Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 6

Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 6
6 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is H ann var áður í fulltrúadeildinni í Washington og þótti ekki neinn afburða þingmaður en var vel lið- inn og sigraði í ríkisstjórakosning- unum 2002 með því að lofa fólki breytingum. Heiðarlegri stjórnsýslu. Hann virtist meina það sem hann sagði, var rís- andi stjarna, sögðu menn og kunni á kjós- endur. Forverinn, repúblikaninn George Ryan sætti þá rannsókn vegna ásakana um alls kyns svik og mútubrask, hann sit- ur nú í fangelsi. En Rod Blagojevich, sem ól með sér drauma um að verða forseti í fyllingu tím- ans, brást þessum væntingum. Hann varð heimsfrægur á þriðjudag þegar hann var færður í handjárnum fyrir dómara. Liðsmenn alríkislögreglunnar, FBI, höfðu gögn undir höndum sem þóttu sanna á hann ým- is brot, þ. á m. að hann hefði ætlað sér að græða fé á lögum Illinois um að ríkisstjóri skipaði í sæti í öldungadeildinni í Washington ef annað eða bæði losnuðu fyrir tímann. Sæti Bar- acks Obama er að sjálfsögðu laust, hann fer í nýja vinnu 20. janúar – en Blagojevich hugðist láta bjóða í lausa sætið. Takmarkalaus ósvífni Blagojevich kom fyrir dómara en var þegar látinn laus gegn tryggingu og heldur áfram að mæta í vinnuna i höfuðstað Ill- inois, Springfield, eins og ekk- ert hafi í skorist. Nánir félagar og vinir Bla- gojevich eiga vart orð og jafn- vel harðir gagnrýnendur eru furðu lostnir yfir þeirri dæmalausu ósvífni sem virð- ist hafa einkennt stjórn- arstíl hans. Ef marka má gögn FBI er Blagojevich veruleikafirrtur, fullur af sjálfsdýrkun og hefnd- arþorsta, orðbragðið er mengað af grófum blótsyrð- um. „Ég er ekki viss um að hann sé alveg í lagi,“ segir Mike Jacobs, sem situr í öld- ungadeild Illinois fyrir demó- krata og er gamall vinur rík- isstjórans. „Það er eins og hann hafi viljað mana FBI- mennina til að koma og góma sig.“ Það sem mörgum kom á óvart var að enda þótt Blagoj- evich vissi að FBI væri að rannsaka mál hans, væri að fara yfir allar vísbendingar um sekt, virtist hann ekki hirða um að reyna að fara varlega í símtölum eða annars staðar þar sem búast mátti við hlerunum. „Menn skyldu ætla að við þessar aðstæður væri dregið úr tilraunum til að kúga fé út úr mönnum gegn fyrirgreiðslu,“ sagði Patrick J. Fitzgerald, saksóknari í Chicago, á blaðamanna- fundi. „Öðru nær, þeir gengu harðar fram. Bla- gojevich ríkisstjóri og fleiri unnu eins og óðir menn að því að ná sem mestu fé af verktökum, hrista skildingana úr vösum þeirra, láta þá blæða, áður en árið yrði á enda.“ Elvis-aðdáandi og verkamannssonur Blagojevich, sem er tæplega 52 ára, var lítt þekktur þegar hann vann 2002, einna helst að fólk minntist þess hvað hann hafði yfirþyrm- andi mikla ást á Elvis Presley og hvað hármakkinn dökki var tilkomu- mikill. Og loks má geta þess að sumir af fréttamönnum sjón- varpsstöðva voru ekki strax með það á hreinu hvernig bera ætti framandlegt ættarnafnið fram. Hvernig maður er þessi óvenjulegi ríkisstjóri? Hann er sonur serbnesk-ættaðs verkamanns í stálverksmiðju og virtist vera ærlegur, kom vel fyrir á sjónvarpsskjánum. En snemma fóru að