Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 30
30 Knattspyrna
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
G
ætið ykkar að hrasa
ekki um geldoll-
urnar,“ mun Roy
Keane einhverju
sinni hafa sagt þegar
hann lóðsaði hóp ungmenna um bún-
ingsherbergin á æfingasvæði Sun-
derland. Vitaskuld var hann að gera
að gamni sínu en fyrirlitningin skein
eigi að síður í gegn. Keane er fulltrúi
gamalla tíma í sparkheimum, kemst
óstuddur gegnum lífið án hárgels og
húðflúrs og hefur ímugust á hvers-
konar prjáli. Það kemur því ekki á
óvart að kvöldið sem þáverandi liðs-
félagi hans hjá Manchester United,
David Beckham, efndi til konunglegs
brúðkaups grófu blaðamenn Keane
upp á knæpu einni í grenndinni.
„Hvers vegna ert þú ekki í brúð-
kaupinu, lagsi?“ spurðu þeir högg-
dofa. „Valið stóð milli brullaupsins
og Úlfsins. Úlfurinn varð ofan á,“
svaraði Keane sposkur um hæl en
það var einmitt nafnið á knæp-
unni. Já, Roy Keane dansar
fremur við úlfa
en uppskafn-
inga.
Þessi lif-
andi goðsögn
hefur nú dregið
sig í hlé – alltént um
stundarsakir – eftir æsilega rússí-
banareið í Sunderland. Keane var
rétt búinn að leggja skóna á hilluna
þegar hann tók við liðinu í ágúst
2006. Það sat þá á botni næstefstu
deildar og spriklaði ekki beinlínis af
elju og áhuga.
Hinn forni fjandi Quinn
Raunar hafði hann hafnað félaginu
þegar nýir eigendur þess leituðu
fyrst hófanna hjá honum. Fannst
hann ekki tilbúinn. Niall Quinn, sem
safnað hafði hinum nýju eigendum
saman um sumarið, Drumaville-
hópnum, brann þá í skinninu að
spreyta sig á sparkstjórninni og var
það látið eftir honum. Með voveifleg-
um afleiðingum. Eftir aðeins fjóra
leiki stóðu menn því aftur á tröpp-
unum hjá Keane – pungsveittir.
Ekki hefur honum leiðst að horfa á
þá sendinefnd engjast eins og ána-
maðka, allra síst Quinn sjálfan en
grunnt hefur verið á því góða milli
þeirra frá því Keane var sendur heim
eftir að hafa kvartað undan aðbúnaði
írska landsliðsins á heimsmeist-
aramótinu 2002. Téður Quinn stóð þá
eins og klettur að baki þjálfaranum,
Mick McCarthy. Því getur Keane
ekki gleymt, hann er eins og fíllinn í
þeim skilningi. Spyrjið bara aum-
ingja Alf-Inge Håland, eða „píkuna
þá arna“, eins og Keane kallar hinn
norska fjandmann sinn jafnan.
Ritarinn bar boðin
Ekki kom þó til álita að henda
Quinn út í hafsauga, þvert á móti var
hann hækkaður í tign – gerður að
stjórnarformanni. Hvernig í ósköp-
unum verður samskiptum þeirra
Keanes eiginlega háttað? spurðu
menn áhyggjufullir. Því er fljót-
svarað. Þau rúmu tvö ár sem Keane
stýrði Sunderland voru engin bein
samskipti þeirra Quinns í millum.
Það er hreint engin tilviljun að stjór-
inn sagði starfi sínu lausu fyrir at-
beina sms sem er örugglega eins-
dæmi í sparksögunni.
Keane harðbannaði Quinn að láta
sjá sig í búningsklefanum og á æf-
ingasvæðinu. Þyrftu þeir félagar að
skiptast á skilaboðum, þar sem sms-
tæknin dugði ekki, var ritari sem
starfar hjá félaginu, Margaret
Byrne, kvödd á vettvang. Mags, eins
og þeir kalla hana, naut fyllsta
trausts beggja manna.
Seint munu samskipti af þessu
tagi þykja traustvekjandi en menn
létu sér það í léttu rúmi liggja meðan
vel gekk á vellinum. Og það gerði það
svo sannarlega. Sunderland tók
hamskiptum undir stjórn Keanes og
reykspólaði upp töfluna. Lauk
keppni um vorið í efsta sæti og end-
urheimti úrvalsdeildarsætið sem það
hafði glatað með skömm ári áður.
