Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 56
56 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
3 4 2 6 9 7
4 1 5 3
3 1 2
2 3 6
9 6 7 5
8 9 6
6 1 3
3 9 5 2
2 5 8 1 3 7
5 4 3
6 5 1
9 8 6
4 6 3 2
3 7 2 8
6 4 9 3
8 9 4
9 2 6
4 5 8
1 4 6 7 9
9 6
6 5 4
2 7
2 7 3 4 9 1 5
3 6
7 6 3
3 2
1 7 3 4 2
3 8 4 6 5 9 1 2 7
1 5 9 2 7 4 3 6 8
2 6 7 3 8 1 4 9 5
8 9 5 7 6 3 2 4 1
7 4 1 5 9 2 6 8 3
6 3 2 1 4 8 7 5 9
9 1 6 4 3 5 8 7 2
4 2 8 9 1 7 5 3 6
5 7 3 8 2 6 9 1 4
9 1 5 8 6 4 7 2 3
3 2 6 1 9 7 5 8 4
8 4 7 2 3 5 9 1 6
7 3 9 4 2 6 1 5 8
2 6 8 3 5 1 4 9 7
1 5 4 7 8 9 6 3 2
6 8 1 9 4 3 2 7 5
4 7 3 5 1 2 8 6 9
5 9 2 6 7 8 3 4 1
9 7 5 1 6 4 8 3 2
4 1 3 2 8 5 7 6 9
2 8 6 7 9 3 1 5 4
8 4 9 6 5 7 2 1 3
1 5 2 4 3 8 9 7 6
3 6 7 9 2 1 4 8 5
7 9 1 3 4 6 5 2 8
6 2 8 5 7 9 3 4 1
5 3 4 8 1 2 6 9 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er sunnudagur 14. desember,
349. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6,
14.)
Víkverji er einlægt jólabarn ogtrúir staðfastlega á tilvist jóla-
sveinsins þrátt fyrir að vera orðinn
fimmtugur. Hinn jólaglaði Víkverji
er því upp á sitt allra besta þessa
dagana og elskar bæði menn og mál-
leysingja. Jólunum fylgja gjafir og
Víkverji er nú önnum kafinn við að
kaupa jólagjafir handa fjölskyldu og
vinum. Hann gefur bækur þessi jólin
en þar sem Víkverji er ekki handlag-
inn liggur ekki vel fyrir honum að
pakka inn gjöfum svo sómi sé að.
Hann hefur fundið ráð við því. Í
Bókabúð Máls og menningar á
Laugavegi afgreiðir mikið sómafólk
sem pakkar inn bókum og bindur
slaufur af alúð og lagni. Víkverji
kaupir því mikið af bókum í þessari
góðu bókabúð og kveður starfsfólk
með bros á vör eftir að hafa tekið við
vel skreyttum pakka úr hendi þess.
x x x
Önnur bókabúð á skilið hrós enþað er bókabúðin á Bergstaða-
stræti sem selur erlendar fín-
irísbækur sem ekki sést mikið af í
öðrum bókabúðum. Þarna fást veg-
lega myndskreyttar bækur um
myndlist, kvikmyndastjörnur, hönn-
un og tísku. Sannarlega margt sem
hægt er að una sér við að lesa um.
Systurdóttir Víkverja sem hyggst
verða fatahönnuður fær einmitt jóla-
gjöf úr þessari ágætu búð.
x x x
Víkverji sá í fréttum að það hefðikostað um milljón að hreinsa
eggjaslettur og annan sóðaskap af
Alþingishúsinu eftir mótmælendur á
Austurvelli. Þeir sem þarna sóða út
segjast vera að berjast fyrir réttlát-
ara þjóðfélagi. Aðferð þeirra til að
koma boðskap sínum til skila er
kostnaðarsöm og lítt til þess fallin að
afla þeim samúðar. Milljón er
kannski ekkert óskaplega mikill
peningur en það er samt ekki gott að
þurfa að setja fjármuni í að þrífa
sóðaskapinn eftir fólk sem ætti að
kunna að ganga sæmilega um. Enda
bendir sitthvað til þess að samúð
með þessum hópi sóða sé lítil sem
engin í þjóðfélaginu. Sem betur fer,
segir Víkverji nú bara. víkverji@m-
bl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 forljót kona, 4
kasta, 7 þvinga, 8 ótti, 9
renna, 11 lengdareining,
13 bakki á landi, 14 af-
bragð, 15 ómjúk, 17 út-
ungun, 20 málmur, 22
smyrsl, 23 eimyrjan, 24
snáði, 25 flýtirinn.
