Morgunblaðið - 14.12.2008, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
17. desember 1978: „Alþýðuflokk-
urinn er forystulaus og sundr-
aður. Atburðir síðustu daga hafa
undirstrikað þá staðreynd ræki-
lega. Forysta Alþýðuflokksins er
brostin. Bersýnilegt er að ráð-
herrar Alþýðuflokksins starfa í
engu samræmi við vilja meiri-
hluta þingflokks og flokks-
stjórnar. Á fimmtudagsmorgni
samþykktu ráðherrar flokksins í
ríkisstjórninni meðferð fjárlaga
og skattamála, sem þeir vissu, að
mundu koma til umræðu í flokks-
stjórn þá um kvöldið, og þeim var
ljóst, að ákvörðun flokksstjórnar
gat orðið önnur en þeirra.“
. . . . . . . . . .
18. desember 1988: „Deilur um
landamæri Ísraels eru langt frá
því að vera leystar, þótt PLO
standi við þá yfirlýsingu Arafats
að viðurkenna tilverurétt Ísraels.
Reynslan ein sker úr um það,
hvort hryðjuverkum gegn Ísr-
aelum verður hætt og hvort lát
verður á manndrápum Ísr-
aelsmanna á herteknu svæðunum.
Ísraelar halda fast í yfirráð sín
yfir Jerúsalem, ekkert arabaríki
hefur horfið frá kröfunni um að
Ísraelar láti Jerúsalem af hendi.
Atburðir síðustu daga sýna hvað
sem öðru liður að fljótt skipast
veður í lofti. Hvarvetna í heim-
inum er meiri vilji en áður til að
leysa svæðisbundin deilumál. Það
verður fyrsta utanríkisverkefni
nýs forseta Bandaríkjanna,
George Bush, að reyna að greiða
úr þessari flækju allri.“
. . . . . . . . . .
13. desember 1998: „Harkalegar
deilur hafa blossað upp vegna
þeirra ákvæða í frumvarpi rík-
isstjórnarinnar um breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða, sem
snúa að smábátaútgerð í landinu
og þá sérstaklega á Vestfjörðum.
Ljóst er, að trillukarlar á Vest-
fjörðum eru æfir og telja að með
frumvarpinu hafi verið kveðinn
upp dauðadómur yfir smábátaút-
gerð þar.“
Úr gömlum l e iðurum
Ríkisstjórninátti aðganga
lengra í að skera
niður útgjöld áður
en samþykkt var
að hækka skatta á
einstaklinga og auka á þá
álögur. Fjárhagur margra
heimila hefur orðið fyrir áfalli
ekki síður en ríkissjóðs. Þeg-
ar um þrengist er heppilegast
að fólk haldi sem mestu eftir
af sjálfsaflafé sínu.
Það hlýtur að vera þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins
pólitískt áfall að standa að nú-
verandi skattahækkunum. Í
meira en tíu ár hefur flokk-
urinn staðið að lækkun tekju-
skatts einstaklinga og fellt
niður hátekjuskatt og eigna-
skatt. Einnig hefur erfða-
fjárskattur og fjármagns-
tekjuskattur verið lækkaður
verulega. Í stað þess að verja
þessa arfleifð við erfiðar að-
stæður var farið aftur í vasa
skattgreiðenda.
Hækkun persónuafsláttar
um áramótin dregur vissulega
úr áhrifum þessarar hækk-
unar. Hins vegar er á sama
tíma farið í þann leik að klípa
af fólki krónur og aura hér og
þar. Það safnast þegar saman
kemur.
Ekki má gleyma að sveitar-
félögum var einnig veitt heim-
ild til að hækka útsvar um
hálft prósentustig. Miðað við
lýsingar forystumanna Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
á bágri stöðu margra þeirra
má búast við að flest sveit-
arfélög nýti sér þá heimild.
Samtals getur skattahækkun
ríkis og sveitarfélaga því
numið 1,5 prósentustigum.
Samdráttur í efnahagslíf-
inu leiðir til þess að heimilin
þurfa að draga saman seglin.
