Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 45
Umræðan 45BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Jólagjafir með sál!
Gefðu öðruvísi jólagjafir í ár!
Langir laugardagar í desember.
Kíkið líka á síðuna okkar:
www.maddomurnar.com
Barnagæsla
Au pair Luxembourg
Okkur vantar au pair frá og með
janúar '08. Verður að vera með
bílpróf, verður að vera hörkudugleg
og sjálfstæð, 3 börn á heimilinu og
nóg að gera! Áhugasamar sendið
upplýsingar á:
daggabennett@hotmail.com
Dýrahald
Hundagallerí auglýsir
Smáhundar til sölu, kíktu á heima-
síðu okkar: www.dalsmynni.is
Sími 566 8417, bjóðum visa og euro
raðgreiðslur.
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri
Þrjú svefnherbergi (78 fm). Rúm fyrir
sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í síma 618-2800.
Húsnæði í boði
Til leigu við Elliðavatn
76 fm stórglæsileg glæný íbúð
við Akurhvarf 1, innifalið þvottav.
/þurrkari/uppþottavél,leðursófas
ett /borð, hússjóður, frábært
útsýni, suðursvalir. Leiga pr.
mánuð 110. Upplýsingar á
tölvupósti:. thorao@mbl.is og
s.896 3362.
Til leigu
Til leigu 4ra herb. íbúð í Efstuhlíð í
Hafnarf. Stutt í skóla, leikskóla og út í
náttúruna, dýrahald leyft, stór og
góður pallur með potti.
Uppl. í s. 867-4383 eða 865-5493.
Glæsiíbúð í Garðabæ. Til leigu 3-4
herb. tæplega 150 fm ný íbúð með
tveimur baðherb. og sérþvottaherb. í
íbúð og lokaðri bílgeymslu.
Suðursvalir. Falleg eign. Leiguverð
150 þús. á mánuði. Upplýsingar í
síma 897 0979 eða 894 4405.
Falleg stór fjögurra herbergja
íbúð, í nýlegu húsi í Borgarhverfi,
Grafarvogi, með sérinngangi og
garði. Nú þegar laus.
Upplýsingar í s: 899-7012.
Erum til í að deila húsnæði okkar
með, hár- snyrti- fóta og nuddfræð-
ingum. Uppl. í símum: 861 2100 og
892 5941.
Atvinnuhúsnæði
Verslunarhúsnæði óskast
á góðu verði
Er að leita að verslunarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu, 50-100 fm á
góðu verði. Þyrfti að vera laust sem
fyrst. Vinsamlegast hafið samband í
síma 694-4166. Áslaug.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Óska eftir að taka á leigu um 20 fer-
metra skrifstofuhúsnæði í hlýlegu
umhverfi, miðsvæðis í Reykjavík.
Hafið samband í síma 692-1414.
Bílskúr eða iðnaðarbil.
Óska eftir rúmgóðum bílskúr eða
iðnaðarbili til leigu. Upplýsingar
gefur Björn í síma 618 3575.
136 fm húsnæði til leigu á
Fosshálsi 27, 110 Reykjavík
í sama húsi og Bílasalan Höfðabílar
eru. Plássið er þar sem Bónstöðin var
starfrækt. Upplýsingar á Höfða-
bílum eða í síma 577 4747 eða á
netfanginu hogni@hofdabilar.is
Bílskúr
Bílskúr/geymsla til leigu -
Vesturbæ
Mánaðarleiga 40 þúsund. Sörlaskjóli.
Innifalið: Hiti, rafmagn, heitt og kalt
vatn. Frístandandi skúr 25 fm.
Sími 848-1718.
Sumarhús
www.floridahus.is
Glæsileg sumarhús í Orlando Flórída
til leigu. www.floridahus.is
info@floridahus.is
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Ókeypis skráningar á
namskeid.is
Ertu að halda námskeið? Þarftu að
koma þér á framfæri? Notaðu
tækifærið og skráðu námskeiðin þín
gjaldfrjálst á www.namskeid.is,
nema hvað!
Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð
1. áfanginn í Upledger höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð verður
haldinn í Reykjavík 7.-10. febrúar
2009. Uppl. og skráning á
www.upledger.is eða í s: 466-3090.
Saumanámskeið -
Saumanámskeið
Erum byrjaðar að skrá á vinsælu
kvöldnámskeiðin okkar sem haldin
eru á vinnustofu okkar að Suður-
landsbraut 52 á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum í
janúar. Námskeiðin hefjast 12.
janúar. Erum menntaðar og með
mikla reynslu í kjólasaum og klæð-
skurði, sem og fata- og búninga-
hönnun. Upplýsingar í síma 899 2208
(Helga Rún) og 772 3385 (Lillý
Aletta).
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Hannyrðir
Klæðskeragína óskast
Óska eftir að kaupa stillanlega
klæðskeragínu í small (brjóstm. 84-
104 cm). Hafdís: 898-4927.
Til sölu
Hólfin eru komin! - Geymdu það
sem þér þykir vænt um.
Öryggishólf fyrir heimili og hótel.
Rökrás ehf. Kirkjulundi 19.
Sími 565 9393. www.rokras.is.
Úr óskast
Notuð úr óskast úr stáli, gulli/stáli
eða gulli: Öll módel af; Rolex Subma-
riner, GMT, Yachtmaster og Daytona.
Panerai. Öll módel. Audemars Piquet
Royal Oak Offshore: Öll herramódel.
Úrunum verður að fylgja askja og
ábyrgðarsk. Staðgr. í euro eða isk.
Samb: eik@meisingset.dk eða
+452-811-3025 (enska).
Í OPNU bréfi Berglindar Ólínudótt-
ur í Morgunblaðinu 8. des sl. til heil-
brigðisráðherra gætir misskilnings,
en bréfið má skilja þannig að
Sjúkratryggingar Íslands hafi sent
fyrirspurn til lækna um hvort hægt
væri að minnka lyfjaskammta hjá
sjúklingum. Hið rétta er að stofn-
unin fylgist með lyfjaávísunum
lækna og bendir þeim á, ef þurfa
þykir, að við ávísun tiltekinna lyfja
gætu færri töflur með hærri styrk-
leika verið betri kostur bæði fyrir
hinn sjúkratryggða og sjúkratrygg-
ingarnar. Með því að velja meiri
styrkleika lyfs og fækka töflum í
hverjum lyfjaskammti má oft ná
fram umtalsverðri lækkun kostn-
aðar sjúkratrygginga, án þess að
það hafi áhrif á lyfjameðferð eða
aukin útgjöld fyrir sjúklinginn.
Hlutverk Sjúkratrygginga Ís-
lands er að hafa eftirlit með lyfja-
kostnaði og hvetja til hagkvæmrar
lyfjanotkunar. Ýmis lyf, s.s. lyf við
parkinsonssjúkdómi, lyf til sjúklinga
með flogaveiki og krabbameinslyf,
eru að fullu greidd af sjúkratrygg-
ingum. Mörg þessara lyfja og þá
sérstaklega ný lyf eru mjög dýr.
Starfsmenn Sjúkratrygginga Ís-
lands senda því læknum reglulega
bréf með upplýsingum um verð á
lyfjum og ábendingar um hagkvæm-
ari ávísanir, ekki síst ef vísbend-
ingar eru um að hægt sé að ávísa
færri töflum með meiri styrkleika.
Til grundvallar liggur sú staðreynd
að verð flestra lyfja er hlutfallslega
lægra eftir því sem styrkleiki hverr-
ar töflu er meiri. Ábendingar
Sjúkratrygginga Íslands kalla því á
óverulegar og stundum engar breyt-
ingar á skammtastærðum. Þær snú-
ast fyrst og fremst um að skapa
svigrúm fyrir meiri og betri þjón-
ustu við hina sjúkratryggðu.