ganga sögur af gegndarlausri spillingu við mannaráðningar og á fleiri sviðum. Orðspor Blagojevich beið mikinn hnekki í réttarhöldum í haust yfir Antoin „Tony“ Rezko, kaupsýslumanni og alræmdum braskara sem hafði komið sér innundir hjá mörgum áhrifa- mönnum, bæði demókrötum og repúblikönum, með því að safna fé í kosningasjóði þeirra og fleiri vinarbrögðum. Rezko var dæmdur sekur um svik og fjárkúgun, hann hafði meðal annars haft fé af verktökum með því að hóta þeim að stjórnvöld myndu gera þeim skráveifu ef þeir borguðu honum ekki mútur. Nafn Blagojevich, sem átti margvísleg sam- skipti við Rezko, kom margoft upp í þessum málaferlum og stuðningur við hann hrapaði í 13% í skoðanakönnunum síðustu mánuði. Margir óttast að einhverjir aðstoðarmenn Obama með rætur í Illinois hafi haft of mikil samskipti við Blagojevich. Hver átti að fá sætið sem losnar í öldungadeildinni vegna kjörs Obama? Hver er frambjóðandi nr. 1? Í gögnum alríkislögreglunnar, FBI, um mál ríkisstjórans er oft minnst á „frambjóðanda nr. 1“ í sætið í öld- ungadeildinni. Lýsing Bla- gojevich á þessum ónafn- greinda frambjóðanda á að sögn AP- fréttastofunnar mjög vel við Va- lerie Jarrett, einn af nán- ustu fjár- málaráð- gjöfum Obama um margra ára skeið. Að vísu nefnir ríkisstjórinn háa fjárhæð sem hann vill fá fyrir að velja hana. En í samtölum sem liðsmaður FBI tók upp með leynd seg- ist Blagojevich reiðubúinn að skipa Jarrett gegn því að hann fái sjálfur vel launað starf hjá öflugri alríkisstofnun er nefnist Change to Win. Obama sagði á fréttamanna- fundi á fimmtudag að verið væri að safna upplýsingum um hugsanleg samskipti fólks í valdatökunefnd hans og skrifstofu ríkisstjórans. Yrðu þær gerðar opinberar á næstu dögum. Nú spyrja menn hvort sóðaskapurinn frá Ill- inois muni á endanum berast alla leið inn fyrir tröppur Hvíta hússins. Með puttana í bauknum  Demókratinn Rod Blagojevich er síðasta dæmið um gjörspillta stjórnmálamenn í Illinois  Á undan honum var við völd repúblikaninn George Ryan sem fór í steininn 2006 tengja við Chi- cago og Illinois. Dan Rosten- kowski, valdamikill fulltrúadeild- arþingmaður fyrir kjördæmi í Chicago í 36 ár, var árið 1996 dæmdur í 17 mánaða fangelsi fyrir misnotkun á almannafé. George Ryan, fyrrverandi rík- isstjóri, var árið 2006 dæmd- ur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir margvísleg afbrot, þ.á m. fjársvik og samsæri. Einn af nánustu samstarfs- an á tíunda ára- tugnum vantaði eitthvað þangað til Obama kom, sá og sigraði. Virðingu. Chicago var lengi alræmd fyrir heldur soralega pólitík. Og þekktasti sonurinn var lengi glæpamanna- foringinn Al Capone sem nýtti sér áfengisbannið snemma á 20. öld til að græða á tá og fingri og stút- aði venjulega keppinautum sín- um. Spilling er hugtak sem margir mönnum núverandi borgarstjóra Chicago, Richards M. Daleys, Ro- bert A. Sorich, var fyrir tveimur árum fundinn sekur um fjársvik. Og nú hefur mál Rods Blagojevich ríkisstjóra aftur gert íbúa Illinois aðhlátursefni um landið allt. „Við vorum rétt búin að losna við gömlu staðalímyndirnar í Chi- cago,“ segir Jeff Makowski, 47 ára gamall húsamálari, í samtali við The International Herald Tribune. „En nú eru brandararnir aftur komnir á kreik. Sama hvert maður fer, alltaf er það „ó, eruð þið frá Chicago“ og svo hlæja þeir bara að okkur.