Atvinnuleysi eykst. Laun
lækka. Kostnaður
eykst og verð-
tryggð lán hækka
í kjölfar ákvörð-
unar Alþingis að
hækka gjöld á
áfengi, tóbak og
olíu. Bifreiðagjald hækkaði
einnig en hefur ekki áhrif á
vísitölu neysluverðs. Kaup-
máttur er álíka mikill og árið
2005.
Að sama skapi hefði átt að
draga verulega úr opinberum
útgjöldum í stað þess að auka
byrðar almennings frekar.
Í krónum talið stefnir í að
útgjöld ríkissjóðs standi í stað
milli ára. Stórtækur niður-
skurður í rekstri hins op-
inbera er nauðsynlegur. Rík-
isstjórnin þarf að hrinda í
framkvæmd hugmyndum um
fækkun ráðuneyta og rík-
isstofnana. Hún á að endur-
skoða hina háu styrki til einn-
ar atvinnugreinar, land-
búnaðarins, og skera niður
óarðbærar opinberar fram-
kvæmdir. Tónlistarhúsið
stingur í augu, hálfbyggt við
Reykjavíkurhöfn. En höfum
við efni á að ljúka því við þess-
ar erfiðu aðstæður?
Ef góðærið er búið hjá fjöl-
skyldum í þessu landi er það
svo sannarlega búið hjá
stjórnmálamönnunum.
Það skiptir meira máli núna
en áður hvernig hverri krónu
er ráðstafað. Lægri upphæð
er til skiptanna. Sóunin verð-
ur þar af leiðandi dýrkeyptari
en áður. Ráðstöfun takmark-
aðra gæða er betur komin í
höndum einstaklinga en
stjórnmálamanna.
Leita átti allra annarra
leiða áður en farið var að
hækka skatta og álögur á
borgarana. Fólkinu sjálfu er
best treystandi til að ráðstafa
sínum eigin fjármunum.
Stórtækur nið-
urskurður í rekstri
hins opinbera er
nauðsynlegur}
Dragið úr útgjöldum
Aukin áfengisneysla
fylgir velmeguninni
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Í
slendingar neyttu ríflega 10
milljón lítra af áfengi 1995.
Árið 2007 var sú tala orðin
tæpir 25 milljón lítrar og það
þarf engan reiknimeistara til
að sjá að sú aukning er umtalverð. Á
12 árum slagar hún hátt í 150% sam-
kvæmt rannsókn Hagstofu Íslands á
útgjöldum heimilanna.
„Verðlag, kaupmáttur launa og að-
gengi að áfengi eru þau þrjú atriði sem
talin eru ráða mestu þegar við berum
saman áfengisneyslu þjóðar,“ segir
Þórólfur Þórlindsson, forstöðumaður
Lýðheilsustöðvar. „Og sú þróun sem
orðið hefur hér kemur heim og saman
við það. Áfengisverð hefur lækkað,
kaupmáttur í þjóðfélaginu hefur auk-
ist verulega og aðgengi að áfengi hefur
aukist með fjölgun útsölustaða og
lengri afgreiðslutíma verslana.“ Þór-
ólfur bendir á að inni í þessum tölum
sé þó líka að finna það áfengi sem er-
lendir ferðamenn neyti í Íslandsdvöl-
inni og það hafi vissulega einhver
áhrif. Að sama skapi vanti þó einnig
það magn áfengis sem landinn neyti á
erlendri grundu. „Sú breyting hefur
einnig átt sér stað á undanförnum ár-
um hér heima sem og víða í Vestur-
Evrópu að aukningin hefur verið hlut-
fallslega meiri hjá konum en körlum.
Þær eru að draga á karla.“
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
SÁÁ, tekur í sama streng. „Áfengis-
neyslan hefur ekki breyst mikið hjá
unga fólkinu, en við höfum séð mikla
aukningu hjá fólki sem er komið yfir
fertugt. Áður var mikið um bindind-
isfólk í þessum hópi, sérstaklega með-
al kvenna. Þá var óalgengt að konur
sem nú eru sextugar neyttu áfengis.“
Bjórinn flýtur
Þegar tölur Hagstofunnar eru skoð-
aðar sést að mest hefur aukningin ver-
ið í sölu á bjór. Árið 1995 keypti land-
inn 8.179.623 lítra af bjór, en 2007 var
sú tala komin upp í 19.443.965 lítra.
