Bankablaðið - 01.12.1985, Side 7
7
IBSS
hvað er
nú það?
IBSS er skammstöfun á Inter-
national Banking Summer School.
Undirritaður var svo heppinn að
vera valinn til þess að taka þátt í 38.
Alþjóðlega sumarskóla bankamanna
13.—26. júlí ‘85 í Cambridge í Englandi.
Frá íslandi eru yfirleitt valdir tveir
þátttakendur og að þessu sinni var
Kristín Rafnar hjá markaðssviði
Landsbanka íslands ásamt mér valin
til fararinnar.
Þátttakendur voru 223 frá 61 þjóð-
landi.
Á hverju ári er valið sérstakt þema
til að f jalla um og þema þessa sumar-
skóla var „Competition & Co-operation
in world banking”. Markmið sumar-
skólans eru einkum tvenns konar, að
fjalla um á faglegan hátt bankavanda-
mál líðandi stundar og kynnast erlend-
um starfsfélögum sínum og auka
þannig þekkingu og skilning hvers
annars.
Skólastarfið fór þannig fram að þátt-
takendum er skipt niður í ca 15 manna
hópa og hver hópur hefur hópstjóra,
sem stjórnar umræðu og heldur saman
niðurstöðum umræðna.
Flesta daga er fenginn fyrirlesari
um eitthvað ákveðið efni, sem snerti
þema skólans og voru t.d. fengnir níu
fyrirlesarar, sem fjölluðu um sam-
keppni og samvinnu í alþjóðlegri
bankastarfsemi og hóparnir byrjuðu
daginn á því að ræða fyrirlestrana,
sem voru prentaðir og dreift til þátt-
takenda 2-3 vikum fyrirfram.
Hópurinn setti síðan á blað helstu
spurningar sem vöknuðu hjá þeim í
umræðunni um fyrirlesturinn og þeg-
ar að afloknum fyrirlestri svaraði
fyrirlesari síðan spurningum hópanna
og urðu oft á tíðum líflegar umræður.
Greinarhöfundur í kröppum dansi.
En sumarskólinn er ekki bara þurrir
fyrirlestrar og umræður. Á kvöldin
voru haldin svokölluð þjóðapartý, og
stundum voru þau tvö á dag.
Þá bauð eitthvert land eða lönd upp á
hressingu af einhverju þjóðlegu maga-
og munnsælgæti, sem skolað var niður
með þjóðlegum drykkjum!
Norðurlandaþjóðirnar buðu upp á
kalt hlaðborð með öllum hugsanlegum
kræsingum að undanskildum hákarli
og harðfisk, en ekki er víst að allir
hefðu fengist inn í matsalinn ef fólk
hefði mætt hákarlslyktinni um leið og
það kom inn.
Reynt var að bjóða upp á einhverja
þjóðlega skemmtun og stóðu Norður-
landaþjóðirnar fyrir „söngvakeppni”
þegar búið var að skola matnum niður
með hæfilegum skammti af ákavíti og
Tuborg öli.
Við Kristín tókum að sjálfsögðu þátt
í þeirri keppni og sungum „Á Sprengi-
sandi” fyrir gestina og vorum lengi vel
talin sigurstrangleg, en sigurinn féll
Nigeriumönnum í skaut og hlutu þeir
að sjálfsögðu ákavítisflösku að
launum.
íþróttakappleikir af ýmsu tagi voru
haldnir ýmist eldsnemma á morgnana
eða í hádeginu og má þar nefna reiptog,
vatnsgöngu, innanhússfótbolta, tennis,
krikket og margt fleira.
Þátttaka í alþjóða sumarskóla banka-
manna er lífsreynsla út af fyrir sig og
vil ég hvetja bankamenn, sem áhuga
hafa á alþjóðabankaviðskiptum til þess
að sækja um, það er vissulega þess
virði.
Hinrik Greipsson.
P.s. Eins og fram kemur í grein minni
var þetta 38. sinn sem alþjóða sumar-
skólinn starfar. Mig langar til þess að
fyrri þátttakendur IBSS sendi Sam-
bandi ísl. bankamanna upplýsingar um
hverjir hafi sótt skólann allt frá upp-
hafi, þannig að SÍB eigi skrá yfir
hverjir hafi farið og hvenær. Hug-
myndin er síðan að kalla hópinn saman
einhverja kvöldstund og rifja upp
gamla daga. Hinrik.