Bankablaðið - 01.12.1976, Page 37
Frá þirtgi BSRB.
gegn þessari óheillaþróun. í því sambandi felur
þingið forystu samtakanna að leita samstarfs
við Alþýðusamband íslands og önnur heildar-
samtök launafólks um samræmdar aðgerðir í
kjaramálum.
Mótmælt vinnubrögðum ríkis við sérsamninga
30. þing BSRB mótmælir harðlega þeim
vinnubrögðum samninganefndar ríkisins við
gerð sérsamninga aðildarfélaganna vorið 1976,
þar sem nær engin tilraun var gerð til að ná
samningum við félögin, en málinu vísað til
kjaranefndar þar sem vilji ríkisvaldsins var stað-
festur einu sinni enn.
Þingið krefst þess, að ríkisvaldið taki nú
þegar upp samningaviðræður í fullri alvöru
um framkvæmd þeirra atriða í sérsamningi,
sem ófrágengin eru.
Brýnustu verkefnin
30. þing BSRB samþykkir að aðalkjarasamn-
ingi bandalagsins og bæjarstarfsmannafélaga
innan þess verði sagt upp fyrir 1. apríl 1977.
Stefnt verði að nýjum samningi 1. júlí 1977
eins og lög og reglugerð heimila.
Forgangsverkefni við gerð nýs samnings tel-
ur þingið vera þessi:
1. Bætt verði að fullu kjaraskerðing undanfar-
inna ára og tryggður kaupmáttur, sem sé
hvergi lakari en skv. kjarasamningi BSRB
í desember 1973 í endanlegri mynd hans.
2. Samið verði um verulegar kjara- og launa-
bætur, sem lyfti launakjörum upp af nú-
verandi láglaunastigi.
3. Full verðtrygging verði tekin upp á laun
samkvæmt óskertri framfærsluvísitölu.
4. Leiðrétt verði launamisræmi, sem orsakast
af því að opinberir aðilar neita starfshópum
innan BSRB um sambærileg kjör og ríkið
semur um við hliðstæða starfshópa utan
samtaka opinberra starfsmanna.
Meðferð verkfallsréttar
Þingið samþykkti veigamiklar breytingar á
lögum BSRB og m.a. voru sett í lögin ákvæði
um gerð kjarasamninga BSRB og meðferð
verkfallsréttar, eins og gert er ráð fyrir í nýju
kjarasamningunum.
6 mánuðum fyrir lok gildistíma aðalkjara-
samnings ríkisstarfsmanna (þ.e. fyrir næstu ára-
BANKABLAÐIÐ 35