Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 28
JU fd
JAM-SESSIONIR
hafa verið haldnar fjórar, þegar þetta
er ritað, á vegum Jazzblaðsins. Þær
hafa allar verið í Breiðfirðingabúð og
hefur húsið jafnan verið fullskipað
áheyrendum. Flest allir jazzleikarar
landsins hafa komið þarna fram. Laug-
ardaginn 5. nóv lék til dæmis „jam-
hljómsveit“, sem eingöngu var skipuð
utanbæjarmönnum, að undanskyldum
bassaleikaranum, Pétri Urbandschitch,
syni Dr. Victor Urbandschitch, og fékk
hún ágætis viðtökur. Ekki skal farið út
í, hver leikið hefur bezt, eða því um
líkt, á sessionum þessum, en þess má
geta, að Steinþór Steingrímsson hefur
hlotið langmest lof frá áheyrendum, og
var það fyrir einleik hans á píanó, laug-
ardaginn 5. nóvember. Reynt verður að
halda þessum sessionum áfram í vetur
og verða þær annan hvern laugardag.
Tvær hljómsveitir hafa þegar leikið
í útvarpið í vetur. Hljómsveit Kristjáns
Kristjánssonar í fyrra sinnið og Björns
R. Einarssonar í hið síðara. Leikið var
fyrst inn á plötur, sem hefur þann
ókost í för með sér, að músíkin er
óhrein og loðin. Halda mætti, að það
væri eitthvað ofar mannlegum skilningi,
sem veldur því, að útvarpið með alla
sína magnaraverði, já, og meira að
segja yfirmagnaravörð, á svona slæmt
með að taka upp á plötur. Tækin, sem
þeir hafa, eiga að vera fyrsta flokks,
hafa þeir sjálfir sagt, svo að ekki ætti
það að standa í veginum. Útvarpssalur-
inn er reyndar í alla staði mjög óheppi-
legur til slíkra hluta, meira að segja
mjög óheppilegur til að vera útvarps-
salur, en það er búið að endurbæta hann
oft og mörgum sinnum og leggja til
þess þúsundir króna, svo að einhver
árangur ætti að hafa orðið að.
Sennilega lagast þetta ekki fyrr en
þeir ná sér í mann, sem hefur vit á
plötuupptöku, og glápir ekki út í loftið
eins og fáviti, þegar hann er spurður
að, hvort rhythminn sé ekki of sterkur,
eða annað því um líkt. Lærður útvarps-
virki er áreiðanlega ekki maður í starf-
ið, jafnvel þó hann hljóti titilinn magn-
aravörður.
Félag íslenzkra hljóðfæraleikara hef-
ur opnað ráðningarskrifstofu. Hún ætti
að koma að miklu gagni fyrir hljóð-
færaleikara og eins þá, er á hljóðfæra-
leikurum þurfa að halda. Hver hefur
ekki lent í því að hringja um allan bæ
í leit að mönnum til að spila og enga
fengið, og frétt svo daginn eftir að
nóg hafi verið um menn, sem bara ekki
náðist til. Skrifstofan hefur aðeins ver-
ið opin í nokkra daga, þegar þetta er
ritað, en hefur þegar annast ráðningar
í nokkra staði. Hún tekur enga greiðslu
fyrir starf sitt, að því undanskyldu, að
meðlimir F. í. H. verða að hafa greitt
ársgjáld sitt til félagsins og utanfélags-
menn verða að greiða 40,00 krónur á
mánuði, sem er hið fasta gjald manna
utan félagsins, er hljóðfæraleik annast.
28 ^azzíUií