Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Staða fjármálamarkaða hefur haft áhrif á Frjálsa lífeyrissjóðinn en aðgerðir í Eignastýringu Kaupþings, sem er rekstraraðili sjóðsins, hafa á undanförnum tveimur árum miðað að því að minnka markvisst áhættu í fjárfestingarleiðum sjóðsins. Með auknu vægi ríkisskuldabréfa og kerfisbundinni sölu á hlutabréfum hefur tekist að að draga verulega úr neikvæðum áhrifum á eignasafn Frjálsa lífeyrissjóðsins sem endurspeglast í ávöxtun sjóðsins. Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum þarf ekki að skerða réttindi eða lífeyri sjóðfélaga í samtryggingadeild sjóðsins. Aukaársfundur 16. desember Frjálsi lífeyrissjóðurinn heldur aukaársfund þriðjudaginn 16. desember næstkomandi, kl. 17:15, í höfuðstöðvum Kaupþings. Lagðar verða fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins og veittar upplýsingar um rekstur og ávöxtun sjóðsins á árinu. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. Ítarlegri upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn má nálgast á www.frjalsilif.is FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Nafnávöxtun fjárfestingarleiða sjóðsins fyrstu 11 mánuði ársins 2008 Góð ávöxtun miðað við erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum Frjálsi Áhætta -3,6% Fjárfestingarleiðirnar hafa mismunandi fjárfestingarstefnu og eru því misáhættusamar. Frjálsi Áhætta er áhættumest og Frjálsi 3 er áhættuminnst. -5% 0% 10% 15% 20% 25% 5% -2,2% +12,7% +23,1% Frjálsi 1 Frjálsi 2 Frjálsi 3 Það skiptir engu máli þótt eplið sé undarlegt í laginu eða gulrótin stutt og bogin. Ef ávextir og græn- meti eru óskemmd, þá skiptir útlit- ið litlu. Fegurðin kemur að innan, í formi hollustunnar. Þessu hafa skriffinnar í Evrópu- sambandinu gert sér grein fyrir. Nú, þegar verð á matvælum rýkur upp úr öllu valdi, hefur verið ákveðið að slaka aðeins á kröfum um óaðfinnanlegt útlit hollmet- isins. Bandaríska dagblaðið Los Angel- es Times fjallaði um þetta á dög- unum. Þótt íbúar Los Angeles þyki, a.m.k. sumir, leggja ofuráherslu á óaðfinnanlegt útlit, þá er ljóst af skrifum blaðsins að þar á bæ þykir of langt seilst að setja fegurð- arstaðla um hollustuna. Blaðið bendir á að margar furðu- legar og skemmtilegar sögur ganga um skrifræðið í Brussel. Vissulega hafa þær margar heyrst, um að þar sitji menn við skrifborð og ákveði hversu löng, breið og græn gúrka verði að vera til að teljast boðleg eða að valhneta verði að líta út eins og bústaður álfa í ævintýrum til að rata í evrópska munna. Marg- ar slíkar sögur eru ýktar fram úr hófi, en eftir stendur að vissulega hefur Evrópusambandið sett ákveð- in viðmið um hvað teljist boðlegt hollmeti. Nú má búast við að ólögulegir ávextir og furðuvaxið grænmeti fái sess í evrópskum stórmörkuðum, segir Los Angeles Times og vísar til þess að Evrópusambandið hafi endurskoðað stífar reglur sínar um 26 tegundir, þar á meðal rósakál, gulrætur, kirsuber, gúrkur og val- hentur. Áður voru útlitsgölluð ein- tök einungis notuð til vinnslu mat- væla, en nú verður hægt að kaupa þau; og að sjálfsögðu á lægra verði en þau fullkomnu. Enn verður þó hægt að gleðjast yfir kiwi, eplum, perum, tómötum og jarðarberjum samkvæmt eldri Evrópustöðlum, enda líklega tak- mörk fyrir því hversu mikið af út- litsgölluðum ávöxtum er hægt að bjóða viðkvæmum neytendum. Morgunblaðið/Arnaldur Ljótt er ekkert óhollara Tíminn flýgur áfram og í dag eru liðin fimm ár frá því að bandarískir hermenn fundu Saddam Hussein, fyrrum leiðtoga Íraks, í felustað sínum. Bandaríkjaher lagði mikla áherslu á að finna einræðisherrann og draga hann fyrir rétt. Ýmsir nánir samverkamenn hans voru handteknir, synir hans fundust í borginni Mosul í júlí 2003 og loks, átta mánuðum eftir innrásina, fékk herinn nægar upplýsingar til að hringurinn um Saddam þrengdist. Hermenn leituðu hans við bónda- bæ 15 kílómetra suður af heima- borg hans, Tikrit. Og þar fannst hann í jarðhýsi, sem rétt nægði til að fullorðinn maður gæti lagst þar fyrir. Dýptin á holunni var um 2 metrar. Niður í hana varð ekki komist nema opna hlera í jörðinni, en hann var falinn með mottu, múrsteinum og jarðvegi. Loftventill veitti Saddam nægt súrefni til að lifa af í holunni. Í holunni voru vistir og fúlgur fjár. Einræðisherrann var fúlskeggj- aður og skítugur í felustað sínum. Hann var vopnaður, en gerði enga tilraun til að verjast. Saddam Hussein var leiddur fyrir rétt í Bagdad árið 2005. Réttarhöldin stóðu í heilt ár, en þá var hann dæmdur til dauða. Hann var hengdur 30. desember 2006. Á þessum degi Reuters Hola Saddams Hún var alls ólík höllum hans, holan sem Saddam Hussein fannst í. Ákveðið var að afmá hana, til að koma í veg fyr- ir að hún yrði táknmynd hins horfna leiðtoga í hugum stuðn- ingsmanna hans. 14. DESEMBER 2003 SADDAM FANNST Í HOLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.