Morgunblaðið - 14.12.2008, Side 49

Morgunblaðið - 14.12.2008, Side 49
Minningar 49 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 ✝ Þuríður Sig-urjónsdóttir hár- greiðslumeistari, eða Systa eins og hún var oftast kölluð, fæddist á Krókvöllum í Garði á jóladag, 25. desem- ber 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi 26. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sigurjón Jóns- son og Guðríður Sum- arrós Stefánsdóttir, en þau slitu samvistir. Systa átti þrjú alsystkini sem öll eru látin. Samfeðra átti hún fimm hálf- systur. Eftirlifandi eru Ágústa, Bergþóra, Elín og Inga. Systa giftist hinn 4. desember 1948 Sveini Guð- mundssyni, garð- yrkjubónda frá Reykjum í Mosfells- sveit, d. 27. ágúst 1986. Börn þeirra eru: Jón Eiríkur, sam- býliskona Tony Sveinsson, Sveinn, kvæntur Bergrósu Þorgrímsdóttur, Guð- mundur Ingi, kvænt- ur Þóru Einarsdóttur, Kristinn Már, sam- býliskona Elín Bára Einarsdóttir, Sigríður Huld, sambýlismaður Kristján Guð- laugsson, og Vigdís, gift Guðjóni Rúdolf Guðmundssyni. Útför Systu fór fram frá Lága- fellskirkju 5. desember, í kyrrþey. Elskuleg tengdamóðir mín er nú fallin frá. Það var árið 1978 að ég kynntist þessari glæsilegu og stórbrotnu konu. Systa var einstök kona. Hún mátti ekkert aumt sjá og var ákaf- lega bóngóð. Heimili Systu og Sveins Guðmundssonar var ætíð op- ið vinum, vandamönnum og einnig vandalausum. Þau voru ófá börnin sem nutu þess að búa og njóta að- hlynningar þessara heiðurshjóna. Systa var mikill bóhem, naut þess að lesa góðar bókmenntir. Til að mynda var Halldór Laxness í sér- stöku uppáhaldi og átti Systa það oft til að vitna í Halldór. Það var í raun eitt af einkennum Systu að svara börnum sínum með tilvitn- unum í stóru skáldin eða nota máls- hætti og ljóðabrot sem svör við spurningum. Ljóðalestur var í sérstöku uppá- haldi. Systa bókstaflega drakk ljóð- in í sig og kunni hún ógrynni ljóða utanbókar. Hún sagði mér það eitt sinn að stundum vaknaði hún með 1-2 ljóðlínur í kollinum og væri ekki í rónni uns hún fyndi hver væri höf- undur og restina af ljóðinu. Til ljóðarannsókna var fræg bókahilla í stofu þeirra hjóna, með safni ljóðabóka. Bókahilla þessi var þeim göldrum gædd að oftar en ekki komst Systa ekki fram hjá henni, til að mynda við afþurrkun án þess að tylla sér niður og gleyma sér bróðurpart dagsins við ljóða- lestur. Systa hafði einnig mikið yndi af því að fara í leikhús. Systa og Sveinn ferðuðust mikið. Eftir hans dag hélt Systa áfram að ferðast, fyrst með góðri vinkonu sinni Gunhild Bjarnason og síðar með félagi eldri borgara í Mos- fellsbæ. Fjölskyldan var Systu allt. Hún var ekki mikið fyrir að fara af bæ en naut þess hins vegar að fá heim- sóknir sinna nánustu. Um jól, páska og á sprengidag bauð hún ávallt stórfjölskyldunni til veislu og var þá oft glatt á hjalla. Systa var mikið jólabarn enda fædd á jóladag. Systa föndraði jólaskraut og skreytti heimili sitt þannig að sannkallað jólahús varð til, barnabörnunum til mikillar gleði. Ófá eru líka útsaum- uðu jólakortin sem hún sendi okkur fjölskyldunni, þau eru nú aðals- merki jólanna á mínu heimili. Systa var einstök hannyrðakona og var þá sama hvort var prjóna- skapur, útsaumur, klippilistaverk, perlusaumur svo ekki sé talað um postulínsmálun. En um áttrætt hóf Systa að mála á postulín og það af stakri snilld. Liggja eftir hana hinir ýmsu munir hjá öllu hennar fólki. Í 15 ár bjó tengdamóðir mín á neðri hæð húss okkar hjóna og fór afskaplega vel á með okkur, kaffi- sopi, sígaretta og spjall var dag- legur viðburður. Barnabörnin voru líka ávallt velkomin. Síðustu fjögur árin dvaldi Systa að hjúkrunarheimilinu Eir, þar sem hún naut aðhlynningar frábærs starfsliðs. Elsku Systa, ég mun sakna sam- ræðustundanna okkar og þinnar djúpu visku. Ég mun ætíð hugsa með hlýhug og virðingu til þín sem og öll mín fjölskylda. Innilegar samúðarkveðjur til barna Systu, maka þeirra, barna- barna og barnabarnabarna. Sá sem á vini er umvafinn ástúð og verndaður gegn kaldranaleika heimsins og einmanakenndinni. (Pam Brown.) Hvíl þú í friði um alla eilífð. Þín tengdadóttir, Bergrós Þorgrímsdóttir. