Bankablaðið - 01.12.1976, Side 40
Jóhanrt
Árnason.
Hann var þátttakandi, ásamt Höskuldi heitn-
um Ólafssyni og undirrituðum á fyrsta alþjóða-
bankamóti í London 1939.
Jóhann Árnason hefir ritað mikið um fjár-
mál í Bankablaðið og fleiri tímarit. Hann hefir
góð tök á penna sínum þegar hann geysist
greitt fram á ritvellinum, hispurslaus og ein-
arður í skoðunum um menn og málefni.
Nokkuð sjómannsblóð frá Bolungarvík, mun
ávallt hafa runnið um æðar hans. Hann átti
lengi trillu og réri í tómstundum til fiskjar úr
Selsvör. Einnig hefir hann haft ánægju af
veiðiferðum í ár og vötn.
Jóhann Árnason var kjörinn heiðursfélagi
Starfsmannafélags Útvegsbankans 10. apríl
1960.
Jóhann er kvæntur Svöfu Helgadóttur, hinni
mestu ágætiskonu. Þau áttu gullbrúðkaup 4.
nóvember síðast liðinn. A.B.
75 ára, Elías Halldórsson
fv. forstjóri Fiskveiðasjóðs
Elías Halldórsson fæddist 4. maí 1904 að
Ytri-Húsum, Mýrarhreppi í Vestur-ísafjarðar-
sýslu.. Hann lauk prófi frá Unglingaskóla ísa-
fjarðar 1916. Stundaði síðan skrifstofustörf á
ísafirði uns hann séðist í þjónustu íslands-
Eltas
Halldórsson.
banka á ísafirði 12. maí 1919. Starfaði þar til
1. september 1929 og var gjaldkeri frá 1924.
Sem fyrr segir hætti Elías störfum á ísafirði
1929 og tók við útibússtjórastarfi í bankanum á
Seyðisfirði og var þar til 1. mars 1931. Kom
hann þá til starfa í Útvegsbanka íslands og
starfaði þar til hann sjötugur lét af störfum fyr-
ir aldurs sakir. Elías varð forstöðumaður Fisk-
veiðasjóðs 1931, en hann var þá undir yfir-
stjórn Útvegsbanka íslands. Forstjóri sjóðsins
var Elías skipaður 1. janúar 1949. Hann var
ennfremur skrifstofustjóri Skuldaskilasjóðs
vélbátaeigenda frá 1936 til starfsloka sjóðsins.
Umsjónarmaður Iðnlánasjóðs, sem var deild í
bankanum, var hann 1935—1953. í ýmsum
félagssamtökum starfaði hann bæði á ísafirði
og í Reykjavík. Hann er heiðursfélagi Leikfé-
lags ísafjarðar.
Elías var einn af stofnendum Starfsmanna-
félags Útvegsbankans og fulltrúi þess í fyrstu
stjórn Sambands ísl. bankamanna og var í rit-
stjórn Bankablaðsins í 2 ár.
Elías var alltaf hamhleypa til starfa, vand-
virkur og snyrtimenni í störfum, fasi og fram-
komu, yfirlætislaus og prúður í framkomu.
Hann er heiðursfélagi Starfsmannafélags Út-
vegsbankans.
Hann er kvæntur Evu Pálmadóttur, mikilli
ágætiskonu. A.B.
38 BANKABLAÐIÐ