Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 28

Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 28
28 Handverk MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Þ eir sem prjóna, elska að frelsa sálir, fá fleiri til að prjóna. Þetta er eins og sértrúarsöfnuður, mað- ur vill alltaf vera að breiða út fagnaðarerindið,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkr- unarfræðingur og prjónakona, sem var að gefa út bókina Prjóniprjón ásamt vinkonu sinni, Halldóru Skarphéðinsdóttur, doktor í líf- fræði sem búsett er í Stokkhólmi. Þær kynntust einmitt í sænsku höf- uðborginni og stofnuðu þar sér til skemmtunar Handprjónasamband Norður-Stokkhólms. Ragnheiður, sem flutti heim fyrir ári, starfar nú sem nýsköpunar- og þróunarstjóri hjá Bandalagi háskólamanna. Áður starfaði hún í lyfjaiðnaði í nokkur ár en samhliða því starfi vann hún að kynfræðslu og varð meðal ann- ars þekkt fyrir pistlaskrif sín. „Það sem við gerum ráð fyrir að fólk kunni er að fitja upp, fella af og prjóna slétt og brugðið,“ segir Ragnheiður en það var ekki pláss í bókinni fyrir prjónakennslu eða upprifjun á undirstöðuatriðunum. Í þeim tilgangi vísar hún á vefsíðu bókarinnar www. prjo- niprjon.blogspot.com. Lýsingar frekar en uppskriftir „Ef það er eitthvað flóknara útskýrum við það vel í uppskrift- unum og erum með ít- arlegar lýsingar með,“ segir hún og bætir við að í bók- inni noti þær ekki neinar flóknar skammstafanir. „Þarna er ekkert dul- mál, sem þarf að af- kóða til að skilja bók- ina. Við viljum hvetja fólk til að fá tilfinn- inguna fyrir prjóni og frelsa það úr viðjum uppskriftanna og fá það til að prjóna það sem það langar í. Fólk nálgast prjón oft af hræðslu og lotningu og leggur ekki í að byrja,“ segir Ragnheiður sem kallar eftir viðhorfsbreyt- ingu. „Margir eiga kannski hálf- kláraða peysu, sem er prjónuð upp að handvegi og eru með sam- viskubit yfir því árum saman. Það sem skiptir máli er að fella af. Það er kannski hægt að gera tösku úr peysunni. Það er aldrei fitjað upp til einskis, það er alltaf eitthvað gott sem kemur út úr því.“ Hún tekur líka dæmi um að garðaprjónstrefill geti orðið að barbíteppi og sjálf prjónar hún með opnum huga. „Ég fitjaði upp á húfu um daginn en nennti ekki að gera prjónfestuprufu. Fitjaði eitt- hvað upp og fór að prjóna en sá svo að þetta væri engin húfa en þetta yrði fínasta barnapeysa! Ég hlakka bara til að sjá hvað kemur út úr þessu.“ Ragnheiður á þrjú börn, Rúnu Lóu fimm ára, Sindra Snæ 13 ára, sem gengur með heimaprjónaða húfu eftir sjálfan sig, og Hlyn sex- tán ára. „Ég býð honum reglulega að prjóna eitthvað á hann en hann afþakkar það kurteislega,“ segir Ragnheiður, sem hefur prjónað þeim mun meira á Rúnu Lóu og segir heppilegt að prjóna á „litla einstaklinga“. Rúna Lóa er einmitt á myndum í bókinni en flestar fyr- irsætur eru úr fjölskyldum höfund- anna. Hún segir ákveðna töfra í því að vera í einhverju sem maður hefur prjónað sjálfur og segir líka gaman að fá prjónaðar gjafir. „Þá veistu að það sat einhver lykkju fyrir lykkju og gaf tíma sinn, þolinmæði og umhyggju.“ Hún prjónar sjálf gjafir og þá ósjaldan húfur. Hún segir að þá sé hægt að hanna húfuna með vininn í huga. „Þetta er ein leið til að tengjast fólkinu sínu. Það er svo fallegt að gefa hand- verk.“ Hún segir aðalmálið við að prjóna ekki að spara. „Þú getur auðvitað sparað með því að prjóna, til dæmis með því að prjóna lopa- vettlinga eða kjóla á litlar stelpur. Ég held að þetta snúist meira um samveruna og að fólk er að sækja í eitthvað sem gefur jarðtengingu, ró í hugann,“ segir hún um sí- stækkandi hóp þeirra sem prjóna. Ragnheiður segir nærveru með prjóni verða öðruvísi en aðra nær- veru og bætir við að hún hafi setið yfir deyjandi ömmu sinni og prjón- að. Hún segist alltaf hafa haft prjón í kringum sig. „Langamma mín prjónaði stöðugt og langafi minn líka. Þegar langafi komst ekki á sjóinn sat hann og prjónaði, sjó- vettlinga, sokka og neðangern- inga,“ segir hún en það síðast- nefnda er að prjóna neðan við sokkinn, sumsé taka upp lykkj- Aldrei fitjað upp til eins Ragnheiður Eiríksdóttir er prjónakona af lífi og sál og vill breiða út prjónafagnaðarerindið. Það gerir hún meðal annars með útgáfu nýrrar bókar sinnar og Halldóru Skarphéð- insdóttur sem ber nafn- ið Prjóniprjón. Peysa úr plötulopa Rúna Lóa dóttir Ragnheiðar valdi litinn í köntunum. Töff Flott vesti á litla stráka. Hér er hægt að láta hug- myndaflugið ráða í litavalinu. Prjónakonan heima á Flókagötunni Þegar Ragnheiður Eiríksdóttir tekur upp prjónana er ekki endilega ljóst hvar ferðalagið endar. Hún segir nærveru með prjóni vera öðruvísi en aðra nærveru og segir prjónið góða þerapíu. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.