Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 10

Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Árangur okkar byggist fyrst og fremst á því að þekkja vel landið og vera í góðu sambandi við veð- urguðina. Ólafur Eggertsson, korn- bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, en sl. tvö ár hafa verið af- burðagóð til kornræktar að hans sögn. En svo virðist sem ég geti ekki samið glaðleg lög, og hef ég þó gert margar tilraunir til þess! Elín Ey, átján ára tónlistarkona, sem hefur gefið út sína fyrstu plötu. Traust fólks á bankakerfi Ekvadors var endurreist nánast um leið og doll- aravæðingin var yfirstaðin. Alonso Pérez-Kakabadse, efnahgasráð- gjafi forseta Ekvadors og fyrrv. aðstoð- arefnahagsmálaráðherra landsins, en árið 2000 var Bandaríkjadalurinn tekinn þar upp einhliða í neyð. En það er alveg hægt að treysta á Fær- eyinga þessa dagana – af hverju ekki að senda þá út til að syngja fyrir Íslands hönd? Færeying- urinn Jógvan Hansen, sem ætlar að taka þátt í undankeppni Evróvisjón í Sjónvarpinu 31. janúar. Við höfum valið dugmikla einstaklinga með for- ystuhæfileika því við telj- um að slíkir einstaklingar séu best til þess fallnir að leiða þjóðina til framfara. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar versl- unar, en það, Viðskiptablaðið og Markaður- inn hafa valið viðskiptamann ársins und- anfarin ár. Meðal þeirra hafa verið Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Thor Björgólfsson, Björgólfur Guðmundsson, Heiðar Már Sigurðsson og Sigurður Ein- arsson í Kaupþingi. Og t.d. Hannes Smára- son hjá Markaðnum 2006. Ég hvet hæstvirtan seðlabankastjóra til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður við- skiptanefndar, vísaði til þess að Davíð Oddsson segðist búa yfir upplýsingum um hvers vegna Bretar beittu hryðjuverkalög- um gegn Landsbankanum og orða seðla- bankastjóra um að hann hefði tjáð ráð- herrum að 0% líkur væru á að bankarnir myndu lifa af. Mér þykir þetta mjög leiðinlegt. Sigurbjörn Adam Baldvinsson, sem bjó til dánartilkynningu um sprelllifandi sam- fanga sinn, en kveðst ekki hafa ætl- að hana til birtingar í Morg- unblaðinu eins og raunin varð og segir að sér sé hulin ráðgáta með hvaða hætti það varð. Ummæli ’ ÞAÐ hefur ekki farið neitt sérstaklega mikið fyr- ir fréttaflutningi af eyðslu forsetaembættisins, þótt Stöð 2 og vísir.is hafi greint frá því um síð- ustu helgi að símreikningur forsetaembættisins fyrir fyrstu tíu mánuði ársins hafi numið 5,7 millj- ónum króna. Halló! Halló! Bessastaðir! Er á tali hjá ykkur?! Þurfið þið ekki að komast í talsamband við þjóð- ina, svona undir lok ársins 2008 – ársins sem bankahrun varð á Íslandi, kaupmáttur lands- manna hrundi, krónan féll, fjöldaatvinnuleysi tók við og fjöldagjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja blasir við? Hvað er þjóðhöfðingi örþjóðar í Norður- Atlantshafi að hugsa þegar hann og embætt- ismenn hans tala í síma fyrir um 19 þúsund krón- ur á dag, alla sjö daga vikunnar? Hvað er sami þjóðhöfðingi að hugsa þegar hann upp fyrir haus í eigin hégómleika og sýnd- armennsku lætur forsetaembættið punga út 1,6 milljónum króna á tíu mánuðum fyrir myndatök- ur af sér og erlendum sendiherrum? Eru þessar myndatökur hugsaðar fyrir fjölskyldualbúm for- setans, eða hvað?! Eða hvernig komst forsetinn yfir að eyða 1,4 milljónum króna í leigubíla á fyrstu tíu mán- uðunum, miðað við það að hann hefur einkabíl- stjóra og limmúsín til afnota, allan ársins hring og honum tókst líka að eyða einni milljón króna í bensín? Hvar er jarðtenging forseta sem ferðast hefur til útlanda fyrir 9,6 milljónir króna fyrstu tíu mánuði ársins og greitt 5 milljónir króna í hót- elkostnað erlendis á sama tíma? Veit forsetinn að bara ferða- og hótelkostnaður hans erlendis fyrstu tíu mánuði ársins jafnast á við mán- aðarlaun 70 verkamanna? Hvað hefur forsetinn dvalið marga daga er- lendis á þessum tíu mánuðum? Hvernig tekst forsetaembættinu að eyða níu milljónum króna í risnu (veisluhöld) á tíu mán- uðum, miðað við það hvað forsetinn er mikið fjar- verandi? Ég spyr m.a. vegna aums yfirklórs í at- hugasemd forsetaembættisins við frétt Stöðvar 2 og vísis.is sem birtist með fréttinni um síðustu helgi, þar sem m.a. sagði: „Gefið er í skyn að veisluhöld fyrir erlenda þjóðhöfðinga eða hand- boltaliðið hafi kostað 9 milljónir króna. Tekið er á móti 6.000 til 8.000 gestum á ári hverju á Bessa- stöðum og er risnukostnaðurinn vegna heim- sókna þessa mannfjölda.