Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 31
Ákveðinn Keane liggur aldrei á skoðunum sínum og vandaði ekki
alltaf dómurum kveðjurnar þegar hann lék með Manchester Utd.
hefðu líklega stokkið á nýja
samninginn burtséð frá
gengi liðsins.
Tvær grímur
renna á Keane
Eftir skellinn gegn Bolton
á Ljósvangi fyrir hálfum
mánuði gaf Keane sterklega í
skyn að hann væri á förum
þegar hann talaði um að ef til
vill væri hann ekki rétti mað-
urinn í starfið. Flestir bjugg-
ust samt við að hann berðist
áfram og það kom því nokk-
uð á óvart þegar hann sendi
Quinn téð sms-skilaboð
fyrir síðustu helgi. Sem
leikmaður gafst Keane
aldrei upp fyrr en hann sá
úrslitin svart á hvítu í
blöðunum morguninn eftir
leik en sem knatt-
spyrnustjóri gekk hann
úr skaftinu við fyrsta
mótbyr. Það er ekki hon-
um líkt.
En hvað fór eiginlega
úrskeiðis? Meðan allt lék í
lyndi leit út fyrir að Keane
hefði burði til að verða
jafngóður knatt-
spyrnustjóri og leikmaður
og menn voru jafnvel farnir
að hugsa um hann sem arf-
taka Sir Alex Fergusons á
Old Trafford. Hvernig gat
hann sokkið eins og Titanic?
Gera má því skóna að
Keane sé einfaldlega uppi á röngum
tíma. Eins og fyrr er getið fyrirlítur
hann glys og tildur og botnar hvorki
upp né niður í leikmönnum sem
mæta með hanska og trefil á æfing-
ar. Sjálfur var hann ekki á neinum
sultarlaunum hjá United en hann
vann fyrir þeim – hverju penníi.
Sama verður því miður ekki sagt um
marga leikmenn í ensku úrvalsdeild-
inni í dag. Menn veigra sér ekki við
að skipta um félög eins og sokka í
æðisgenginni leit að feitasta tékk-
anum. Margt bendir til þess að megn
starfsógleði hafi gripið Keane innan
um þessa menn. Óbeitin varð bar-
áttuþrekinu yfirsterkari.
Á enga hlýju til
Hermt er að flestum leikmönnum
Sunderland hafi létt þegar Keane
sneri baki við félaginu. Það segir sitt-
hvað um manngerðina. Hann er ein-
fari sem ekki á gott með að gefa af
sér. Fyrir það virðist hann hafa liðið.
Tony Cascarino, sem lék með
Keane í írska landsliðinu, velti þessu
fyrir sér í The Times á dögunum.
„Knattspyrnustjórar þurfa að vera
ráðkænir. Þeir þurfa að finna hinn
gullna meðalveg, sýna leikmönnum
sínum áhuga en um leið halda ákveð-
inni fjarlægð. En Keane er bara fjar-
lægur, hann á enga hlýju til. Tengsli?
Ekki í þessu lífi,“ segir Cascarino.
Þessi greining bendir til þess að
Keane hafi tekið rétta ákvörðun þeg-
ar hann yfirgaf Sunderland. Starf
knattspyrnustjórans henti honum
hreinlega ekki. Enginn skyldi þó af-
skrifa þennan holdgerving barátt-
unnar. Hann er aðeins 37 ára að aldri
og hefur án efa lagt duglega inn í
reynslubankann undanfarin tvö ár.
Keane hefur líka lýst því formlega
yfir að hann sé hvergi nærri hættur.
„Ég mun snúa aftur,“ stóð í yfirlýs-
ingu frá honum eftir sms-gjörning-
inn. En eftir stendur þó að Roy
Keane gæti þurft að endurskoða
nálgun sína ætli hann að þrífast í
þessu margslungna starfi.
frekum úlfi
Reuters
Reuters
Perluvinir Niall Quinn býður Roy Keane velkominn haustið 2006. Mags ritari átti annríkt þegar myndin var tekin.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Sagt er frá athafna-
mönnum og farand-
verkafólki,
knattspyrnuköppum
og stjórnmálamönnum
og síðast en ekki síst
baráttunni um fram-
tíð byggðar í
Vestmannaeyjum.
holar@simnet.is
Hér eru sögurnar
óteljandi