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hún Systa mín er gengin á fund feðra sinna, þreytt á veikindum og vanmætti. Ég var aðeins níu ára þegar ég kom til þeirra hjóna Sveins og Systu að Bjargi í Mos- fellssveit. Á Bjargi var alla tíð mjög gestkvæmt enda þau hjón vinmörg og alltaf tilbúin að gleðja og hjálpa öðrum. Sumarið leið og litla vinnu- konan fór úr vistinni upp í Ásgarð til mömmu sinnar en Svenni keyrði mig. Við fjósvegginn á Efra-Hvoli tók hann mig í fang sitt – þakkaði mér fyrir sumarið og rétti mér um leið umslag með stærri seðli en ég hafði augum litið. Það var eins og Systa gæti gert allt í einu, bakað, saumað, tekið til og samt alltaf tilbúin að taka á móti gestum og gangandi glöð í sinni. Hún hafði lært hárgreiðslu og lokið meistararéttindum í þeirri grein. Á þeim tíma eignaðist hún Eirík sem var hennar elsta barn og Sveinn ættleiddi síðar. Ekki lék lánið við þessa ungu fallegu konu – því berklarnir tóku af henni völdin. Guðríður móðir hennar tók barnið að sér meðan hún var að ná heilsu. Þegar legunni á Vífilsstöðum lauk var búið að stofna Vinnuheimilið á Reykjalundi og þangað fór Systa með þeim fyrstu. Þar leit hún verð- andi lífsförunaut sinn, Svein Guð- mundsson garðyrkjubónda, fyrst augum. Þau hófu búskap sinn á Bjargi, í tvíbýli við Þórð bróður Svenna og Freyju konu hans. Systa unni heim- ili sínu mjög og Svenni sá til þess að alltaf væri nóg af blómum í kring- um hana enda frúin með græna fingur. Þegar fækkaði í húsinu lang- aði húsfreyjuna til að breyta til og vann hún nokkur ár í Kaupfélagi Kjalarnesþings hjá Jóni mági sín- um. Þar eignaðist hún fjölda félaga og vina sem margir hverjir héldu tryggð við hana svo árum skipti. Hún var næm á fólk, félagslynd, ákveðin og hreinskiptin. Nokkru eftir að hún hætti að vinna fór hún að starfa með „heldri borgurum“ í sveitinni og þar naut hún sín vel og sótti starfið eins og hún kallaði það lengi vel eftir að hún var komin á Eir. Ég nefndi græna fingur en þeir voru líka fimir þótt kræklóttir væru orðnir, því hún útbjó öll sín jóla- og tækifæriskort í þrívídd og ávallt fylgdi vísa með því hún var með ein- dæmum ljóðelsk. Meðan Sveinn eiginmaður hennar lifði ferðust þau mikið og náðu að heimsækja mörg lönd með karla- kórum sem Sveinn söng í, enda hafði hann einstaklega fallega ten- órrödd. Ég minnist þess þegar hann varð fertugur – þá kom að ég held allur Karlakór Reykjavíkur að Bjargi og þá var nú mikið sungið. Hún ferðaðist einnig með félögum sínum í „starfinu“ og þar var Svan- hildur betri en enginn, því þá voru fæturnir farnir að gefa sig. Það reyndist henni erfitt að fara frá Bjarginu sínu en hún fór þó ekki langt til að byrja með heldur flutti til Sveins sonar síns og tengdadótt- ur í séríbúð sem þau höfðu útbúið og léttu þau henni lífið á alla lund. Börnin hennar öll, tengdabörn og barnabörn voru alltaf velkomin. En svo kom að því að hún varð að fara vegna heilsunnar og flutti þá á Eir þar sem henni leið eins vel og kosið verður og langar mig til að þakka öllu því góða fólki sem starfar á Eir og létti henni lífið. Systa hvílir í kirkjugarðinum á Lágafelli, við hlið Sveins eigin- manns síns og tveggja dóttursona þeirra sem létust í frumbernsku. Ég fylgi henni í huganum – með hvíta dúfu á vinstri öxl og bið góðan guð að geyma vinuna mína og styrkja og styðja alla hennar af- komendur. Herdís Björnsdóttir (Dísa). Þuríður Sigurjónsdótt- ir (Systa) ✝ Sigrún Gunn-arsdóttir Nielsen er látin. Hún fæddist í Reykjavík 11. febrúar 1948 og lést í Dan- mörku 26. október sl. Foreldrar Sigrúnar voru þau Björg Sig- ríður Hermannsdóttir og Gunnar Gíslason, en þau eru bæði látin. Systkini hennar eru Hermann fjöl- miðlamaður, Ragnar blikksmiður og Kol- brún húsmóðir. Sigrún fór ung til Danmerkur til náms og kynntist þá fljót- lega eftirlifandi eig- inmanni