Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 38
38 Vín MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is É g myndi ekki halda því fram að það væri sauðslegt en Pecorino 2007 er engu að síður vín – eða öllu heldur þrúga – sem dregur nafn sitt af rollum. Á þessu eins og öllu öðru eru til skýringar, eftir að vínviðurinn og búsmalinn höfðu deilt rými um alda skeið ætti engum að koma á óvart að þau dragi dám hvort af öðru. Hagar Pecorino hafa verið við Adría- hafsströnd Ítalíu en hún hefur löngum fyrst og fremst verið notuð til blöndunar, þ.e. að veita öðrum þrúgum smásýruskot þegar þurft hefur á að halda. Vínhúsið Umani-Ronchi (sem íslenskir vínunn- endur þekkja flestir í gegnum hvítvínið Casal di Serra) setti fyrir nokkrum árum í gang athyglisvert verkefni er miðar að því að endurvekja margar af óþekktari þrúgum austurstrandar Ítalíu. Kannski ekki ósvipað og Torres hefur gert með þrúgur Kata- lóníu. Pecorino 2007 er ferskt í nefi með fersku grasi, hveiti og geri, gulum perum og steinefnum (hvera- vatni). Sýran gerir vínið létt og lipurt og það ætti að vera ágætis fylgifiskur með t.d. salati og bleikju. 88/ 100 Annað hvítvín frá Ítalíu er Grecante úr smiðju Arnaldo-Caprai, eins besta framleiðanda Úmbríu. Ef maður vill alhæfa má segja að gott franskt vín einkennist gjarnan af mikilli fágun. Gott ítalskt vín hins vegar af lífsgleði. Það á við hér. Aðlaðandi og ferskur, sætur ávöxtur. Granny Smith-epli og per- ur, ferskar fíkjur og blóm. Það hefur þægilegt og ferskt bit og góða lengd. Tilvalið með flestu. 1.889 krónur. 91/100 Guntrum-fjölskyldan í Nierstein við Rín er með virtari vínhúsum Rheinhessen og hefur stundað vín- gerð á þessum slóðum frá sautjándu öld. Það er einnar ekru vín á borð við Niersteiner Ölberg og Oppenheimer Schutzenhutte sem er besta vín fjöl- skyldunnar en hér á landi er það einfaldara Ries- ling-vín í ögn sætari kantinum í áberandi bláum flöskum sem hefur fallið best í kramið. Louis Guntrum Dry Riesling er hins vegar Ries- ling að mínu skapi. Það hefur þægilega angan af sí- trónu og límónu í bland við ferskjur og snefil af steinefnum. Milliþungt í munni, þurrt en ekki skrjáfþurrt. Tilvalinn fordrykkur. 1.399 krónur. 88/ 100 Lambrusco-vín þykir ekki fínn pappír hjá mörg- um vínunnendum sem gretta sig og fetta þegar þeir heyra þetta orð nefnt. Ég skal fyrstur játa að Lam- brusco-nafnið er ekki gæðastimpill í sjálfu sér en rétt eins og með t.d. Soave og Valpolicella er hættu- legt að alhæfa. Lambrusco getur nefnilega verið af- bragð. Ólíkt því sem flestir halda er Lambrusco ekki samheiti yfir lélegt, sætt rautt freyðivín heldur þrúga en vissulega er framleitt úr henni lélegt, sætt rautt freyðivín. Það er líka framleitt úr henni þurrt rautt freyðivín sem er allt að því unaðslegt, ekki síst með góðum hádegisverði einhvers staðar í sveitum Ítalíu. Lini-fjölskyldan er ein þeirra sem framleiða Lam- brusco samkvæmt gömlum hefðbundnum aðferð- um, ekki ósvipuðum þeim sem notaðar eru við fram- leiðslu á kampavíni. Þetta er alvöru vín og valkostur fyrir þá sem vilja koma nýjungagjörnum gestum á óvart og vera svolítið „molto chic“ eða þá einfaldlega bara njóta af einstaklega góðu víni. Lini 910 Lambrusco Scuro er lítið djásn, berja- ríkt og ferskt með ferskri sýru og allt að því tann- ískt. Það vinnur á við hvern sopa. Ég myndi jafnvel reyna það með hangikjöti. 