Bankablaðið - 01.12.1985, Síða 24
24
KVENNASMIÐJAN
Dagana 24.—31. október síðastliðinn
var haldin í nýbyggingu Seðlabankans
sýning á störfum kvenna. Tilefni þess-
arar sýningar var eins og flestir vita
lok kvennaáratugar Sameinuðu þjóð-
anna og bar sýningin yfirskriftina
KONAN—VINNAN—KJÖRIN.
Um miðjan september kom saman að
Tjarnargötu 14 lítill hópur kvenna til
að undirbúa þátttöku S.Í.B. í þessari
sýningu. í undirbúningshópnum voru
þær Guðrún Hansdóttir, Edda Svav-
arsdóttir, Kristín Rafnar, Kristín Guð-
mundsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir,
síðar bættust í hópinn Sigríður Jó-
hannesdóttir og Björg Jónsdóttir.
Ákveðið var að reyna að sýna fortíð og
nútíð í bönkum með myndum og tækj-
um. Einnig að lýsa stöðu kvenna og
breytingum á henni síðustu áratugi
með auðlesnum línuritum.
Helgi Hólm:
Til umhugsunar
Framkvæmd kjarasamninga.
Það hendir oft, að starfsmenn leita til
starfsmannahalds í sínum banka með
ýmsar spurningar. Það stafar af því, að
fólk er ekki alltaf öruggt um sín rétt-
indi, eða hefur misskilið eitthvað í
kjarasamningunum. í flestum tilfell-
um fá starfsmenn góðar móttökur, en
of oft slæmar.
Því miður hafa sumir þetta eins og í
villta vestrinu — segja fyrst nei, og
skoða síðan málin á eftir.
Því ekki að hafa það fyrir reglu, að
taka ávallt á móti samstarfsfólki sínu á
ljúfmannlegan máta. Það er örugglega
best fyrir alla aðila.
Ég ætla að nefna þrjú atriði úr kjara-
samningunum sem oft er deilt um:
Fæðingarorlof.
Fæðingarorlofið er stöðugt verið að
vandræðast með. Yfirmenn þeirra
kvenna sem fara í fæðingarorlof ættu
að kynna sér vel þessar reglur. Þeir
eiga t.d. að gefa starfsmannahaldinu
reglulega upp alla yfirvinnutíma, svo
eitthvað sé nefnt. Hér vantar mikið á.
Hlutastörf.
Við útreikninga kaups vlhlutastarfa,
sérstaklega þegar um óreglulega
vinnu er að ræða. Það hefur m.a. komið
í ljós, að þessir starfsmenn hafa þurft
að vinna upp frídaga.
Fastráðning/ráðningarsamningur.
Fastráðning er oft dregin á langinn
og ekki er alltaf gengið frá ráðningar-
samningi.
Þar sem bankarnir eru nú sem óðast
að tæknivæðast, þá er ekki úr vegi að
skoða aðeins kjarasamninginn í því
tilliti.
Samvinna um skipulags- og
tæknimál.
Hvar var bókin góða, kjarasamning-
urinn, þegar bankarnir skipuðu í hóp-
inn sem átti að undirbúa hraðbanka-
verkefnið. Gleymdu menn að lesa grein
12.1.1. og 12.1.2. Halda menn virkilega,
að það að setja upp 10 hraðbanka víðs
vegar um bæinn hafi ekki umtalsverð
áhrif á störf bankamanna. Ég held að
stjórnendur bankanna verði að gera
sér grein fyrir því, að það verður að
miklu leyti undir starfsfólkinu komið,
hvernig árangri allar þessar tækni-
breytingar skila.