Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 51
Minningar 51 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Nokkru seinna var ég sjálfur far- inn að sniglast í kringum Hljóma og síðan Trúbrot enda tónlistaráhug- inn engu líkur. Og svo þegar ég var farinn að vinna með vini mínum Magga Kjartans og strákunum í Júdas kom upp sú hugmynd að gefa út plötu. Rúnar var rétti maðurinn til að tala við því hann kunni til verka, var útgefandi og poppari í vinsælustu hljómsveit landsins. Hann tók vel á móti mér og var tilbúinn að veita góð ráð. Alltaf brosandi, glaður og jákvæður, sagði aldrei nei, bara já. Þegar ég var kominn með mitt eigið útgáfufyrirtæki gat ég launað greiðann. Þá gerðum við munnlegt samkomulag. Hann kláraði upptök- urnar á Geimsteinsplötunum og lét hanna umslögin. Við sáum um framleiðslu og sölu og fjármögn- uðum þann hluta. Þegar vel gekk fengu allir eitthvað fyrir sinn snúð. Þegar illa gekk biðu reikningarnir þar til næsta metsöluplata kom út. Þetta var ekkert stórmál. Rúnar stóð alltaf við sitt, hans orðum var treystandi og það þurfti aldrei að efast um heilindi hans. Við Rúnar áttum margar góðar stundir saman. Hann kom oft í heimsókn í Skífuna, leit alltaf inn á skrifstofuna mína með sólskinsbros- ið sitt og hlýja viðmótið. Nærvera hans var góð og gefandi. Um hver jól sendu hann og María góðar kveðjur og myndir af fjölskyldunni. Þegar Rúnar var beðinn um eitt- hvað var hann alltaf tilbúinn að taka að sér hvaða verk sem var. Hann veitti mörgum góðum málum lið, spilaði ókeypis á tónleikum til að safna fjármunum fyrir aðra og taldi það aldrei eftir sér. Rúnar hélt tryggð við Keflavík. Þar vildi hann búa og hvergi annars staðar þó að flestir úr bransanum flyttu til höfuðborgarinnar. Hann var eftirlætissonur Keflavíkur, maðurinn sem neitaði að leggja nafn Keflavíkur niður og hótaði að flytja úr bænum ef nafninu yrði breytt. Það eru einu opinberu mót- mæli hans. Rúnar var fastur fyrir þegar því var að skipta og hafði sín- ar bjargföstu skoðanir. Þeim breytti enginn því hann var mjög fylginn sér þótt hann færi vel með það. Nú er þessi góði drengur fall- inn frá alltof ungur, en það verður okkar sem eftir lifum að halda minningu hans á lofti og nafni Keflavíkur. Far vel kæri vinur. Ég sendi samúðarkveðjur til Maríu, sona og barnabarna. Jón Ólafsson. Sl. föstudag var jarðsunginn einn af frumkvöðlum íslenskrar rokk- sögu og líklega einn mesti áhrifa- valdur heillar kynslóðar. Þegar slík mikilmenni hverfa af sviðinu er eins og hluti af okkur hverfi líka. En Rúnar Júlíusson var ekki bara þekktur persónuleiki og tón- listarmaður því hann hafði þannig nærveru að allir sem fengu að um- gangast hann fengu samstundis ást á honum. Rúnar var hljóðlátur og hæverskur og bar með sér góð- mennsku og hlýju sem varð til þess að í návist hans var ekki þörf á því að leika eða setja upp einhvers kon- ar grímu. Hann hafði beittan húmor og var alltaf tilbúinn í einhvers kon- ar galsa til þess að gera augnablikið skemmtilegra. Rúnar var feikiduglegur flytjandi og þegar búið var að telja í var varla farið í pásu fyrr en að dans- leik loknum. Sem útgefandi var hann farsæll og gaf út rúmlega 250 titla á 30 árum. Rúnar var alla tíð félagsmaður í FÍH og var reglulega í sambandi við skrifstofu FÍH. Það var alltaf gaman að heyra í Rúnari, hvort sem það var til þess að leysa eitt- hvert tónlistartengt mál eða eitt- hvað af persónulegum toga. Hinn 18. nóvember sl. kom Rún- ar fram fyrir hönd FÍH á baráttu- fundi