Árangurinn í efstu deild var líka við-
unandi í fyrra, með hliðsjón af
mannafla. Fimmtánda sætið var álit-
ið ágætur grunnur að frekari afrek-
um.
Eigendur félagsins, með auðkýf-
inginn Sean Mulryan í broddi fylk-
ingar, báru Keane á höndum sér og
jusu í hann fé til leikmannakaupa
enda þótt heimildir hermi að stjórinn
hafi aðeins einu sinni stungið við
stafni á stjórnarfundi. Það er einfald-
lega ekki hans stíll. Einu sinni var
hann þrábeðinn að heilsa upp á Mul-
ryan þegar hann var aldrei þessu
vant staddur á Ljósvangi en hafnaði
því með eftirfarandi orðum: „Ég
stend ekki í stjórnarmönnum.“
Guði sé lof fyrir sms!
Keane var ekki spar á sjóði í sum-
ar, sveiflaði veskinu í allar áttir í því
augnamiði að styrkja liðið. 80 millj-
ónir punda liggja víst eftir hann
þegar allt er talið. Það er engin
skiptimynt. Vissulega festi Keane
kaup á nafnkunnum leik-
mönnum, en hörgull hefur verið
á þeim hjá Sunderland, en voru
þetta endilega bestu mennirnir
sem völ var á? Áhangendur Liv-
erpool myndu hiklaust svara því
neitandi, alltént setur að þeim
hroll þegar El Hadji Diouf og
Djibril Cissé ber á góma. Stuðn-
ingsmenn Tottenham brjótast
heldur ekki um af kæti þegar
Steed Malbranque og málaliðinn
Pascal Chimbonda eru nefndir á
nafn. Má ég þá frekar biðja um
Laufeyju.
Eigi að síður geta flestir ver-
ið sammála um að leik-
mannahópur Sunderland sé
það sterkur að liðið eigi ekki
að þurfa að berjast fyrir lífi
sínu í deildinni eins og allt
útlit er fyrir á þessu stigi
málsins. Hvorki hefur geng-
ið né rekið, einkum síðustu
vikurnar og smám saman
tók að hitna undir Keane.
Mitt í þessum öldudal fór
stjórn félagsins þó að
ámálga nýjan samning við
kappann. Það undirstrikar
traustið. En hann var eins
og svo oft áður hrein-
skilnin uppmáluð þegar
hann lýsti því yfir að sú
umræða væri ótímabær.
„Ég er ekki viss um að ég
eigi nýjan samning skilið!“
Enda þótt Roy Keane hafi látið
margan manninn hafa það óþvegið
gegnum árin hefur hann alltaf verið
harðastur við sjálfan sig. Flestir
Fangs er von af
Fyrir fáeinum vikum þótti Roy Keane einn efnilegasti knattspyrnustjórinn í
Englandi en nú hefur þetta ólíkindatól yfirgefið Sunderland. Menn velta því í
kjölfarið fyrir sér hvort skapgerð hans henti í starf af þessu tagi.
Vígalegur Roy Keane stýrir
Sunderland meðan allt lék í
lyndi. Nú er hann farinn.
‘‘ÞAU RÚMU TVÖ ÁR SEMKEANE STÝRÐI SUNDER-LAND VORU ENGIN BEINSAMSKIPTI ÞEIRRA
QUINNS Í MILLUM.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Veiðikortið veitir aðgang að
31 vatnasvæði vítt og breitt um landið,
í allt sumar fyrir aðeins 6000 kr.
Þú ákveður svo hvar og hvenær þú veiðir.
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir.
Frí heimsending þegar verslað er á www.veidikortid.is
Svör sendist fyrir 17. desember
Gull- og silfursmiðjunni Ernu, Skipholti 3, 105 Reykjavík
Þrenn verðlaun verða veitt:
• Jólaskeiðin 2008, hönnuður Sóley Þórisdóttir
• Ársskeiðin 2008, hönnuður Stefán Snæbjörnsson
• Servíettuhringur ársins 2008, Gleym-mér-ei
Dregið verður úr innsendum svörum 20. desember og samband verður
haft við 3 heppna lesendur Morgunblaðsins.
Gull- og silfursmiðjan Erna,
Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is
Jólagetraun Ernu
Hvað heitir eina fyrirtækið sem framleiðir jólaskeiðar á Íslandi?
Svar:
Hvaða listakona hannaði jólaskeið Ernu 2008?
Svar:
Hvaða listamaður hannaði ársskeiðina 2008?
Svar:
Nafn:
Heimilisfang:
Sími:
Fréttir í tölvupósti