Bankablaðið - 01.12.1985, Side 29
íþróttir
29
Sigurlið Landsbankans í kvennahandboltanum og
hið harðsnúna körfuboltalið Iðnaðarbanka.
Iþróttahátíð SlBvegna
50 ára afmælis
Meðal þess sem stjórn SÍB tókst á
hendur í sambandi við 50 ára afmælið,
var að efna til veglegra íþróttamóta í
ýmsum vinsælum greinum. íþrótta-
nefnd SÍB hafði allan veg og vanda af
heildarskipulagningu, en auk þess
störfuðu vaskir hópar bankamanna við
hinar einstöku greinar. íþróttanefnd-
ina skipa eftirtaldir: Aðalsteinn Örn-
ólfsson, Birgir Ástráðsson, Anna
Vignir, Gyða Úlfarsdóttir og Sólmund-
ur Kristjánsson. Af hálfu skrifstofu
SÍB starfaði Guðrún Ástdís Ólafsdóttir
með nefndinni.
Keppt var í eftirtöldum greinum:
Bridge, skák, knattspyrnu, handknatt-
leik, körfuknattleik, golfi og blaki.
Var það í fyrsta skipti sem SÍB gekkst
fyrir keppni í þremur síðasttöldu
greinunum. Þátttaka varð mjög mikil í
öllum greinum og skal nú lítilsháttar
gert grein fyrir hverri grein fyrir sig.
Knattspyrna.
20 lið karla og kvenna mættu til keppni
og fór hún fram á tveimur helgum og
var keppt í íþróttahúsunum að Varmá í
Mosfellssveit og í Digranesi í Kópa-
vogi. Úrslit:
Konur: Samvinnubankinn
Karlar: Landsbankinn A
Knattspy rnulið Landsbankans.
Handknattleikur.
í handknattleiknum mættu alls 8 lið til
keppni og sigruðu lið Landsbanka í
báðum flokkum.
Körfuknattleikur.
í körfunni mættu alls 9 lið og var hart
barist um sigurinn. Sigraði lið Lands-
bankans eftir geysiharða baráttu við
lið Iðnaðarbankans.
Blak.
Hér mættu 6 lið til keppni og mátti í
mörgum liðunum sjá fagmannlega
blakað. Þegar upp var staðið hafði lið
Þessar fræknu stulkur frá Samvinnubankanum sigruðu í knattspyrnu kvenna.