Bankablaðið - 01.12.1976, Page 38
mót) skulu öll bandalagsfélögin velja menn í
samninganefnd BSRB — einn fyrir hverja 400
félagsmenn — þannig verða í fullskipaðri
samninganefnd 56 menn.
Sameiginlegur fundur samninganefndar og
stjórnar BSRB tekur ákvörðun um uppsögn
kjarasamnings og boðun verkfalls.
Takist samkomulag um kjarasamning ríkis-
starfsmanna skal viðhafa um það allsherjarat-
kvæðagreiðslu innan 6 vikna frá undirritun
samkomulagsins.
Hliðstæðar reglur gilda um samninga hvers
bæ j ars tarf smannaf élags.
Skattamál
Þar sem núverandi skattalöggjöf er torskilin
og flókin og ýmsir þættir bitna á launafólki,
er það ákveðin krafa 30. þings BSRB
1. að atvinnurekendur og fyrirtæki beri sinn
hluta af skattabyrðinni, sem þá að sama
skapi verði létt af launþegum.
2. að beitt verði öllum hugsanlegum ráðum til
að kveða niður skattsvik í þjóðfélaginu.
3. að BSRB eigi ásamt öðrum launþegasamtök-
um aðild að endurskoðun og samningu
nýrra skattalaga.
4. að höfð verði innan BSRB og í sam-
vinnu við önnur launþegasamtök, sem vinni
að rannsókn og ráðgjöf í sambandi við
skattamálin.
Efnahagsmál
Þá voru á þingi BSRB gerðar ítarlegar álykt-
anir um efnahagsmál. M.a. var mótmælt skipu-
lagsleysi stjórnvalda í meðferð efnahagsmála,
sem hafi leitt af sér stórfelldari tekjur og eigna-
tilfærslur í þjóðfélaginu en dæmi séu um á
jafnskömmum tíma. Gera verði heildaráætl-
un til lengri tíma um veigamestu þætti í at-
vinnumálum landsmanna sem stuðli að fullri
atvinnu og stöðugri þróun í þeim málum.
Um verðlagsmál segir, að til þess að draga
úr vexti dýrtíðar sé brýnt, að aukið aðhald
verði í verðlagsmálum og verðlagseftirlit verði
stóreflt frá því sem nú er.
Þá segir, að vegna hinna stórfelldu rösk-
unar sem orðið hafi í efnahagslífi þjóðarinnar,
sé brýnt að launþegasamtökin hafi forgöngu
um könnun á fjárhagslegri stöðu launafólks í
þjóðfélaginu, afkomu atvinnuveganna, skipt-
ing þjóðartekna og eigna einstaklinga jafnt og
fyrirtækja. G.E.
36 BANKABLAÐIÐ