Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 3
Hinrik Greipssonjorm. SÍB:
Banka
blaðið
Samband íslenskra bankamanna
stofnað 30. janúar 1935.
Aðildarfélög eru 17
Félagsmenn í dag eru um 3300
Skrifstofa: Tjarnargata 14,101 R.
Formaður: Hinrik Greipsson.
Aðrir í stjórn og varastjórn: Hrafn-
hildur B. Sigurðardóttir, Friðbert
Traustason, Sigurður Geirsson,
Margrét Brynjólfsdóttir, Yngvi Örn
Kristinsson, Sólveig Guðmundsdótt-
ir, Guðrún Hansdóttir, Birna Bjarna-
dóttir, Kjartan P. Einarsson og
Gunnar Hámundarson.
Starfsmenn:
Helgi Hólm, framkvæmdastjóri,
Guðrún Astdís Ólafsdóttir, fulltrúi,
Kristín Guðbjörnsdóttir, skrifst.m.
51. árg. desember 1985.
Útgefandi: Samband ísl. bankamanna.
Ábyrgðarmaður: Hinrik Greipsson
Ritstjóri: Helgi Hólm
Aðsetur: Tjarnargata 14,101 R.
símar: 26944 og 26252
Bankablaðið er prentað í 3800
eintökum og sent öllum
félagsmönnum SÍB.
Umbrot og filmuvinna: Repró
Setning, prentun og bókband:
Formprent.
Stjórn og starfsfólk
Sambands ísl. bankamanna
sendir öllu bankafólki
hugheilar óskir um
gleðilegjól
ogfarsœlt nýtt ár.
Bankastörf á tímamótum
Samband íslenskra bankamanna varð 50 ára hinn 30. janúar s.l. 50 ár í sögu
stéttarfélags er töluverður tími. Bylting hefur orðið í íslenska bankakerfinu á
þessum tíma, og erfitt er að sjá að önnur eins bylting verði nœstu 50 árin. Þeir
bankamenn, sem lengstan starfsaldur hafa hjá bönkunum í dag hafa gengið í
gegnum hreinsunareld, sem enginn bankamaðurframtíðarinnar á eftir að upplifa
eftir þeirra dag.
Tölvu- og tæknivæðing hefur hafið innreið sína í bankana og nú hefur fyrsta
útibúið verið beintengt Reiknistofu bankanna, ogfljótlega mun hver afgreiðslu-
staðurinn eftir annan beintengjast. Tœknivœðing hlýtur að vera afhinu góða, og
það er vissa mín að í bönkunum í dag starfar frábært fólk, sem mun nýta sér
tæknina til fulls og auka þannig viðskipti bankastofnananna á hinum flókna
fjármagnsmarkaði. Til þess að í bönkunum séu hœfustu starfsmenn, sem völ er á
hverju sinni, þurfa bankamir aðgreiða mannsæmandi laun. Nú um áramót renna
út kjarasamningar okkar, eins ogflestra annarra launþegasamtaka. Það er höf-
uðkrafa allra að verðtrygging launa í einhverjuformi verði tekin upp að nýju.
Það hlýtur þvífyrst ogfremst að kalla á samstöðu allra stéttarfélaga til þess að
sú krafa náifram að ganga.
Jafnréttismál verða ofarlega á baugi nœsta ár. Nú þegar kvennaáratugur Sam-
einuðu þjóðanna er runninn, og konur telja sig litlu hafa fengið áorkað hlýtur
barátta þeirra að aukast frekar en hitt. Stjóm SÍB mun leggja sitt af mörkum til
þess að jafnrétti verði í raun. Einn þáttur jafnréttismálanna eru menntunarmál,
því þurfum við góðan og sterkan skóla bankamanna til þess að allir eigi jafna
möguleika til náms.
Bankamannaskólinn stendur nú á tímamótum og vonandi verður framtíð hans
tryggð og starfsemi efld til hagsbótafyrir alla bankamenn.
Stjórn og varastjórn SÍB 1985-1987. Sitjandi frá vinstri: Hrafnhildur B. Sigurðardóttir, 1.
varaformaður, Hinrik Greipsson, formaður, Friðbert Traustason, 2. varaformaður. Stand-
andi frá vinstri: Margrét Brynjólfsdóttir, Yngvi Örn Kristinsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Kjartan Páll Einarsson, Guðrún Hansdóttir, Gunnar Hámundarson og Birna B jarnadóttir. Á
myndina vantar Sigurð Geirsson.