Bankablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 22
22
Tölvuvæðing bankanna
E. Th. Mathiesen hf.:
Við höfum 25 ára reynslu að baki
Fyrirtækið E. TH. MATHIESEN HF.
er mörgum bankamönnum að góðu
kunnugt. Það hefur um 20 ára skeið
haft á boðstólum ýmsan búnað sem
notaður er í bönkum. Nægir í því sam-
bandi að nefna peningaskápa, öryggis-
hurðir og geymsluhólf, skjalaskápa og
afgreiðsluborð, seðla- og mynttalning-
arvélar.
Tíðindamaður Bankablaðsins brá
sér á dögunum að Bæjarhrauni 10 í
Hafnarfirði og hitti að máli Einar
Mathiesen og son hans Árna, en þeir
stýra hinum daglega rekstri fyrir-
tækisins.
Það sem fyrst vekur athygli gests-
ins er hið nýja og glæsilega húsnæði
sem fyrirtækið hefur nýlega tekið í
notkun. Fyrst og fremst vekur athygli
sá snyrtilegi og hreini stíll sem yfir
byggingunni er og hversu allt hús-
næðið innandyra er bjart og vistlegt.
Aðspurðir kváðust þeir feðgar hafa
verið með puttana í flestu sem gert var
og í góðri samvinnu við arkitekt
hússins hafi þeim tekist að ná fram
þeim markmiðum sem þeir höfðu sett
sér, þegar út í byggingu hússins var
farið.
Eftir að hafa óskað til hamingju með
húsnæðið, kom fyrsta spurningin:
Hvað hefur E. Th. Mathiesen upp á að
bjóða sem kemur bankamönnum að
gagni í þeirra starfi, sérstaklega í sam-
bandi við þá tæknibyltingu sem nú á
sér stað í bönkunum?
Fylgihlutir tölva.
Einar varð fyrri til svars: Því er fyrst
til að svara, að við tókum þá ákvörðun á
sínum tíma að vera ekki með tölvur á
okkar snærum. Aftur á móti höfum við
lagt mikla áherslu á ýmsa þá hluti sem
eru nauðsynlegir fylgifiskar tölvanna
og tölvuvinnslu. Ég vil t.d. nefna sér-
hannaða, eldtrausta geymsiuskápa
fyrir tölvugögn s.s. diska, diskettur og
segulbönd. í dag eru hættumörk fyrir
þessi gögn talin liggja við 55 hitagráð-
ur, þannig að það er út í hött að geyma
þau við venjulegar aðstæður á skrif-
stofum, jafnvel ekki í bankahvelfing-
um eru þau fyllilega örugg, því þar
Rósengren tölvuskápur. Breyta má inn-
réttingu eftir þörfum.
NGZ vinnustöð fyrir gjaldkera.
getur hitinn vegna tilfallandi óhappa
auðveldlega farið upp fyrir þessi
mörk.
Sérhönnuð húsgögn.
Næst leggjum við eftirfarandi
spurningu fyrir Árna: Hvaða útbúnað
hafið þið fyrir bankaafgreiðslu, þar
sem stöðugt er verið að vinna með
tölvur? Svar Árna hljóðaði á þessa leið:
Stöðug og mikil notkun tölva hefur
kallað á sérhönnuð húsgögn, s.s. borð
undir tölvur og prentara, sérhannaða
hljóðdeyfa fyrir tölvuprentara og
síðast en ekki síst svokallaðar vinnu-
stöðvar. Þetta eru skrifborðaeiningar,
þar sem gert er ráð fyrir að koma megi
fyrir öllum þeim tækjum sem nota
þarf, s.s. tölvuskjám, takkaborði,
reikni- og ritvélum o.fl. Þessi borð geta
einnig verið afgreiðsluborð í leiðinni.
Allur þessi bunaður er hannaður með
það fyrir auga að skapa gott vinnu-
umhverfi.
Geymsla tölvugagna.
Við báðum Einar að fjalla aðeins
nánar um geymslu tölvugagna. Við
lifum í dag á tölvuöld sagði Einar.
Hundruð smárra og stórra fyrirtækja
eru að koma upp sínum eigin tölvum og
önnur eru að bæta við sig. Opinberar
stofnanir eru stórvirkir notendur og
alls konar upplýsingum er safnað
saman í tölvum eða geymdar sem
tölvugögn. Þessi geymsla fer fram í
formi segulbanda, disketta eða stærri
diska sem geta geymt óhemju magn
upplýsinga án þess að mikið fari fyrir.
En ekki eru öll geymsluvandamál
leyst með með þessu. Á sama hátt og
hin gamla skjalageymsla var í stöðugri
eldhættu, þá eru tölvugögnin sömu-
leiðis stöðugt í hættu, ekki aðeins
vegna hugsanlegs eldsvoða, heldur er
of mikill hiti stórhættulegur. Ef disk-
etta liggur t.d. óvarin gegn sólarljós-
inu, þá er hætt við að hún eyðileggist og
upplýsingarnar sem hún geymir gla-
tist. Nýja tölvu má kaupa ef sú gamla
eyðileggst, en upplýsingarnar sem hún
geymir eru tapaðar komi óhöpp fyrir.
Mynt- og seðlavélar.
Sá þáttur í rekstri E. Th. Mathiesen
hf. sem er örugglega kunnur flestum
bankajnönnum, eru þær seðla- og
mynttalningavélar sem er að finna í
flestum bankaafgreiðslum. Við spyrj-
um þá feðga hvort einhverra nýjunga
sé að vænta á því sviði. Árni kvað það
reyndar vera. Þeir væru nú að kynna í
bönkunum sérstakar samstæður sem
væru ætlaðar þeim sem vinna við
talningu á innleggi sem koma til bank-
anna í næturhólfin. Víða er aðstaða
slæm í bönkunum, en æskilegast væri
að gjaldkerar hefðu góða aðstöðu við
þessa talningu.
Tíðindamaður Bankablaðsins batt
nú bráðan enda á spurningar sínar og
þakkaði þeim feðgum góðar móttökur.
Það er trú okkar, að bankamenn muni
ekki eyða tíma sínum til einskis með
því að líta við að Bæjarhrauni 10 í
Hafnarfirði.