Morgunblaðið - 14.12.2008, Side 20
20 Myndaalbúmið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Í kínverskri tónleikahöll
Sigurður Flosason tónlistarmaður fædd-ist 22. janúar 1964 í Reykjavík. Hannlauk stúdentsprófi frá MH og einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
1983. Bachelorsprófi frá Indiana University
1986 og mastersprófi frá sama skóla 1988.
Einkanám hjá George Coleman í New York
1988-89.
Sigurður hefur komið við í flestum geirum
íslensks tónlistarlífs, staðið fyrir margvíslegu
tónleikahaldi heima og erlendis, komið að
skipulagningu tónlistarhátíða og tónleikaraða,
tekið virkan þátt í félagsmálum, unnið að nám-
skrárgerð og kennt tónlist. Hann hefur verið
yfirmaður djassdeildar og aðstoðarskólastjóri
Tónlistarskóla FÍH frá 1989. Sigurður hefur
sent frá sér 16 geisladiska; átta í eigin nafni og
átta dúóverkefni með Gunnari Gunnarssyni,
Jóel Pálssyni, Sólrúnu Bragadóttur, Kristjönu
Stefánsdóttur og Pétri Grétarssyni. Spuna-
konsertar, nýr diskur þar sem Sigurður kem-
ur fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit
Íslands er nýkominn út.
Sigurður er kvæntur Valborgu Önnu
Björnsdóttur og eiga þau þrjár dætur.
Sigurður
Flosason
Einleikur Einn af hápunktunum á ferlinum; einleikur
með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2008.
Í Shanghai Við Jóel Pálsson í Tónleikahöllinni í
Shanghai 2006 með tveimur vinsamlegum sætavísum.
Faðir og dætur Í Flórens 2006. Sólveig Erla fremst,
Sigríður Hulda og Anna Gréta.
Afmæli Ég og Brjánn Ingason vinur minn á 19 ára afmælisdaginn minn
1983 - smókingklæddir að sötra brennivín og borða þorramat.
Stúdent Stoltur stúdent vorið 1983.
Grímusamkvæmi Hjón á leið í samkvæmi
þar sem grímuklæðnaðar var krafist. Ég
og Vilborg Anna Björnsdóttir, konan mín.
Meistari Nýkominn með mastersgráðu frá Tónlistarháskólanum í
Indiana. Með foreldrum mínum, Flosa Hrafni Sigurðssyni og
Huldu Heiði Sigfúsdóttur, fyrir utan skólann.
Fjögurra ára afmæli Fullkomið fjögurra ára afmæli árið 1968 -
piparkökuhús, Miranda og allt! Ég og Ágústa systir með systk-
inabörnunum Sigríði og Steinunni Stefánsdætrum, Sigfúsi og
Kolbeini Bjarnasonum.
Tónlistarnemi Í Tónmennta-
skóla Reykjavíkur 1977.
Glæsibíll Ný-
bakaður og
stoltur bíleig-
andi í Banda-
ríkjunum
1986, Mercury
Cougar 1981.
Í fullum skrúða 13 ára kominn í fullorðins
lúðrasveit. Engum fötum hef ég klæðst
jafn stoltur - hvorki fyrr né síðar.
Með Kidda æskuvini mín
um
Stoltur í lúðrasveit
Virðulegir herramenn