Bankablaðið - 01.12.1976, Side 41

Bankablaðið - 01.12.1976, Side 41
70 ára, Sigurður Guttormsson fv. bankafulltrúi Sigurður Guttormsson fæddist 15. ágúst 1906 að Hamragerði í Eyðaþinghá í Suður- Múlasýslu. Nám að lokinni barnafræðslu voru sveita- störf á Austfjörðum og síðan fiskvinna í Vest- mannaeyjum, að breiða fisk og taka saman var lífsins gleði í þá daga. En bóklestur og sjálfs- menntun skipuðu Sigurði í fremstu raðir við lausn þeirra verkefna, sem hann hefir tekið sér fyrir hendur um ævina. Sigurður Guttormsson hóf störf í íslands- banka í Vestmannaeyjum 1. nóvember 1923, 17 ára unglingur, sem ávann sér á léttu skeiði æskunnar traust og vinsældir, sem fylgt hafa honum síðan, og kann ég best að meta þær dyggðir og drengskap, sem hann sýndi mér í áratuga samstarfi í stjórn Starfsmannafélags Utvegsbankans. Sigurður starfaði í Privatbanken i Kjöben- havn í Danmörku í rúmlega eitt ár 1947 og 1948. Fór síðan aftur heim til Vestmannaeyja, en fluttist þaðan alfarinn til starfa í Utvegs- banka íslands 1949 og hóf störf í hlaupareikn- ingsdeild bankans en síðar og lengst í bréf- ritunardeild, þar til hann hætti störfum 1966, samkvæmt heimild um aldurssakir eftir 43 ára starfsferil. Sigurður hóf störf fyrstur manna í skrifstofu Sambands ísl. bankamanna 1967, hluta úr degi, allt til þess að Hilmar Viggósson var ráðinn til fullra starfa. Samtökin voru á þeim árum vanmáttug og févana til þess að greiða fullt dagsstarf, en Sigurður var hinn fórnfúsi félagi, sem léði samtökunum starfsþrek sitt í tóm- stundum og oft langt umfram umsamdar vinnu- stundir. Hann skipulagði fyrstu skrifstofu banka- manna að Laugavegi 103, steypti traustan grunn að því framtíðarstarfi, sem nú er hinn raunhæfi starfsgrundvöllur sambandsins. Sig- urður var einnig ritstjóri Bankablaðsins þann tíma er hann var skrifstofustjóri. Hann var áhugasamur félagsmaður, þrek- Sigurður Guttormsson. mikill og þolinmóður. Minnist ég sérstaklega þegar við þrír, hann, Matthías Guðmundsson og ég hófum útgáfu Félagstíðinda S.Ú. og unn- um myrkra í milli, að skrifa handrit, vélrita, ljósmynda og hefta blaðið, sem kom út um nokkurt skeið. Sem fyrr segir átti Sigurður sæti í stjórn Starfsmannafélags Útvegsbankans um áraraðir allt frá því að hann fluttist til Reykjavíkur og þar af í tvö síðustu árin var hann formaður fé- lagsins. Með honum starfaði ég öll stjórnarár hans, í blíðu og stríðu. Mér er ljúft að þakka þau ár. Betri vin og samstarfsmann gæti ég vart valið og á ég þó marga traustra vina að minnast, sem mér eru einnig kærir. Sigurður er kvæntur Sigríði Gísladóttur, góðri og elskulegri eiginkonu. A.B. 70 ára, Guðmundur Ólafs fv. bankastjóri Guðmundur Björnsson Ólafs fæddist 6. sept. 1906 í Mýrarhúsum í Seltjarnarneshreppi. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla íslands 1930 og hóf lögfræðistörf í Útvegsbanka ís- lands 1. maí 1930. 22. nóvember 1938 var BANKABLAÐIÐ 39

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.