæka
reynslu sem bankamaður. Síðustu
árin í Seðlabankanum var hann í
bankaeftirlitinu. Forstöðumaður
þess hluta er snéri að sparisjóðun-
um. Síðar framkvæmdastjóri við
Viðlagasjóð, þegar mest gekk á í
Vestmannaeyjamálinu, eftir eldgos-
ið á Heimaey. Pá var honum falið
eftirlit og starf í Alþýðubankanum,
meðan áðurnefnd umsvif stóðu yf-
ir.
Pá má ekki gleyma hlut Stefáns
er varða félagsmál bankamanna.
Fáir bankamenn munu hafa lagt
meira af mörkum í þágu félags-
mála bankamanna á seinni árum.
Hann var um árabil í stjórn Sam-
bands ísl. bankamanna. Marg oft
fulltrúi þeirra heima og erlendis.
Pá er hann rómaður ræðumaður og
ötull forsvarsmaður í hagsmuna-
málum samtakanna. Pá er hann
skáldmæltur vel.
Bankamönnum er það kærkomið
og ánægjuefni að hann var skipað-
ur bankastjóri í Alþýðubankanum
og óska honum alls velfarnaðar.
BGM.
Nýr bankasljóri í Búnaðarbanka
fslands
Pórhallur Tryggvason.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
síðustu mánuðum í yfirstjórn Bún-
aðarbanka íslands, vegna lagabreyt-
inga á lögum um Búnaðarbanka fs-
lands frá s.l. vori.
Pórhallur Tryggvason var skip-
aður bankastjóri 28. júní s.l. Pað
var öllum bankamönnum og við-
skiptamönnum Búnaðarbanka fs-
Iands mikil gleði, að hinn nýi
bankastjóri, Pórhallur Tryggvason
var valinn úr hópi starfsmanna
Búnaðarbankans. Pað er raunar ó-
þarft að rekja bankaferil Pórhalls.
Hann er mörgum kunnur, en hann
mun nú hafa starfað um 43 ár í
Búnaðarbankanum. Hann hóf störf
í bankanum árið 1933. Hann hefir
starfað við hin margbreytilegu störf
bankamannsins. Fyrst sem almenn-
ur bankamaður. Hann varð skrif-
stofustjóri bankans og starfsmanna-
stjóri 1942. Pá var hann skipaður
bankastjóri í forföllum Magnúsar
Jónssonar er hann gegndi ráðherra-
starfi, frá 8. maí 1965 til 1. ágúst
1971. Hann var einnig settur
bankastjóri 1974. Hann gegndi
einnig forstöðustarfi Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins um nokkurra ára
bil.
Auk margháttaðra bankastarfa
þá hefir hugur Pórhalls snúist um
margs konar önnur hugðarefni.
Hann tók drjúgan þátt í félags-
málum innan bankanna, m.a. for-
maður Sambands ísl. bankamanna
um skeið, auk annarra félagsstarfa
í Búnaðarbankanum og félagsmál-
um bankamanna almennt. Meðal á-
hugamála Pórhalls er ættfræði, sem
er hans aðal tómstundastarf. Dæmi
um hæfileika Pórhalls á því sviði
er haft á orði, að hann hafi í starfi
sínu fyrir Stofnlánadeildina þekkt
alla bændur í landinu með nafni.
Bankamenn samfagna hinum ný-
skipaða bankastjóra og óska honum
heilla í starfi. Pað er alltaf fagn-
aðarefni, þegar menn eftir langt og
viðburðaríkt ævistarf eru skipaðir
í æðstu stöður innan bankanna.
Samband íslenskra bankamanna
fagnar þessari embættisskipan og
óskar Pórhalli Tryggvasyni og fjöl-
skyldu heilla.
BGM.
BANKABLAÐIÐ 31