“ Ef við gefum okkur að gestafjöldinn á Bessa- stöðum sé 6.000 á ári jafngildir það því að liðlega 16 gestir komi dag hvern í heimsókn á Bessa- staði. Ef við miðum við efri mörkin sem forseta- embættið gefur er daglegur gestafjöldi að með- altali 22. Hvernig má forsetinn vera að því að taka á móti slíkum fjölda dag hvern, því hann hlýtur ýmist að vera á tali, ef marka má símreikn- inginn hans, eða hann hlýtur að vera í útlöndum, ef marka má ferðakostnaðinn hans? Sýna gestabækur forsetaembættisins fram á að á milli 6 þúsund og 8 þúsund manns sæki Bessastaði heim á ári? Væri hægt að fá gestalista forsetans birtan reglulega? Er það ekki hluti af því að hrinda í framkvæmda tískuorðinu gegnsæi? Eða þolir gestalistinn ekki dagsins ljós? Það er eitthvað sem ekki gengur upp þegar hinar tölulegu upplýsingar eru skoðaðar og þar á ég auðvitað fyrst og fremst við óhófið og bruðlið í kringum þetta tildurslega embætti, sem gerir ekkert annað en verða æ meira óaðlaðandi og sjálfhverft, eftir því sem Ólafur Ragnar Gríms- son situr lengur í embætti. Upp á síðkastið hafa stöðugt fleiri lagt orð í belg um forsetaembættið og það hversu óþarft það er í raun og veru. Eitt sinn var forseti Íslands sameiningartákn þjóðarinnar. Því fer fjarri að hann rísi undir því sæmdarheiti í dag. Er ekki orðið raunhæft að skoða af alvöru, hvort við eig- um ekki að leggja niður forsetaembættið? Væri ekki hægt að slá tvær flugur í einu höggi, spara mikla fjármuni og auka veg og virðingu Al- þingis, sem hefur átt undir högg að sækja? For- seti Alþingis gæti auðveldlega axlað þær embætt- isskyldur sem fylgja forseta Íslands. Hann væri ugglaust fullfær um að halda hanastélsboð, bjóða erlenda þjóðhöfðingja velkomna í heimsókn, taka á móti sendifulltrúum erlendra ríkja og klippa á borða við hátíðleg tækifæri. agnes@mbl.is Agnes segir … Á tali á Bessastöðum Morgunblaðið/Eyþór Halló! Halló! Bessastaðir! Er á tali hjá ykkur?! Þurfið þið ekki að komast í talsamband við þjóðina, svona undir árslok ársins 2008 - ársins sem bankahrun varð á Íslandi, kaupmáttur landsmanna hrundi, krónan féll, fjöldaatvinnuleysi tók við og fjöldagjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja blasa við? Bankaleynd gegnir sínu hlutverki.Henni er ætlað að vernda við- skiptavini bankanna og tryggja rétt þeirra til persónuverndar.     Það er hins vegar eitthvað öf-ugsnúið við það að bankaleynd skuli notuð til að koma í veg fyrir að viðskiptavinir banka fái upplýs- ingar um það hvernig bankarnir hafa farið með peningana þeirra.     ÍMorgunblaðinuá föstudag var fjallað um pen- ingamark- aðssjóði Lands- bankans. Þar er vitnað í Jóhann Hauk Hafstein lögmann, sem hefur höfðað mál fyrir umbjóðendur sína til að hnekkja leyndinni, sem hvílir á samsetningu sjóða Landsbankans: „Þeir bera fyrir sig bankaleynd en ég tel fráleitt að hún eigi við. Fólkið sjálft átti peningana og vill vita hvert fjármunir þess fóru.“     Þeir sem töpuðu fé í pen-ingamarkaðssjóði Landsbank- ans hafa stofnað rettlaeti.is, sem að sögn eins stofnendanna, Ómars Sig- urðssonar, var sett á laggirnar til að berjast við Golíat. Ómari líður nú hins vegar eins og hann sé „að eltast við hagamús en ekki að takast á við Golíat“.     Óánægja viðskiptavina bankans ereðlileg. Það er nógu slæmt að tapa sparifé sínu, en þegar ekki fást upplýsingar um hvernig farið var með peningana keyrir um þverbak.     Lög um bankaleynd voru ekki setttil að vernda bankana fyrir við- skiptavinum sínum.     Lög um bankaleynd voru sett tilþess að gæta friðhelgi viðskipta- vinanna. Ómar Sigurðsson Afbökuð bankaleynd                            ! " #$    %&'  ( )                                  * (! +  ,- . / 0     + -                        !"           #$% 12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (      %&& '&  '                        :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? '  '    ' ' ' '  '  '  '     '  '   ' '  ' ' '                              *$BCD                     ! " #  $     %  & $ '  (  " *! $$ B *!   () *&$ &)&$  %  #$+ # <2  <!  <2  <!  <2  (%$*  &, "-&. # / CE -                      8     ( %   )  (   " * % " 6  2  +   ! (   " , (-( " B    . '  - &   /((   ("0  &!   ("#     &    (" 01 &&#22 #$& &3 #  #&, "&4 '&   & '& ' Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ INNLENT STAKSTEINAR VEÐUR Kátur Ástralski leikarinn Hugh Jackman verður kynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.