„Bjórinn stendur að verulegu leyti
undir þessari auknu áfengissölu og þar
sker Ísland sig úr hvað Norðurlöndin
varðar,“ segir Þórólfur. Rauðvín- og
hvítvínsala hefur aukist verulega hér,
líkt og á hinum Norðurlöndunum.
„Danmörk og Grænland eru líka
frábrugðin hinum Norðurlöndunum
því að þar fara tölurnar lækkandi. Um
miðjan níunda áratuginn neyttu Dan-
ir, 15 ára og eldri að meðaltali vel yfir
12 alkóhóllítrum á ári.“ Danir hafi hins
vegar nú dregið úr neyslu á bæði
sterku víni og bjór, þó vissulega sé
áfengisneysla bæði þeirra og Græn-
lendinga meiri en hinna Norður-
landaþjóðanna.
Áfengisneyslan eykst hins vegar
mest á Íslandi og Finnlandi. „Kaup-
máttur jókst meira á tímabilinu á Ís-
landi en í samanburðarlöndunum, þá
hefur hlutfallsleg lækkun á áfengis-
verði verið töluverð hjá okkur á Ís-
landi á þessum tíma.“ segir Þórólfur.
Hjá Finnum liggur hins vegar önnur
ástæða að baki. „Þeir tóku að selja
áfengi í matvöruverslunum og finnsk-
ar rannsóknir benda til að aukninguna
megi að einhverju leyti rekja til þess.“
Þórarinn telur því varhugavert að
flytja áfengissölu yfir í matvöru-
verslanir. „Unga fólkið mun alltaf vera
tilbúið að leggja á sig töluvert til að
kaupa áfengi, en hjá eldra fólki er
þetta oft spurning um aðgengi.“ Það
sé líka sá hópur sem sé farið að verða
vart við alvarleg heilsufarsvandamál
hjá í kjölfar aukinnar áfengisneyslu.
„Alvarlegasta afleiðingin hefur
nefnilega ekki verið fjölgun innlagna
hjá SÁÁ, heldur heilbrigðisvandamál á
borð við óafturkræfan heilaskaða af
völdum áfengisneyslu hjá fólki sem á
kannski tíu ár eftir af starfsævinni. Við
erum líka farin að verða vör við
skorpulifur og briskirtilskvilla, sem lít-
ið bar á áður og hefur nú fjölgað hratt
sl. tvö ár.“
Áfengissala á mann á Norðurlöndum 1991-2006
Alkóhóllítrar á mann 15 ára og eldri
1995 2006
12,6
11,7
11,3
12,1
8,3
10,1
7,2
4,8
4,8
6,3
6,5
6,8
6,8
6,2
Áfengissala á Íslandi eftir
helstu vöruflokkum 1995-2007
Ra
uð
ví
n
Hv
ítv
ín
Ró
sa
ví
n
Fr
ey
ði
ví
n
Sh
er
rý
Po
rtv
ín
Ko
ní
ak
/B
ra
nd
ý
Vi
sk
ý
Vo
dk
a
Gi
n
Lí
kj
ör
ar
An
na
ð
Bj
ór
Sala árið 1995
Sala árið 2007
Dæmi um sölu:
Árið 1995 seldust 603.056 lítrar
af rauðvíni, en 8.179.626 af bjór.
Árið 2008 seldust hinsvegar
2.195.248 lítrar af rauðvíni en
19.443.965 af bjór.
MINNKANDI kaupmáttur og
hærra áfengisverð vekur óneit-
anlega þá spurningu hvort draga
muni úr áfengisneyslu í kreppunni.
Þórólfur Þórlindsson telur að
brugðið geti til beggja vona í þeim
efnum. „Það verður athyglisvert
að sjá hvaða gerist því að uppi eru
tvær ólíkar tilgátur. Önnur segir
að hægja muni á aukningunni, en
hin kenningin segir að kreppan
leiði til félagslegrar upplausnar
sem svo aftur ýti undir áfeng-
isneyslu.
