Jazzblaðið - 01.04.1951, Side 18
• t(it einu í annal •
Útsölumenn
í síðasta hefti er frá því skýrt, að út-
gefendur blaðsins óskuðu eftir útsölu-
mönnum fyrir blaðið úti á landi. Yið
þökkum þeim, er þegar bafa svarað
þessari málaleitan, og eru útsölumenn
nú komnir fyrir blaðið í Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum, Keflavík, Vík, Norð-
firði Akranesi, Akureyri og ísafirði.
Enn vantar nokkuð á, og viljum við nú
beina þeim tilmælum til þeirra, er búa
í öðrum kaupstöðum eða bæjum, að at-
huga hvort þeir vildu ekki gerast út-
sölumenn fyrir blaðið. Áður en næsta
hefti kemur út, verða útsölumenn að
vera komnir um allt land og verður þá
jafnframt birtur listi yfir nöfn þeirra,
svo að kaupendur blaðsins á viðkomandi
stöðum geti snúið sér til þeirra.
Bréf.
Viltu gjöra svo vel og segja okkur
eitthvað um harmonikuleikarann Helga
Sesselíusson, sem lék í útvarpinu 17.
des. 1949. Hefur hann leikið lengi á
harmoniku? Leikur hann í einhverri
hljómsveit? Ef svo er, þá hvaða? Gerir
hann ekkert annað en að leika? Væri
hægt að fá mynd birta af honum?
Þrjár fórvitnar.
SVAR: Enginn með þessu nafni leik-
ur í hljómsveit í Reykjavík og hefur
ekki tekizt að grafa upp við hvern er
átt. En fyrst þið nefnið ykkur „forvitn-
ar“, þá hefðuð þið átt að senda spurn-
ingar ykkar fyrr, þ. e. a. s. um það leyti,
sem maðurinn lék í útvarpinu, og hefði
þá sennilega verið auðveldara að leysa
úr þessu.
Nœsta hefti
í síðasta hefti var þess getið, að nýr
greinarflokkur mundi byrja í þessu
blaði, þ. e. a. s. umsögn um hljómsveit-
irnar. Mér þykir leitt að verða að til-
kynna, að fyrsta greinin getur ekki kom-
ið fyrr en í næsta hefti. Var gert allt,
sem hægt var til að hafa greinina í þessu
hefti, en óviðráðanlegar orsakir höml-
uðu því. Næsta hefti verður maí-júní
hefti og verður reynt að koma því út
fyrstu vikuna í júní. í því hefti verður
að sjálfsögðu gagnrýni um „kosninga"-
hljómleika Jazzblaðsins, sem væntanlega
verða afstaðnir, þegar blað þetta kemur
út. — Ennfremur verður í næsta hefti
ítarlegt viðtal við söngkonuna Sigrúnu
Jónsdóttur, og ennfremur grein um
ameríska guítarleikarann Tal Farlow,
sem sagt er, að sé mesta efni á guítar
sem fram hefur komið síðan Charlie
Christian féll frá. Ritstj.
Árgjaldiö.
Þeir áskrifendur blaðsins, sem enn eíga
ógreitt árgjald siðasta árgangs, kr. 40,00, eru
beðnlr um að greiða hið fyrsta. — Afgreiðsla
blaðsins er I Ránargötu 34, og ennfremur er
hægt að greiða árgjaldið í Hljóðfærahúsinu,
Bankastræti 7, Reykjavík. Útg.
HLJÓMSV. CARL-HENRIK NORIN
FRAMHALD af bls. 9.
Marsh í Lennie Tristano sextettinum
og eins og þið getið séð er þetta ekki illa
valið.
Eg held að hljómsveit þessi eigi eftir
að gera mikið á komandi árum og eigið
þið sennilega eftir að heyra meira frá
henni í framtíðinni.