Sem dæmi má nefna nýlegt lyf,
sem fáanlegt er í mörgum styrk-
leikum. Samkvæmt athugun kemur
í ljós að læknir ætlar sjúklingi að
taka inn þrjár töflur af 75 mg styrk-
leika tvisvar á dag, kostnaður
sjúkratrygginga er þá um 531 þús.
kr. á ári. Þetta lyf fæst á hinn bóg-
inn einnig með 225 mg styrkleika.
Ein tafla með þeim styrkleika er
jafnframt mun ódýrari en þrjár töfl-
ur með 75 mg styrkleika. Dag-
skammtur þessa lyfs er 450 mg.
Með því að miða lyfjaávísunina við
225 mg í stað 75 mg mætti lækka
kostnað sjúkratrygginga um 183
þús. kr. á ári fyrir þennan eina ein-
stakling. Ef hægt væri að breyta
ávísun hjá 10 einstaklingum myndi
lyfjakostnaðurinn lækka um 1,8
millj. kr. á ári.
GUÐRÚN I. GYLFADÓTTIR,
deildarstjóri lyfjadeildar
Sjúkratrygginga Íslands.
Ávinningur fyrir alla
Frá Guðrúnu Ingibjörgu
Gylfadóttur
Í ÖLLU gjaldeyr-
isharkinu er ljóst að
íslensk jólatré fá upp-
reisn æru. Gjaldeyrir
er ekki á hverju strái
og danskir höndlarar
selja ekki hvaða gáma-
sala sem er út á krít.
Allavega eru tækifæri
til sölu á íslenskum
jólatrjám sem aldrei fyrr. Und-
anfarin ár hafa skógræktarfélögin
lagt mikla áherslu á ræktun jóla-
trjáa. Kannski gagnast þessi fyr-
irhyggja þjóðarbúinu eitthvað á
þessum síðustu og verstu tímum. En
þegar upp er staðið er það auðvitað
fyrst og fremst undir íslenska neyt-
andanum komið hvort stofan verður
skrýdd íslensku tré um þessi jól. Ís-
lensk jólatré hafa hins vegar ekki
verið stór hluti af kökunni hingað til
þar sem lunginn af seldum trjám
hefur verið danskur „normanns-
þinur“.
Af markaði sem selur um 35 þús-
und tré eru um 8 þúsund íslensk eða
rúmlega 20%. Þar hafa skógrækt-
arfélögin selt 2/3 þessara íslensku
trjáa. Því miður hefur verið erfitt
fyrir skógræktarfélögin að keppa við
ódýran fjöldaframleiddan þin auk
þess sem rekinn var á árum áður
markviss áróður fyrir því að inn-
fluttu trén væru betri. Það var og er
ekki rétt að halda því fram vegna
þess að varla er hægt að hugsa sér
óvistvænni vöru en dönsk jólatré eða
amerísk eða kínversk gervitré.
Danski normannsþinurinn er t.d. úð-
aður tvisvar til þrisvar á ári með
eitri til að koma í veg fyrir skordýr
og sveppafár og til að halda grasi og
illgresi í skefjum. Skógrækt-
arfélögin fóru því fyrir nokkrum ár-
um vegna erfiðrar stöðu að bjóða
fólki út í skógana þar sem fjöl-
skyldum var boðið upp á að velja
eigið tré. Þessi valmöguleiki hefur
slegið í gegn og hefur
farið vaxandi ár frá ári.
Með þessu er bæði ver-
ið að sameina heilbrigða
útiveru og tilhlökkun og
skemmtilega hefð sem
tengd er komu jólanna.
Skógræktarfélögin taka
vel á móti fólki og yf-
irleitt kemur fólk ár eft-
ir ár þegar það hefur
einu sinni tekið upp
þennan sið.
Skógræktarfélögin
eru frjáls félagasamtök og umsjón-
araðilar fjölsóttustu útivistarsvæða
landsins og hafa í æ ríkara mæli
reitt sig á afrakstur af sölu jólatrjáa.