“ kjon@mbl.is Vindaborgin við Michigan-vatn biður um logn ÞRIÐJA stærsta borg Bandaríkj- anna og fjórða helsta viðskipta- miðstöð heims hefur lengi átt við ímyndarvanda að stríða, þess vegna var fögnuðurinn mikil þegar sonurinn Barack Obama sigraði í byrjun nóvember. Chicago hafði loks alið stjórnmálaleiðtoga í heimsklassa sem hafði ekki gerst í sambandsríkinu Illinois síðan Abraham Lincoln var og hét. Þótt Bráðavaktin eigi sínar heimaslóðir í Chicago, Vindaborg- inni miklu við Chicagofljót og Mic- higanvatn, þótt Jordan og Pippen og fleiri körfuboltasnillingar Chi- cago Bulls hafi gert garðinn fræg- Borgarstjóri Chicago, Richard M.Daley, hefur gegnt embætti í 19 ár og gæti náð að slá met föðurins, Richards J. Daleys (á myndinni), sem ríkti 1955-1976. Faðirinn var landsfrægur fyrir mismæli, „þið átt- uð að birta það sem hann meinti, ekki það sem hann sagði“, eins og bálreiður fréttafulltrúi sagði. En Da- ley vissi sínu viti og byggði upp víð- fræga kosningavél. Hann þótti dug- legur en harðjaxl, einn þingmaður demókrata sakaði Daley um „Ges- tapo-aðferðir“ gegn mótmælendum 1968. Þegar Kennedy vann Nixon í æsi- spennandi forsetakosningum 1960 fengu sögusagnir um kosn- ingasvindl í Illinois þegar vængi, ekki síst vegna spillingarorðsins sem fór af Daley og mönnum hans. En ekkert sannaðist. Ef til vill fylgdi Daley ráðum Hueys P. Longs, rík- isstjóra í Louisiana og síðar öld- ungadeildarþingmanns, sem aldrei skrifaði fyrirmæli á blað að óþörfu, hvíslaði fyrirmælum að und- irmönnum fremur en að tala upp- hátt og lét helst bendingar nægja. Hinn risavaxni William MarcyTweed, „Boss Tweed“, var á 19. öld höfuðpaurinn í demókrataklíku í New York er nefndist Tammany Hall og réð yfir stéttarfélögunum. Klíkan krækti sér í borgarstjórastól 1854 og þrátt fyrir ýmis áföll hélt hún völdunum fram yfir 1930. Teikningin sýnir lögregluþjón handtaka smákrimma en gjóta um leið augunum á sjálft yfirvaldið, Boss Tweed. En Tweed fór offari í græðginni og dó örsnauður í fang- elsi 1878. Talið er að klíkan hafi stol- ið eða klófest með vafasömum að- ferðum, einkum í sambandi við útboð á verkum, allt að 200 millj- ónir dollara úr borgarsjóði á árunum 1865-181. Umreiknað á nútímagengi er fjárhæðin tugmilljarðar dollara. Næsti forseti, Barack Obama, eröldungadeildarþingmaður frá Illinois og fetaði sín fyrstu skref í stjórnmálum í Chicago Daley- feðganna. En verður Obama bendl- aður við Blagojevich? Tæplega, en margir rifja nú upp að spilltur kaup- sýslumaður, Tony Rezko (t.h.), seldi eitt sinn Obama byggingarlóð á und- irverði. Rezko var nýverið dæmdur sekur um svindl og misnotkun á að- stöðu sinni en hann vann mikið með Blagojevich. Rezko, sem studdi fyrstu kosningabaráttu Obama með fé, átti í fasteignabraski með eig- inkonu ríkisstjórans gráðuga. Fyrirrennarar Kátur Blagojevich segir í einni af upptökum FBI að „frambjóðandi nr. 5“ í sæti Obama bjóði sér 500 þúsund dollara. Talið er að um sé að ræða Jesse Jackson Jr., son og alnafna blökkumannaleiðtogans þekkta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.