Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 22
Louis Armstrong
í hljómleikaferð
Þann fyrsta október síðastliðinn lagði
átta manna hópur af stað frá New
York til Evrópu. Þetta var hinn heims-
frægi jazzleikari Louis Armstrong með
hljómsveit sína, með þeim Earl Hines
píanóleikara, Barney Bigard klarinet-
leikara, Jack Teagarden trombónleikara,
Cozy Cole trommuleikara og Arvell
Shaw bassaleikara. Auk þess var söng-
konan Velma Middleton með í förinni
og einnig Lucille, eiginkona Armstrong.
Á flugvellinum í Stokkhólmi tóku
sænskir jazzleikarar á móti þeim með’
hljóðfæraslætti og frá þeim degi hafa;
evrópiskir jazzunnendur borið þau á
höndum sér, hvar sem þau hafa komið.
Hljómleikar hafa verið haldnir í
Stokkhólmi, Gautaborg, Kaupmanna-
höfn, Antwerpen í Hollandi og víðar
og hvarvetna hafa, ekki einungis tón-
listarblöðin, heldur einnig dagblöðin
keppst um að hæla þessum fámenna
hópi. Hver einasti maður í hljómsveit-
inni er snillingur á sitt hljóðfæri. Beztu
dómana fær þó píanóleikarinn Earl
Hines, jafnvel klassískir gagnrýnendur
segja, að píanóleikur hans sé „hápunkt-
ur fullkomnunarinnar". Sænsku blöðin
skrifuðu ekki um annað en hljómsveit-
ina fyrstu dagana í október og október-
hefti tónlistarblaðsins „Estrad" var til-
einkað Armstrong.
Teagarden og Middleton.