Lóðrétt | 1 hæfa, 2 ull, 3
mjög, 4 höfuð, 5 núa, 6
ákveð, 10 þor, 12 hvíld,
13 tjara, 15 aðstoð, 16
rödd, 18 girnd, 19 bát-
urinn, 20 náttúra, 21
rekast í.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rysjóttur, 8 lýgur, 9 fóðra, 10 pot, 11 grafa, 13
akrar, 15 klökk, 18 sárna, 21 oft, 22 stutt, 23 askan, 24
hlunnfara.
Lóðrétt: 2 yggla, 3 jarpa, 4 tyfta, 5 Urður, 6 slag, 7
maur, 12 fok, 14 krá, 15 koss, 16 ötull, 17 kotin, 18 starf,
19 ríkur, 20 annt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 0-0 5.
Bg2 c5 6. d5 e6 7. Rc3 exd5 8. cxd5 d6 9.
0-0 He8 10. Bf4 Ra6 11. He1 Bg4 12. h3
Bxf3 13. Bxf3 Dd7 14. Kg2 c4 15. Da4
Dxa4 16. Rxa4 Re4 17. Bxe4 Hxe4 18.
Rc3 Hee8 19. Hac1 Be5 20. Rb5 Bxb2
21. Hxc4 Be5 22. Bg5 Hac8 23. Hec1 Rc5
24. f4 a6 25. fxe5 axb5
Staðan kom upp í opnum flokki á ól-
ympíumótinu í skák sem lauk fyrir
skömmu í Dresden í Þýskalandi. Ar-
menski stórmeistarinn Gabriel Sarg-
issjan (2.642) hafði hvítt gegn hol-
lenskum kollega sínum Daniel
Stellwagen (2.605). 26. Hxc5! dxc5 27.
d6 Hf8 28. Kf3! f6 29. Bxf6 Kf7 30. d7
Hcd8 31. Bxd8 Hxd8 32. Hxc5 Hxd7 33.
Hxb5 Ke6 34. Kf4 Hd4+ 35. e4 Hd7 36.
Hb6+ Ke7 37. h4 og svartur gafst upp.
Sargissjan náði bestum árangri allra
keppenda á ólympíumótinu en frammi-
staða hans samsvaraði 2.869 stigum.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Dýrkeypt yfirsjón.
Norður
♠D2
♥G973
♦ÁD1065
♣Á4
Vestur Austur
♠ÁK97643 ♠G85
♥Á ♥D4
♦K7 ♦G92
♣G82 ♣D9753
Suður
♠10
♥K108652
♦843
♣K106
Suður spilar 5♥.
Eftir snarpa sagnbaráttu í hálit-
unum kaupa N-S samninginn í 5♥ yfir
4♠. Með allar hendur uppi sést að A-V
fara einn niður á 4♠ – gefa tvo slagi á
lauf og tvo á tígul. N-S ættu á sama
hátt að fara einn niður á 5♥ – gefa á
ásana í hálitunum og einn á tígul.
En þegar spilið kom upp tókst suðri
að vinna 5♥. Vestur átti þar nokkra
sök að máli, en hann hóf vörnina með
♠Á-K. Ekki stórsynd að sjá, en nóg til
að gefa sagnhafa færi á fallegri leið.
Suður trompaði ♠K, spilaði tígli og
svínaði drottningunni. Hreinsaði upp
laufið í þremur umferðum og lagði
niður ♦Á. Fór loks í trompið. Vestur
lenti inni á stökum trompásnum og
neyddist til að spila spaða í tvöfalda
eyðu.
Yfirsjón vesturs fólst í því að taka
ekki á ♥Á í öðrum slag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Í núverandi félagslegri aðstöðu
þinni, er verið að neyða þig til að láta
eins og þér sé skemmt. Enginn fylgir
alltof flóknum plönum. Gefðu þeim tíma
til að jafna sig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Treystu á sjálfan þig, varðandi
framtíð þína. Allt sem þú þarft að gera
er að framleiða nógu mikið og vel.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þegar við erum sannfærð í
trúnni getur okkur reynst erfitt að
skilja þá sem ekki deila trú með okkur.
Með slíkum aðgerðum munt þú koma
reglu á hlutina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er freistandi að gefa loforð
núna, en reyndu að standast það og
ekki segja neitt sem gerir þig vand-
ræðalegan seinna meir. Hver veit nema
nýr aðdáandi bíði handan við hornið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Búðu þig undir að þurfa að aðlag-
ast breytingum í kringum þig. Sýndu
þó umburðarlyndi því frekja og hroki
er orðið daglegt brauð allt í kringum
okkur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Forvitni þín er vakin í dag.
