Morgunblaðið - 14.12.2008, Side 1
1 4. D E S E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
343. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Kletturinn
&prakkarinn
TENGSL:MÆÐGININ ANNA
SIGRÍÐUR OG GUNNAR
MYNDAALBÚMIÐ:
SIGURÐUR
FLOSASON
BLÁSIÐ FRÁ
BLAUTU
BARNS-
BEINI PRJÓNA peysur,vettlinga og bangsa.
Syninum tekst
ekki að koma
prestinum á Vespu
SUNNUDAGUR
Að tómum kofunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppbygging Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Norðurbakka í Hafnarfirði. Hjá Hafnarfjarðarbæ fengust þær upplýsingar að megnið af húsunum yrði
klárað en misjafnlega hefur gengið að selja íbúðirnar, einkum þeirra verktaka sem hófu framkvæmdir síðast en ýmsir aðilar koma að verkinu | 34.
Margar íbúðir standa auðar um þessar mundir Verður björgunarhringnum kastað?
FANGS ER VON . . .»30KAPÍTALISMI UNDIR JÖKLI»24SAMFÉLAGSMÁL»22
Paul Hawken, rithöfundur, athafnamaður og umhverfisverndarsinni,
varar Íslendinga við fjárfestingum í áliðnaði. „Fólkið sem segir Ís-
land þurfa að hugsa um umhverfið en þarf líka að fá störf núna í
áliðnaði er að horfa til lausna fortíðarinnar. Ég held því fram að
umhverfið sé hin hagnýta framtíðarfjárfesting en álið sé áhættu-
fjárfesting.“
Hawken hvetur Íslendinga til að nota græna orku landsins í eitt-
hvað annað. „Íslenskur áliðnaður felur það í sér að nota græna
orku, sem er sjaldgæf orka í heiminum, og nota hana til að nið-
urgreiða starfsemi stórra alþjóðafyrirtækja næstu 30-40 árin. Af
hverju í ósköpunum ætti Ísland að vilja selja þessa orku í langtíma-
samningi þegar eftirspurnin eftir grænni orku á aðeins eftir að
aukast? Af hverju ætti Ísland að leggja framtíð sína undir það að
búa til bjórdósir? Þetta er ekki fjárfesting sem að mínu áliti á eftir að
skapa öryggi fyrir Íslendinga,“ segir Hawken en hann er staddur hér á
landi í boði Bjarkar Guðmundsdóttur og vefjarins Nattura.info.
Álið er áhættufjárfesting
„Skuldug fyrirtækin renna skuldlaus til
fyrri eigenda sinna. Það er smurt ofan í
þá. Menn sem skulda þúsund milljarða
leysa þetta til sín, eins og að drekka
vatn. Þetta er kerfið sem þau ætla að
koma á svo allt geti haldist í gamla
horfinu. Þess vegna er sama fólkið í
sömu stöðunum, á sömu stöðunum. En
við sitjum uppi með, sumir segja tíu
milljónir, aðrir tuttugu milljóna króna
skuld á hvert mannsbarn. Hér eru
heimildir misvísandi, eins og í öllu
öðru,“ skrifar Einar Már Guðmundsson
rithöfundur í grein í blaðinu í dag.
Skuldlaus til
fyrri eigenda
Hefur Roy Keane
kannski ekki skapgerð til
að starfa sem
knatt-
spyrnustjóri?
Hann er alla
vega farinn frá
Sunderland.
Keane er fulltrúi
gamalla tíma, kemst
óstuddur gegnum lífið
án hárgels og húðflúrs
og hefur ímugust á
hvers konar prjáli.
Fékk nóg af
glysi og tildri
DANIEL Gros, framkvæmdastjóri
Center for European Policy Studies,
mælir með því að Íslendingar taki
upp evru einhliða og segir að það
megi framkvæma á skömmum tíma.
Hann segir ESB ekki geta beitt
refsiaðgerðum, þar sem slíkt sam-
ræmist ekki EES-samningnum,
enda banni hann ekki gjald-
miðlaskipti. Hann útilokar ekki að
setja þurfi einhverjar hömlur til að
koma í veg fyrir áhlaup á bankana.
„En það verður ekki sama fangelsið
og nú.“
Það taki tíma að vekja traust á
bönkunum, en það sé þó aðeins úr-
lausnarefni, og ef erlendir bankar
eignist hlut í íslensku bönkunum
aukist traust á fjármálamarkaðnum.
Það styrki samningsstöðu Íslend-
inga gagnvart öðrum þjóðum að
leysa gjaldmiðilskreppuna fljótt, auk
þess sem mikilvægt sé að losna við
að nýta lán frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum til að verja krónuna – það
megi alls ekki. pebl@mbl.is | 16
Taki upp
evruna
einhliða
Leysa þarf gjald-
eyriskreppuna fljótt