Bankablaðið - 01.12.1985, Síða 4
4
Frá skrifstofunni
A skrifstofu SIB
Á skrifstofu SÍB starfa nú þrír
starfsmenn, þau Kristín Guðbjörns-
dóttir, Guðrún Ástdís Ólafsdóttir og
Helgi Hólm. Samvinna milli þeirra er
bara þó nokkuð góð, enda óhjákvæmi-
legt á ekki stærri vinnustað. Þrátt fyrir
það eru það ákveðin verkefni sem hver
og einn ber sérstaka ábyrgð á.
í grófum dráttum er verkaskipting
sem hér segir:
Á nafnspjaldi Kristínar stendur
skrifstofumaður. Á hennar herðum
hvílir daglegur rekstur skrifstof-
unnar, s.s. bókhald, móttaka félags-
gjalda, greiðsla reikninga, umsjón með
pósti og það er oftast hún sem lyftir
upp símtólinu, þegar einhver hringir
til SÍB. Þess utan sér hún um útgáfu á
lausum stööum, ásamt því að taka þátt í
öðrum útgáfustörfum. Annars er það
svo margt sem Kristín gerir, að allt of
langt yrði upp að telja.
Guðrún Ástdís hefur titilinn
fræðslufulltrúi á sínu nafnspjaldi.
Guðrún hefur starfað lengst hjá SÍB,
þannig að hún er öllum hnútum kunnug
í starfinu. í dag eru það þó fyrst og
fremst fræðslumál sem eru á dagskrá
Jörgen Wulff Krabbenhöft, DSFL, Fritz
Johansen, NBF og Kaj Öhman, forseti
NBU.
Stjórnarfundur í NBU í Reykjavík
Stjórn NBU hittist á fundi hér í
Reykjavík um sama leyti og SÍB hélt
sitt 34. ársþing. Gestirnir notuðu tæki-
færið á meðan þeir dvöldust hér til að
kynnast landi og þjóð. M.a. var farið í
ferð um Suðurnes, var Hitaveita Suð-
urnesja skoðuð og farið í heimsókn í
nýtt útibú Sparisjóðsins í Keflavík.
Einnig var þegið boð hjá FSLÍ og
margir gestanna sátu þing og afmæl
ishátíð SÍB.
hjá henni. Fræðsla og hvers konar
kynningarstarfsemi fer vaxandi hjá
SÍB og óhætt er að segja, að með
Guðrúnu Ástdísi við stjórnvölinn, þá
hefur það starf orðið markvissara og
árangursríkara. Annar meginþáttur í
starfi Guðrúnar er umsjón með trún-
aðarmannakerfi SÍB. Trúnaðarmenn
eru nú um eitt og hálft hundrað, þannig
að í mörg horn er að líta.
Helgi hefur titilinn framkvæmda-
stjóri á sínu nafnspjaldi. Hann kemur
ýmsu í framkvæmd sem þing eða
stjórn SÍB hefur ákveðið. Þar að auki
kemur hann fram fyrir hönd SÍB á
ýmsum vettvangi. Hann er jafnframt
ritstjóri Bankablaðsins og Sambands-
tíðinda. Sitthvað fleira fellur til, ekki
hvað síst að hafa samband við starfs-
mannafélögin og einstaka félaga SÍB
sem þurfa á ýmis konar aðstoð að
halda.
Óhætt er að segja, að allir hafa
starfsmenn SÍB ánægju af sínu starfi
og skemmtilegasti þátturinn er oft hið
beina samband við bankafólk um allt
land. Menn mega vita það, að það er
oftast heitt á könnunni að Tjarnargötu
14 og það eru allir velkomnir í heim-
sókn.
Starfsmenn SÍB. Kristín Guðbjörnsdóttir t.v. Helgi Hólm og Guðrún Ástdís Ólafsdóttir.
FIET-Fréttir
SÍB gekk á síðasta ári í alheimssam-
tök skrifstofu- og tæknistarfsmanna.
Þessi samtök bera nafnið FIET og hafa
þau aðalstöðvar sínar í Genf. í þessum
samtökum er alls um tvær milljónir
bankastarfsmanna. Þar af um 700 þús. í
Evrópu.
Nýlega bættust sjö félagasamtök í
FIET. Félagatala þessara samtaka var
um 80 þús. og eru þau frá Chile, Fíla-
beinsströndinni, Malasíu, Perú, Singa-
pore og tvö frá Mexícó. Þar með er
meðlimaf jöldinn í FIET orðinn rúml. 8
milljónir og skiptist hann þannig:
Svæði
Meðlimafj.
Fj. sambanda
Fj. landa
EURO-FIET
IRO-FIET
ASIA-FIET
AFRO-FIET
4.367.965.
2.166.058.
1.264.643.
381.643.
78 sambönd
68 sambönd
54 sambönd
34 sambönd
24 lönd
31 land
13 lönd
21 land
8.179.737.
Þátttaka SÍB í störfum FIET hefur
ekki verið mikil fram að þessu, þó hafa
verið sóttir nokkrir fundir. FIET hefur
unnið mjög gott starf í þróunarríkj-
unum með því að þjálfa og styðja við
234 sambönd
89 lönd
bakið á verkalýðsfélögum þar. Þá er
mikið gagn hægt að hafa af útgáfu-
starfsemi sambandsins. Á skrifstofu
SÍB geta menn fengið aðgang að
þessum gögnum.