1.695 krónur. 91/100 Peter Lehman Seven Surveys 2006 er áströlsk blanda þriggja suður-franskra þrúgnategunda af gömlum vínvið, Shiraz, Mourvédre og Grenache. Það er ungt og örlítið hrátt með rabarbara og sýru- miklum berjum, þarf nokkurn tíma til að opna sig. Um margt reyndar líkara Frökkum úr Rón- ardalnum en Áströlum frá Barossa. Í nefi hellingur af ferskum rauðum berjum, kirsuberjum jafnt sem rifsberjum. Skarpt, meðallangt og sýrumikið og ber áfengið (14,5%) ansi vel. Með svínakjöti, paté og fleira. 1.699 krónur. 88/100 The Futures er annað Lehman-vín frá Barossa, hreint Shiraz. Það eru nokkrar Shiraz-tegundir frá Lehman í boði hér á markaðnum en þetta er það vín sem mér finnst að öllum jafnaði vera bestu kaupin, að teknu tilliti til gæða og verðs. Þétt og með góða ilm- og bragðfyllingu, dökkur, kryddaður ávöxtur með ríkjandi plómum og kaffi. Langt og mjúkt. Þol- ir ansi bragðmikinn mat. 2.399 krónur. 90/100 Getur vín verið sauðslegt? Morgunblaðið/Valdís Thor Þýskt Louis Guntrum Dry Riesling. Ástralskt Peter Lehman Seven Surveys 2006. Ítalskt Grecante, úr smiðju Arnaldo-Caprai. Ítalskt Pecorino frá Umani- Ronchi dregur nafn sitt af rollum. Ítalskt Lini 910 Lambrusco Scuro er lítið djásn, berjaríkt og ferskt. Ástralskt The Futures þolir ansi bragðmikinn mat. Útsölustaðir Weleda: Heilsuhúsin, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi , Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn , Sólarsport Ólafsvík, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Lyfjaver, Hagkaup, Lyfjaval, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. www.weleda.is Weleda jólagjafir Gleðja og veita vellíðan Lífrænt ræktað, án aukaefna Hafþyrnis sturtusápan, húðmjólkin og húðolían eru nærandi fyrir húðina Mildur appelsínu, mandarínu og grape ilmur hressir og kætir Villirósar baðmjólkin, húðmjólkin, húðolían og sturtusápan dekra við húðina Notalegur rósailmur sem lífgar jafnt upp á líkama og sál Náttúrulegt dekur daglega með sturtusápunum frá Weleda Sturtusápur í gjafakassa 4 tegundir, umbúðir með íslenskum texta Weleda jólavörurnar eru í fallegum gjafapokum með áföstu merkispjaldi Upplýsingar um jurtirnar á íslensku TB W A\ R EY KJ AV ÍK \S ÍA \0 83 86 8 Allir sem eiga miða í desember 2009 geta átt von á sérstökum 75 milljóna króna vinningi sem dreginn verður út í seinni útdrætti þann mánuðinn. Númerið fer einu sinni í pottinn fyrir hvern greiddan mánuð, þannig að sért þú með strax frá uppha árs, getur þú tólffaldað möguleikana. Nú fást miðar í sérstakri gjafaöskju á afmælissýningu okkar í Smáralind, hjá aðalumboði og umboðsmönnum um allt land. Gleddu vin og stuðlaðu um leið að uppbyggingu Háskólans. Svo getur þú auðvitað keypt einn fyrir þig í leiðinni! Nánari upplýsingar á sölustöðum, í síma 800 6611 eða á hhi.is. vænlegast til vinnings HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Gefur þú stærstu jólagjöfina í ár?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.