Bankablaðið - 01.12.1985, Page 15

Bankablaðið - 01.12.1985, Page 15
15 Vilbergsdóttir sem er fulltrúi og að- stoðarmaður Guðrúnar Ásgeirsdóttur, aðalféhirðar. Við báðum Sigrúnu að lýsa undirbúningnum eins og hann hefði komið henni fyrir sjónir. Vilborg sagði, að fyrst eftir að vitað var, að útibúið ætti að vera nk. til- raunaútibú, þá hefði verið um töluvert óöryggi og óvissu að ræða. Fólkinu fannst það fá of lítið að vita. Síðan hefði þetta lagast eftir því sem betri upp- lýsingar bárust. Nú ríkti mjög góður andi og allir væru tilbúnir í slaginn. Mjög góðar upplýsingar hefðu komið frá Rb og Bankamannaskólanum og æfingatímarnir í RB væru mjög góðir. Þá hefði líka verið mjög góð námskeið hjá bankanum. Að lokum sagði Vilborg það einnig hjálpa mjög mikið, að í útibúinu væru reglulega haldnir fundir þar sem stjórnendur kæmu saman til að ræða þau mál sem til úr- lausnar væru hverju sinni. Þar gæti hún komið á framfæri því sem hún hefði áhuga á varðandi mál starfs- manna. Við hér á blaðinu viljum nota þetta tækifæri til að óska starfsfólkinu í Breiðholtsútibúinu alls hins besta í þessu mikilvæga hlutverki. Vonandi verður sú reynsla sem þarna fæst notuð skynsamlega í framtíðinni. © Rosengrens Tölvugagnaskápar eru sérstaklega framleiddir til að vemda allar gerðir tölvugagna, svo sem diskettur, segulbönd og seguldiska. Geymið viðkvæmustu og verðmætustu upplýsingar fýrirtækisins í öruggum skáp. Eldtraustir tölvugagnaskápar E. TH. MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUN 10 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 651000 Reiknistofa bankanna Bankablaðið náði tali af Þórði B. Sigurðssyni, forstjóra RB. Okkur lá mest forvitni á að vita, hvernig bein- línuvinnslan myndi virka á starf- semi reiknistofunnar. Þessu svaraði Þórður þannig: Vissulega mun margt í starfsemi RB breytast við beinlínuvæðinguna. í stuttu máli má segja, að starfsemi RB skiptist í þrjá þætti: a) inntak, b) vinnsla, c) úttak. í dag skila bankarnir af sér færslum á tímabilinu kl. 18.00— 21.00. Þar af eru býsnin öll af tékkum, sem eru OCR lesnir hjá RB. Á beinni línu við RB eru bankarnir að skila færslum allan daginn og það flýtir lokaskilatíma til RB stórlega. Þess fer hins vegar ekki að gæta í betri skila- tíma frá RB, fyrr en OCR lesturinn er kominn á beina línu í bönkum og spari- sjóðum. Hvað varðar vinnsluna, þá breytist hún ekki svo mikið, enda er mikill og góður vélakostur hjá RB sem verður enn aukinn. Það er síðan annað með útprentun gagna. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að útprentun gagna er tímafrek og því gjarnan flöskuháls í tölvuvinnslunni. Það er hægt að velta þeim leiðum fyrir sér, að staðsetja prentara úti í bönkunum, eða þá að RB komi sér upp hraðvirkum laserprentara. Þá leið þarf að fara sem bestum árangri skilar miðað við tilkostnað innan skynsam- legra marka. Hvað er þér efst í huga, nú, þegar búið er að tengja fyrsta útibúið við RB? Ég er afskaplega ánægður. Þetta gekk allt mjög vel og fólkið virtist mjög ánægt. Uppgjör gekk vel og voru fjórir af sex gjaldkerum búnir að ljúka uppgjöri fyrir kl. hálf fimm. Það er mér líka ofarlega í huga, að framhaldið megi ganga vel, og að hvergi verði á slakað. Hvað telur þú, að það muni taka langan tíma að þróa og taka í notkun öll afgreiðslukerfin? Ég held að það eigi ekki að taka svo langan tíma úr þessu. Þessi vinna ætti að vera komin verulega áleiðis, þegar tengingum þessa áfanga lýkur. Ég spái því, að í lok næsta árs verði flest allt komið í gagnið. Við þökkum Þórði fyrir samtalið og óskum honum og hans starfsliði góðs gengis með framhaldið.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.