Morgunblaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 57
minnir mig. Þarna
gætu líknarfélög og
kirkjan sameinað
krafta sína og um leið
gert fólki kleift að setj-
ast niður í hlýjunni á
meðan það bíður. Ann-
að er ekki mönnum
bjóðandi. Vinsamlega
athugið málið sem fyrst
fyrir jólaösina. Þetta
hlýtur að vera hægt,
nóg er af kirkjunum.
Rafnhildur Björk Ei-
ríksdóttir.
Áreiti
ÉG get ekki orða bund-
ist vegna „Plúsins“ sem
ég skráði mig í fyrir alllöngu , sem
var svo sem allt í lagi, nema nú lang-
aði mig að hætta að fá póst og af-
skráði mig. En daginn eftir fékk ég
póst og daginn þar á eftir o.s.frv. Ég
hafði síðan samband við póstfangið
þeirra og sagðist vilja hætta að fá
póst frá þeim. Svarið sem ég fékk
var: „Þú verður að afskrá þig.“ En ég
er margsinnis búin að afskrá mig en
fæ þó póst á hverjum degi frá þeim.
Kallast þetta ekki áreiti?
Netnotandi.
Hjól í óskilum
TREK-HJÓL fannst í Seljahverfi.
Þetta er
nýlegt, dökkblátt og grátt Trek-
hjól og fannst í nágrenni Seljakirkju í
Breiðholti fyrir um það bil hálfum
mánuði. Eigandi getur fengið upplýs-
ingar um hjólið í síma 557-1169 eða
849-9841.
Kolaportið
ÉG fór í Kolaportið þann 17. nóv-
ember og verslaði fyrir um það bil
20.000 kr., en ég var ekki með á mér
nema 15.000 kr., svo ég ætlaði að
nota visakortið mitt upp í restina. Af-
greiðslukonan tók af kortinu það sem
upp á vantaði og þurfti að fara á bak
við til þess og kvað hún það vera
vegna þess að hún mætti ekki hafa
posa. En þegar ég fór að skoða hvað
hún hafði tekið mikið af kortinu var
það mun meira, eða allt að 53.000 kr.
Ég vil bara vara fólk við, það þarf að
vera vakandi fyrir þessu og passa
peningana sína.
Helena.
Kosningafyr-
irkomulag
ÉG var að velta fyrir
mér kosningafyr-
irkomulaginu hér á Ís-
landi. Mér finnst að það
ætti að breyta því og að
hægt verði að kjósa ein-
staklinga í stað flokka.
Mér finnst flokkarnir
ráða alltof miklu um
stólana og mér finnst
að auglýsa ætti emb-
ættin og að tilheyrandi
menntunar ætti að
krefjast fyrir þá stöðu
sem sótt er um. Þegar
flokkarnir verða svona
stórir ráða þeir of miklu.
Sigrún.
Auglýsingar í sjónvarpi
ÉG vil byrja á að taka fram, að ég hef
engra hagsmuna að gæta í sambandi
við auglýsingar. Ég geri lítið af því að
lesa auglýsingar og hefi ekkert til að
auglýsa. Í sambandi við bann fyrir
Ríkissjónvarpið að birta auglýsingar,
þá finnst mér einkennilegt að ekkert
heyrist frá verslunum og framleið-
endum, sem þurfa væntanlega að
koma sínum erindum á framfæri við
alla þjóðina. Kannski koma þeim
rúmlega helmingi þjóðarinnar, sem
ekki er með áskrift að áskrift-
arsjónvarpi, ekkert við þær vörur
eða þjónusta sem í boði er. Mér
finnst að Ríkissjónvarpið eigi að fá að
birta auglýsingar eins og aðrir, að því
tilskildu að auglýsingagjald sé það
sama.
Áskrifandi Morgunblaðsins.
Kirkjur til matarúthlutunar
KONA ein sem er öryrki talaði við
mig í gær. Fjárhagur hennar og
heilsa er hvorttveggja bágborið, eins
og hjá mörgum í hennar aðstöðu.