Að einhverju leyti erum við að
tala um efni sem valda fíkn og við
vitum því einfaldlega ekki hvaða
áhrif þessi samdráttur kemur til
með að hafa. Hingað til hafa verið
uppi vangaveltur um þetta, en nú
gefst okkur færi á að fylgjast með
því hvað raunverulega gerist.“
MEIRI NEYSLA
EÐA MINNI?
››
Einar Sigurðsson.
Ólafur Þ. Stephensen.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Á
tímum þegar tortryggni ríkir í
garð stjórnmálamanna og ann-
arra sem hafa pólitísk áhrif kem-
ur skemmtilega á óvart að sjá að
ráðherra í sérlega óvinsælli rík-
isstjórn Íslands skuli ná þeim áfanga að njóta
víðtæks trausts meðal þjóðarinnar.
Hvað eftir annað sýna skoðanakannanir að
þjóðin ber sérlega mikið traust til Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Jóhanna
er kannski ekki í hópi sýnilegustu ráðherra
ríkisstjórnarinnar en er heldur ekki í felum,
líkt og nokkrir ónefndir ráðherrar sem virðast
ekki treysta sér lengur í kastljósið þar sem
þeir undu sér þó áður löngum stundum.
Nú er það ekki svo að allir þeir sem segjast
bera traust til Jóhönnu Sigurðardóttur séu
hugsjónaríkir jafnaðarmenn sem sjá í henni öflugan full-
trúa bræðralags og jafnréttis í ríkisstjórn. Þarna eru
örugglega einnig harðsvíraðir sjálfstæðismenn sem hafa
einbeitta trú á markaðnum og önugir kommúnistar sem
vilja ekkert fremur en hverfa aftur til gamalla haftatíma.
Jóhanna fær ekki blessun þessa hóps vegna stjórnmála-
skoðana sinna heldur vegna þess að hún er talin heið-
arlegur, samviskusamur og iðinn stjórnmálamaður sem
starfar samkvæmt eigin sannfæringu. Hún hefur aldrei
gjörbreytt um karakter í tilraun til að afla sér fjölda-
fylgis. Hún sprellar ekki með fjölmiðlum í dægurþáttum
og krúttlegum innlitsviðtölum. Hún kærir sig ekki um of
mikla athygli sem er verulega óvenjulegt þegar stjórn-
málamaður á í hlut. Allt of oft finnst manni að
þeir sem ganga veg stjórnmálanna telji nauð-
synlegt að breyta um karakter. Þetta var í
byrjun ósköp venjulegt ágætisfólk sem fór
síðan smám saman að tala samkvæmt for-
skrift frá flokksskrifstofunni. Svo tók forrit-
unin algjörlega völdin og þá átti sjálfstæð
hugsun engan greiðan aðgang lengur inn í
heilabúið.
Hinn dæmigerði íslenski stjórnmálamaður
er þannig að manni finnst eins og honum geti
ekki dottið neitt í hug. Og eigin sannfæring
sem var þarna einhvern tímann finnst ekki
lengur. Það er eins og þessir stjórnmálamenn
hafi komist að þeirri niðurstöðu að lífið sé allt
of flókið til að hægt sé að standa með sann-
færingu sinni öllum stundum.
Vegna þessa taka menn eftir stjórnmálamönnum sem
hafa aldrei látið hvarfla að sér að kasta samvisku sinni og
sannfæringu. Miklu frekar hafa þessir stjórnmálamenn
lent í klandri vegna þess að þeir kunna ekki klæki og
geta ekki breytt persónuleika sínum. Fólk þessarar
gerðar hættir stundum í stjórnmálum frekar en að svíkja
sannfæringu sína. Það eru vissulega ekki margir stjórn-
málamenn þessarar gerðar en finnast sem betur fer. Það
eru því nokkrir réttlátir á þingi og jafnvel í ríkisstjórn.
Jóhanna Sigurðardóttir mælti á sínum tíma hin fleygu
orð að hennar tími myndi koma. Ekki verður annað séð
en að sá tími sé kominn. Og gæti staðið enn um sinn.
kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Hennar tími er kominn