Söluhagnaðurinn er notaður til að
byggja upp innviði og bæta aðstöðu
á útvistarsvæðum félaganna, s.s.
með stígagerð grisjun og gerð án-
ingarstaða, svo fátt eitt sé nefnt. Sal-
an er vaxandi þáttur í starfi félag-
anna og góð tenging við fólkið í
landinu. Skógræktarfélögin skynja
að ekki munu allir koma út í skógana
að sækja tré og hafa því unnið mark-
visst að aukinni hlutdeild íslenskra
trjáa á hinum almenna markaði.
Þessi markvissa áætlun er m.a. unn-
in í samvinnu við Blómaval/
Húsasmiðjuna sem hefur með öfl-
ugum stuðningi lagt þessu verkefni
lið. Það er von okkar að sem flestir
leggi starfi skógræktarfélaganna lið
að þessu sinni.
Fátt er svo
með öllu illt
Brynjólfur Jónsson
hvetur til kaupa á
íslenskum jóla-
trjám
Brynjólfur Jónsson
» Söluhagnaðurinn er
notaður til að byggja
upp innviði og bæta að-
stöðu á útvistarsvæðum
félaganna, s.s. með
stígagerð, grisjun og
gerð áningarstaða, svo
fátt eitt sé nefnt.
Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Ís-
lands.
Á SL. hausti gaf Þjóðminjasafn Ís-
lands út bókina „Þjóðin, landið og
lýðveldið“, fallega myndabók í tilefni
sýningar safnsins á ljósmyndum
Vigfúsar Sigurgeirssonar, sem safn-
ið setti upp einnig sl. haust, mjög að
verðleikum.
Sá galli er á þessari „gjöf“ að í
myndatexta bókarinnar, nánar til-
tekið á bls. 172, er rangt farið með
nafn eins manns og stöðuheiti ann-
ars og þetta skeður þrátt fyrir að rit-
stjóri bókarinnar hafi leitað sér upp-
lýsinga um nöfn þeirra, sem á
myndinni (sjá bls. 140) eru.
Öllum geta orðið á mistök og
reyna flestir að leiðrétta þau, en þá
nýlundu bar nú til að þegar ég, sem
þó, reyndar án þess að óska þess, er
tilgreindur meðal heimildarmanna
bókarinnar ásamt nánum frænda
mínum og ýmsu fólki öðru, að bæði
ritstjóri, og fremst talin ritnefnd-
armanna, þjóðminjavörður, hunsa
alveg óskir mínar um að gera á bók-
inni leiðréttingu og þá vaknar spurn-
ingin hvers vegna vilja þær stöllur
ekki leiðrétta rangan texta, sem eng-
inn ætlar að sé annað en óviljaverk.
Allir, sem kunnugleika hafa af
málinu gætu ályktað sem svo að ég
og frændinn hefðum annar ekki
kunnað skil nafns föður síns og hinn
ekki nafns móðurbróður síns og
hvorugur vitað stöðu sameiginlegs
afa okkar, það væri auðvitað frekar
leitt fyrir okkur, án þess að ég hafi
rætt það frekar við hann. Hitt er þó
miklu alvarlegra að í bók útgefinni af
Þjóðminjasafni Íslands sé að finna
rangfærslur og þá enn frekar að út-
gefandi vilji alls ekki leiðrétta rang-
færsluna, sem þó er lítið verk. Það er
nefnilega „sóðaskapur“ að fara rangt
með nöfn manna geri menn það að
vilja eða neiti að færa til rétts vegar.
Hin villan er léttvægari en rangt
með farið engu að síður.
Nú hlýt ég að spyrja þær ritstjóra
og þjóðminjavörð: Af hverju vilja
þær ekki „hafa það sem sannara
reynist“ eins og upphafsmaður rit-
unar Íslandssögunnar ráðlagði þó á
sinni tíð. Þykja það ekki góð vinnu-
brögð í Þjóðminjasafni Íslendinga
nú á tímum?
Reykjavík 3. desember 2008
EINAR B. BIRNIR,
eldri borgari.
Að hafa það sem sannara reynist
Frá Einari B. Birnir
Sími 551 3010