Bankablaðið - 01.12.1976, Page 56
Útvegsbankamenn eiga ótal ánægjustunda og
unaðar í vistarverum Aðalbjargar.
Alls voru þátttakendur um 60, sem til fisk-
veiða fóru á þessu vori.
Sumarbltða við Sigöldu á haustdegi.
Laugardaginn 2. október síðast liðinn óku
57 starfsmenn Útvegsbankans og gestir þeirra
úr bankahlaði austur að Sigöldu, í boði júgó-
slavneska verktakafyrirtækisins Energoprojekt
frá Belgrad til skoðunar á mannvirkjum.
Var þar margt fróðlegt og fýsilegt að sjá.
Á austurleið var áð í Eden, hinum undur-
fagra blómagarði í Hveragerði. Skömmu eftir
hádegi var ekið á heimaslóðir verktakanna við
Sigöldu og tóku þar á móti okkur, Pétur Pét-
ursson, fyrrverandi alþingismaður og Predrag
Veljovic, verkfræðingur fyrirtækisins.
Okkur var boðið til hádegisverðar og feng-
um við gómsæta sunnudagssteik og hrært skyr
með rjómablöndu, er ráðskona staðarins ann-
aðist um af myndarskap og rausn með glað-
legri stúlknahjörð sinni
Pétur Pétursson bauð hópinn velkominn og
Veljovic tók í sama streng. Adolf Björnsson
þakaði höfðinglegar móttökur. Sverrir Júlíus-
son var næstur á mælendaskrá. Hann brá m.a.
á glens og minntist þess að fyrr á árum vorum
við þrír þarna viðstaddir, hann Pétur og ég,
saman í Viðskiptanefnd og skömmtunarráði
ríkisins og allir fórum við síðan til framboðs
til Alþingis, en mér einum var hafnað.
Að loknum hádegisverði var farið í skoð-
unarferð um svæðið undir forystu Veljovic
verkfræðings og Magnúsar Bjarnasonar verk-
fræðings, er á fræðandi hátt skýrðu frá fram-
kvæmdum og hvers árangurs væri að vænta.
Síðan ókum við áfram upp hálendið að Þór-
isósi og skoðuðum þar hina miklu stíflu.
Heim var komið klukkan átta að kvöldi og
kvöddust þá ferðalangar ánægðir með ferðalag-
ið og margfróðir um virkjun íslenskra fall-
vatna. í bílnum var sungið við raust og sá um
þann þátt ferðarinnar, hinn landsþekkti gítar-
snillingur Ástþór Jónsson frá Möðrudal á
Fjöllum.
Adolf Björnsson.
Frá Starfsmannafélagi
Verslunarbankans
Aðalfundur S.V.Í. var haldinn fimmtudag-
inn 29.4. 1976 kl. 8,30 í kaffistofu bankans.
Formaður félagsins Þuríður Sölvadóttir setti
fundinn og stakk upp á Helga Hólm sem
fundarstjóra og Hrefnu Traustadóttur sem
fundarritara. Síðan las formaður félagsins upp
skýrslu stjórnar og gjaldkeri Karl Jónsson upp
reikninga félagsins. Þá hófust umræður og voru
skýrsla og reikningar félagsins samþykkt sam-
hljóða.
Þá las og kynnti Helgi Hólm hin nýju lög
félagsins sem lögð voru fram fyrir fundinn og
voru þau samþykkt eftir talsverðar umræður
með öllum greiddum atkvæðum.
Formaður félagsins Þuríður Sölvadóttir baðst
undan endurkosningu og var stungið. upp á
Þorsteini Ragnarssyni sem formanni og var það
samþykkt og aðrir í stjórn voru kosnir Lilja
Sigurðardóttir ritari og Karl G. Jónsson, gjald-
keri. Til vara Gunnar Þorvaldsson og Ragnar
Marinósson. Endurskoðendur voru kosnir
Steinn Valur Magnússon og Björn Karlsson.
Þá var einnig kosið í sumarbústaðanefnd og í
henni eru Aðalsteinn Júlíusson form., Einvarð-
ur Jósefsson og Bryndís Svavarsdóttir.
Sumarbústaður félagsins var vel nýttur í
sumar og lögðu félagar mikla sjálfboðavinnu
til, bæði í vor og haust við girðingu, vegavinnu
og m. fl.
Árshátíð félagsins var haldin í byrjun mars
og þótti hún takast vel, einnig var jólatrés-
skemmtun barna haldin eins og venja er.
íþróttalið bankans stóð sig mjög vel í
íþróttamótum vetrarins. Knattspyrnumenn
höfnuðu í þriðja sæti, en handknattleiksliðið
sigraði í sínum riðli og spilaði úrslitaleikinn
við I.andsbankann og tapaði.
Félagið sendi fulltrúa á Vornámskeið SÍB
á Þingvöllum og ráðstefnu fyrir útibússtjóra
á Akureyri og þótti það mjög gagnlegt. Þá
urðu þær brevtingar helstar innan bankans að
Tryggvi Árnason hætti störfum og Björn Karls-
son var skipaður aðalbókari í hans stað, Ein-
54 BANKABLAÐIÐ