Vertu óhrædd/ur, gefðu þér góðan tíma
til að kanna málavöxtu og taktu svo af-
stöðu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ákveddu að hætta einhverju sem
skaðar heilsu þína. Leitaðu að andlegri
rót vandamálanna og notaðu orkuna
þína til að lækna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vinna sporðdrekans virðist
yfirþyrmandi, of margir boltar á lofti í
einu. Taktu þér samt tíma til þess að
íhuga stöðu þína í tilverunni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert hrókur alls fagnaðar
og allir vilja vera nálægt þér. Rótin er
áhugi á ferðalögum og fróðleiksþorsti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það gengur ekki að blanda
saman léttúð frístundarinnar og alvar-
leika starfsins. Að öðrum kosti dregst
þú bara aftur úr og missir svo af lest-
inni á endanum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vatnsberinn getur vel lækn-
að aðra þótt hann sé særður. Sem betur
fer, reynist þér það frekar auðvelt.
Reyndu að fara fram af varkárni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gefðu þér tíma til að aðstoða vini
þína, sem hafa leitað hjálpar hjá þér.
Komdu skipulagi á starf þitt.
Stjörnuspá
Ólafur B. Finn-
bogason verður
níræður í dag, 14.
desember. Þeim
sem vilja gleðjast
með honum og
fjölskyldu hans er
boðið í sal hús-
félagsins að Eið-
ismýri 30, Sel-
tjarnarnesi, frá kl. 15 á afmælis-
daginn og þiggja veitingar.
90 ára
Karel Guð-
mundsson plötu-
og ketilsmiður
er sjötíu og fimm
ára í dag, 14.
desember. Eig-
inkona hans er
Guðrún Krist-
insdóttir frá Dal-
vík og eru þau
búsett í Málmey í Svíþjóð. Karel og
Guðrún eiga þrjú börn og sex
barnabörn. Þau eru stödd í Reykja-
vík á þessum tímamótum og fagna
afmælisdeginum með vinum.
75 ára
Gunnar Guð-
mundsson, fram-
kvæmdastjóri
Guðmundar Jón-
assonar, er sjö-
tugur í dag, 14.
desember. Hann
hefur samhliða
starfi sínu sinnt
ferðamálum öt-
ullega með setu í nefndum og
fleiru. Eiginkona Gunnars er Auður
Sveinsdóttir. Gunnar verður að
heiman á afmælisdaginn.
70 ára
„ÉG gerði samning við móður mína þegar ég var
fimm ára að ég skyldi sameina afmæli og jól,“ segir
Unnar Már Magnússon sem fagnar fertugsafmæli
sínu í dag. „Hún spurði mig upp eftir öllum aldri
hvort ég vildi ekki breyta þessu því það væri svo lít-
ið spennandi fyrir mig að halda upp á afmæli og jól-
in saman en ég samdi við hana um að fá frekar
stærri afmælisgjöf og væri þá ekki haldin nein af-
mælisveisla. Ég samdi af mér afmælið snemma,“
segir Unnar og hlær. Hann segist hafa haldið nokk-
urn veginn í þessa hefð, að halda lítið upp á afmæl-
isdaginn, eftir að hann komst á fullorðinsár en í
staðinn kemur að hann fer árlega með stórum vinahópi á jólahlaðborð.
„Ég lít svo á að það sé bara hluti af minni afmælisveislu.“
Helstu áhugamál Unnars eru mótorsport og Dobermann-hundar.
„Ég held að enginn hafi orðið oftar Íslandsmeistari í kvartmílu á mót-
orhjóli en ég,“ segir Unnar en hann hefur einnig kynnt mótorhjóla-
keppnir á Skjá 1. Þá er hann formaður félagsins Dobermann Ísland en
Unnar fékk það í gegn að Dobermann-hundar voru leyfðir á Íslandi
1993. Nú á hann fimm slíka; Línu, Lísu, Tind, Þulu og Þór, en tveir þeir
síðastnefndu eru í Serbíu að taka þátt í heimsmeistaramóti. ylfa@mbl.is
Unnar Már Magnússon bifvélavirki 40 ára
Samdi ungur af sér afmælið
Kristinn Þór Guðmundsson og
Jónína Gunnarsdóttir eiga fimmtíu
ára hjúskaparafmæli í dag, 14. des-
ember. Kiddi og Jóna ráku Dropann
um 30 ára skeið við Hafnargötu í
Keflavík.
Gullbrúðkaup
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is