sem ASÍ hélt í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Í kynningunni minnti hann fundarmenn á að ham- ingjan væri ekki fólgin í verald- legum auði og að til væru auðæfi sem væru verðmætari en fjármunir. Rúnar gerði þetta af þeirri einlægni sem honum var tamt og söng svo „Hamingjulagið“ fyrir fundarmenn. Það var auðfundið hversu vænt Suðurnesjamönnum þótti um Rúnar og að máltækið enginn er spámaður í sínu heimalandi átti greinilega ekki við í Keflavík. Við hjá FÍH kveðjum Rúnar Júl- íusson með þakklæti fyrir samferð- ina sem var svo allt of stutt. Stjórn og starfsfólk FÍH sendir fjölskyldu Rúnars innilegar samúð- arkveðjur. Sigurgeir Sigmundsson. Við félagarnir kynntumst Rúna Júl við gerð heimildamyndarinnar Bítlabærinn Keflavík. Bæði Rúni Júl og Bítlabærinn Keflavík hafa verið áberandi eins lengi og við munum eftir okkur. Eftir því sem við köfuðum dýpra kom í ljós, eins og okkur hafði reyndar grunað, að þetta voru algjörlega óaðskiljanleg fyrirbæri. Rúni var andlit, hryggj- arsúla og kyndilberi bæði Bítlsins og Keflavíkur. Rúni var óþreytandi töffari sem hélt uppi stuðinu í ára- tugi. Hann dreif menn með sér og stóð með sínum. Það var okkur sannur heiður að kynnast Rúna og fá að vinna með honum. Drenglyndi, kraftur og lúmskur húmor einkenndu þennan vin okkar og félaga. Rúni, þú varst ræktarlegur og rausnarlegur rokkhundur. Við vott- um Maríu og fjölskyldunni innilega samúð um leið og við þökkum fyrir okkur. Við erum öll Keflvíkingar inn við beinið! Þorgeir Guðmundsson, S. Björn Blöndal, Óttarr Ólafur Proppé. Ég kynntist Rúnari Júlíussyni fyrir 20 árum og vinátta okkar alla tíð byggð á traustum grunni virð- ingar. Rúnar var sú manngerð sem laðar að sér fólk, hvers manns hug- ljúfi og gefandi persóna. Við áttum saman stundir í eldhúsinu á upp- tökuheimilinu Geimsteini og feng- um okkur kaffi og ræddum málin. Rúnar hafði gaman af sögum mín- um og lífssýn, ekki síður en vanga- veltum um Ljósanótt og sameig- inlegt áhugamál okkar um þátttöku í samfélagslegum verkefnum. Svör hans og taktar voru sérstök, stuttir frasar og gefandi bros sem gaf í hláturinn. Þessar stundir okkar voru afslappaðar og virkuðu vel á okkur báða. Texti frá Rúnari segir þetta allt. „Það þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig.“ Þá var flott hollingin á honum; leðurvestið, köflótta skyrtan, gallabuxur og í crocks-skóm. Gítarnælan í jakkan- um þegar hann var flottur á’því og eyrnalokkur dinglandi í vinstra eyra. Hann var maðurinn. Það hafði slitnað strengur um ár- ið og takturinn breyttist sagði Rún- ar í auglýsingu. Það sást þegar ég hitti hann oft í morgunsárið, þegar greifinn kom gangandi norður Kirkjuveginn rétt fyrir kl. 07:00, í anorakknum með hettuna upp fyrir haus og bláa bakpokann á bakinu. Þau voru orðin kraftminni og stutt skrefin, hann álútur, stoppaði og horfði á mig undan augabrúnunum. Hann sagði alltaf eitthvað gott, montaði sig af árangri Keflvíkinga í boltanum eða talaði fallega um veðrið, líka vonda veðrið. Við hentum stundum gaman að því hvað Rúnar var hjólbeinóttur og þegar hann gekk áfram kallaði ég á eftir honum: „Ég sé kirkjuna í gegnum klofið á þér.“ Ég uppskar hlátur. Í gömlum texta segir: „Hvað stoðar lífið, dauðinn sigrar alla?