Bankablaðið - 01.12.1985, Page 30
30
Seölabankans sigrað og komu þeir þar
með í veg fyrir, að Landsþankinn hirti
öll sigurlaun í karlaflokkunum. í körfu
og blaki voru engin kvennalið.
Bridge.
Geysimikil þátttaka var í þessu fyrsta
tvímennings-bridgemóti SÍB í langan
tíma. Spilað var í tveimur riðlum og
urðu sigurvegarar sem hér segir:
A riðill: 1. sæti: Bragi Björnsson og
Þórður Sigfússon. 2. sæti: Kristín
Þórðardóttir og Sigríður Blöndal.
B riðill 1. sæti: Þorsteinn Laufdal og
Þröstur Sveinsson. 2. sæti: Jón Frið-
steinsson og Runólfur Sigurðsson.
Golf.
Þann 8. júní var keppt í golfi á golfvelli
Akureyrar og voru samtals 45 kepp-
endur mættir til leiks. Golfklúbbur
Akureyrar sá um framkvæmd mótsins
á höfðinglegan hátt og var það skoðun
manna að nauðsynlegt væri að halda
slíkt mót árlega. Mætti þá halda það til
skiptis á ýmsum stöðum á landinu.
Hvorki skortir leikmenn úr röðum
bankamanna né heldur golfvelli.
Hér sést hluti þátttakenda í bridge. Fyrir miðri mynd sjást Jón Friðsteinsson og Sveinn
Sveinsson.
Það var ósvikið f jör hjá yngstu kynslóðinni þegar Halli og Laddi komu i heimsókn.
Úrslit:
Án forgjafar: 1. Björn Axelsson 76 högg
2. GunnarSólnes 82 högg
3. RúnarKjærbo 83 högg
Með forgjöf: 1. Indriði Jóhannsson 69 högg
2. JóhannesJónsson 74 högg
3. HelgiHólm 76 högg
Nýliðaflokkur: 1. Guðmundur Lárusson 76 nettó
2. Ragnar Guðjónsson 106 nettó
3. Hermann Haraldsson 106 nettó
Ragnar vann umspil um 2. sæti.
Skák.
Skákmótið fór frarn nú í nóvember s.l.
og féll þá saman við hið venjulega
haustmót SÍB. Úrslit urðu þessi:
1. Björn Þorsteinsson 7,5 v.
2. Jóhann Ö. Sigurj. 7,5 v.
3. Bragi Kristjánsson 7 v.
Fjölskyldu-
hátíð
í sambandi við íþróttakeppnina efndi
íþróttanefndin til Fjölskylduhátíðar í
íþróttahúsinu að Digranesi þann 31.
mars. Ýmislegt var til skemmtunar,
m.a. sýndu Halli og Laddi kúnstir
sínar, fimleikaflokkur frá KR sýndi og
Hornaflokkur Kópavogs lék milli at-
riða. Margir sóttu þessa hátíð og var
athyglisvert hve margir mættu með
yngstu kynslóðina með sér.
Óhætt er að segja að afmælismótið
hafi heppnast framar öllum vonum.
íþróttanefndin vill hér með þakka
þeim mikla fjölda sem lagði hönd á
plóginn við framkvæmd mótsins.