sínum Jeppe Nielsen. Þau voru gift í 38 ár og eignuðust tvö mannvænleg börn, Gunnar og Edith, sem bæði hafa eignast tvö börn með mökum sínum. Útför Sigrúnar fór fram frá Ramlöse- kirkju 1. nóvember síðastliðinn. Ástkær og elskuleg systir mín er dáin, eftir stutta en erfiða viðureign við illvígan sjúkdóm, en hún barðist hetjulega og hélt reisn sinni til hinstu stundar. Sigrún var aðeins 14 mánuðum yngri en ég og urðum við strax mjög náin og sterkur strengur á milli okkar alla tíð, enda var hún fyrirmynd mín á flestum sviðum, stórkostleg persóna og kærleiksblómið mesta í okkar fjöl- skyldu. Þá var hún frábær móðir og ástrík eiginkona, sem vildi alla tíð gefa meira en þiggja. Við fæddumst bæði á Bárugöt- unni í Vesturbæ Reykjavíkur, en móðir okkar vildi eiga börn sín heima og þar ólumst við upp fyrstu níu æviárin í líflegum félagsskap barna á þessum slóðum. Við leidd- umst í leikskólann og vildi ég vernda hana og verja á alla vegu, en síðar átti hún eftir að verða mitt leiðarljós og leiðbeinandi. Við fórum bæði í sveit í Haukadalinn í Dýra- firði og varð sá staður og tími þar okkur báðum mjög dýrmætur og þá ekki síður hjónin Unnur og Valdi, sem aldrei hverfa úr huga okkar beggja. Síðar nutu yngri systkini okkar kærleikans að Húsatúni. Þau Sigrún og Jeppe bjuggu sér fallegt heimili í Kaupmannahöfn og síðar í glæsilegu einbýlishúsi í Hels- inge og var það alla tíð opið vinum og vandamönnum, enda voru þau höfðingjar heim að sækja. Þau hjónin voru ákaflega samrýnd og lögðu mikla áherslu á samveru- stundir fjölskyldunnar frá fyrstu tíð. Skíðaferðir til Svíþjóðar og ferðalög um Evrópu höfðu forgang, jafnvel þótt þau stæðu í stórræðum í húsnæðismálum, já fjöldskyldulífið kom alltaf fyrst og svo naglarnir síðar. Aldrei gleymdi Sigrún uppruna sínum og ræktaði fjölskylduböndin hér á landi og kom oft í heimsóknir til Íslands og gaman var að fylgjast með því hversu mjög Jeppe og börnin hrifust af landi og þjóð. Sig- rún og Jeppe höfðu ákaflega skemmtilega lífssýn og gildismati þeirra var viðbrugðið á nánast öll- um sviðum og væri vafalaust mörg- um til eftirbreytni. Þau höfðu komið sér vel fyrir í draumahúsi, áttu stórverslun og þeim gekk allt í hag- inn. En skömmu fyrir fimmtugs- afmæli Sigrúnar, ákváðu þau að selja allar eigur sínar, en tryggja þó framtíðaröryggi. Þau gátu bæði fengið aðra atvinnu, keyptu lítið húsnæði og greiddu börnum sínum fyrirfram arf, en þá voru þau bæði að hefja búskap. „Þau hafa ekkert við peninga að gera á fullorðins- árum,“ sagði Sigrún þegar hún var spurð um ástæður þessa og fullyrti að nú þyrftu þau á stuðningi að halda. Þegar þau höfðu gengið frá öllu þá héldu þau í heimsreisu, sem átti að standa í þrjú ár og þau ætluðu að dvelja þar sem þeim liði best hverju sinni. Sigrún sagði mér að hún hefði engan áhuga á því að gera þetta á inniskóm á níræðis- aldri, heldur njóta lífsins meðan kostur væri. Sigrún var einstaklega góðhjörtuð og gjafmild og á legstein hennar í Ramlöse er letrað: Heims- ins besta eiginkona og móðir og eru það orð að sönnu í hjörtum þeirra, sem til hennar þekktu og sannar- lega var hún besta systir í heimi. Ég veit að hún mun leiða okkur systkinin, umvefja okkur hlýhug og kærleika þegar við hittumst á ný. Blessuð sé minning stórkostlegrar systur, móður og eiginkonu. Fyrir hönd okkar systkinanna, Hermann Gunnarsson. Sigrún Gunnarsdóttir Nielsen                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Minningarathöfn um elskulegan eiginmann, föður, tengdaföður, afa og langafa, TRAUSTA GUNNARSSON, Eskihlíð 12b, Reykjavík, sem saknað er á Skáldabúðaheiði, fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 17. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Guðrún Magnea Karlsdóttir, Halldóra Traustadóttir, Friðþór Jakobsson, Gunnar Traustason, Hélène Fouquet, Anna Traustadóttir, Ófeigur Ingi Gylfason, Gunnar Ingi, Sara, Alexander, Jakob, Fanney, Ísak, Harpa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.