“ Einmitt! Hvað hefur Rúnar Júl- íusson gert meira við lífið en kunna á því tök að fara vel með frægð og frama? Hann hefur gefið af sér og tekið þátt í því að leggja öðrum lið. Síðasta verk hans í þessu lífi, síð- ustu tónleikarnir nokkrum stundum fyrir dauða hans, voru á fundi MND-samtakanna þar sem hann spilaði fyrir sjúklingana, gaf þeim diska og styrkti samtökin eins og hann hafði áður gert. Í sumar var hér staddur Evald Krog, formaður dönsku MND-samtakanna, ásamt vini okkar Guðjóni Sigurðssyni, for- manni MND. Við mættum í Upp- tökuheimilið, en Evald, þrátt fyrir nær algjöra fötlun, syngur mikið og hefur yndi af. Evald lá í stól sínum, tengdur öndunarvél, og Rúnar stóð við hlið hans, spilaði og söng með Evald óskalög hans. Það var að byrja fótboltaleikur hjá Keflavík, – þar mætir Rúnar alltaf, við heyrðum fagnaðarlætin en Rúnar gaf þessum fatlaða manni allan þann tíma sem hann vildi. Þegar okkur fannst komið nóg sagði Rúnar: „Verið róleg, ekkert liggur á.“ Leikurinn var löngu bú- inn. Sú gleði og góðvild sem þessi fatlaði maður og við sem á horfðum urðum vitni að snerti okkur djúpt á þessari stundu. Ef þetta var ekki stórstjörnuframkoma þá er hún ekki til. Nú hljóma tónar hans í himin- stórum sölum eilífðarinnar, en minningin um Rúnar Júlíusson á sér stað í hjarta mínu og okkar allra. Blessuð sé minning góðs manns, sem Hljómar mér. Ásmundur Friðriksson. ✝ Okkar ástkæri faðir, sonur og bróðir, LEÓ KRISTJÁN SIGURÐSSON, Hátúni 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 27. nóvember. Útför fer fram frá Höfðakapellu Akureyri þriðjudaginn 16. desember kl. 13.30. Kristófer Leósson, Sigurður F. Leósson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður L. Sigurðsson, Ester Halldórsdóttir. ✝ Okkar ástkæra móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir, SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Eyrarholti 4, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. desember kl. 13.00. Sigurður Halldór Bjarnason, Ágústa Árnadóttir, Guðrún Magnea Gunnarsdóttir, Gunnar Sigurðsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓNHEIÐUR BJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, Krummahólum 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. desember kl. 13.00. Steinar Ásgrímsson, Patricia Otman, Egill Ásgrímsson, Svava Svavarsdóttir, Jón Þór Ásgrímsson, Arnleif Alfreðsdóttir, Guðjóna Ásgrímsdóttir, Jón Magni Sigurðsson, Ólafur Ásgrímsson, Hanna Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar bestu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ERLENDS STEINGRÍMSSONAR, Prestbakka 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Jakobi Jóhannssyni krabbameinslækni, starfsfólki Landspítalans við Hringbraut, deild 11E og líknardeildinni í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju. Guðný Björg Guðmundsdóttir, Steingrímur Erlendsson, Ingibjörg Erlendsdóttir, Ómar Ingi Gylfason, Henrik Erlendsson, Ásgeir Erlendsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri JÓN HALLDÓRSSON húsasmíðameistari frá Arngerðareyri, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 16. desember. Athöfnin hefst klukkan 13.00. Steinunn Jónsdóttir, Halldór Jónsson, Rannveig Jónsdóttir, Kristín S. Jónsdóttir, Óli Hilmar Briem Jónsson, Guðrún S. Jónsdóttir, Þórður Ingvi Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Sendum okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa okkur hlýhug, vináttu og stuðning við fráfall og útför elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu, BERGRÚNAR JÓHÖNNU ÓLAFSDÓTTUR, Einbúablá 44a, Egilsstöðum, sem lést sunnudaginn 9. nóvember. Helga Berg, Ólafur Arason, Sigrún Pálsdóttir og ömmustrákarnir. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.