Hún sagðist hafa hug á að þiggja
matvörur ofl. hjá líknarfélögum, það
hefur oft verið hennar bjargráð í
veikindunum og er hún þakklát fyrir
það. En til þess að geta fengið út-
hlutun, segir hún að fólk þurfi að
standa í biðröð, stundum í kulda,
jafnvel úti. En hún hefur ekki heilsu
til þess. Mín spurning er: Væri ekki
hægt að nýta kirkjur og safn-
aðarheimili sem úthlutunarstaði?
Væru það ekki einmitt réttu staðirnir
til að sýna náungakærleika í verki?
Eða „er ekkert pláss fyrir þau í gisti-
húsinu?“ Það hefur komið fyrir áður,
Velvakandi 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
HVAÐ VAR ÞAÐ
SEM LAÐAÐI ÞIG
FYRST AÐ JÓNÍNU?
BROSIÐ
HENNAR
Ó! ER
ÞAÐ?
AUÐVITAÐ VISSI
ÉG EKKI ÞÁ HVAÐ HÚN
BROSIR SJALDAN
DÝR! DÝR! DÝR! AF
HVERJU MÁLAR ÞÚ
EKKI FALLEGAN
BLÓMAVASA TIL
TILBREYTINGAR?!?
AFSAKIÐ,
EFRI
HÆÐIN
ER FULL
„Æ, NEI... ENN EIN MYNDASAGAN
UM TVO MENN FASTA Á EYÐIEYJU“
ÉG TRÚI ÞVÍ
EKKI! VIÐ UNNUM
ÁRSBIRGÐIR AF
ÍSMOLUM!
ÞANNIG AÐ ÞÚ HELDUR
AÐ ÞÚ SÉRT HUNDUR?
VILTU EKKI LEGGJAST
OG SEGJA MÉR
AÐEINS FRÁ ÞVÍ?
NEI, ÉG MÁ
EKKI LIGGJA
Í SÓFANUM
NÆST ÆTTUM VIÐ
KANNSKI AÐ FINNA
VEITINGASTAÐ ÞAR SEM
ER ÖRLÍTIÐ MEIRA PLÁSS
DAGARNIR eru stuttir og jólin nálgast óðfluga, því eru jólainnkaupin í
fullum gangi og opið í búðum fram eftir kvöldi svo að flestir ættu að geta
verslað fyrir jólinn.
Morgunblaðið/Ómar
Jólaverslun í Smáranum
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Mánudaginn 22 .
des. kl.14 verður jólatrésskemmtun.
Jólasveinar koma í heimsókn. Heitt
súkkulaði og kökur. Frítt fyrir börn
yngri en sextán ára. Skráning fyrir 18
des. í s. 535-2760.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó
leikur, síðasti dansleikur fyrir jól.
Skrifstofa félagsins opin virka daga
frá kl. 10-16.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9-16.30 vinnustofur opnar,
spilasalur o.fl. Mánud. 15. des. kl. 14
les Auður Jónsd. úr bók sinni ,,Vetr-
arsól“. Þriðjud. 16. des. er Stefán Sig-
urkarlsson, lyfjafræðingur og lífs-
kúnstner, gestur í Pottakaffi í
Breiðholtslaug og les úr óútkominni
bók sinni ,,Bréf frá Hólmanesi“.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist mánudag kl. 13, stund í
kirkjunni miðvikudag kl. 11, súpa í há-
deginu, brids kl. 13, bridsaðstoð fyrir
dömur föstudag kl. 13.
Hraunbær 105 | Jólasala í Hraunbæ
105. Þann 15. des kl. 12.30-15.30,
jólaskreytingar, hýasintuskreytingar
og skreyttar leiðisgreinar.
Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá Eg-
ilshöll á morgun kl. 10.
Vesturgata 7 | Aðventuferð í ljósabæ-
inn Reykjanesbæ þriðjudaginn 16. nóv.
kl. 13.45. Farið verður í Lista- og
menningarmiðstöð Duushúsa með
kertaverksmiðjuna Jöklaljós og gler-
blástursverkstæði Guðlaugar og báta-
safn Gríms. Heimsókn að Nesvöllum.
Boðið er upp á kakó og meðlæti.
Uppl. og skráning í s. 535-2740.