Morgunblaðið - 14.12.2008, Qupperneq 58
1996
Þetta eru algjörsnilldartilþrif hjá
Emilíönu. Textarnir hjá
henni eru skondnir,
áhugaverðir og gagnorðir,”
sagði Kylie Minogue
sjálf í samtali við
Morgunblaðið á sínum
tíma, en að sjálfsögðu var
hún sérstaklega innt eftir
þessu farsæla samstarfi hennar og Emilíönu. Okkar manneskja var
þó að vanda niðri á jörðinni með þetta allt saman: „Við sömdum
lagið á hálftíma og fórum síðan á pöbbinn.”
Emilíana hitti landanní hjartastað með
Fishermans Woman og
seldist þessi þekkilega
plata í bílförmum. Platan er
hægstreym og angurvær, í
nokkru mótvægi við Love in
the Time of Science, eins
og reyndar var lagt upp með.
Margir voru orðnir nokkuð
hugsi yfir þessari næstu plötu
Emilíönu, sem aldrei virtist
ætla að koma. Góðir hlutir gerast hægt greinilega...
Þegar er farið að tala um Me & Armini sem eina af plötumársins. Hana vann Emilíana með Dan Carey, en samstarf þeirra
er að sönnu gullvægt og í sameiningu
þræða þau „listavel einstigi á milli
aðgengilegs popps, sem borið er uppi
af rödd Emilíönu, og nokkru dekkri,
listrænni pælinga,” eins og sagði í
nýlegri Lesbókargrein. Platan er gefin út
af hinu breska Rough Trade og þegar
yfirmaðurinn þar, hinn goðsagnaken-
ndi Geoff Travis ýtti kurteislega við
Emilíönu með að klára plötuna var hún
löngu búin með hana. Hún gleymdi bara að segja honum frá því...
654
Það er óhætt að segja að Emilíana hafi byrjað á botninum. ÁMúsíktilraunum 1993 keppti hún til úrslita með rokksveitinni
Tjalz Gissur og var reyndar kynnt í blaði þessu sem Emilíana Toriano.
Allt gekk á afturfótunum hjá
sveitinni í undanúrslitunum
en sveitin var til muna
öruggari á úrslitakvöldinu. Í
umsögn um frammistöðuna
sagði: „Meðal annars
gripu þeir til þess að láta
söngkonu sveitarinnar ekki
syngja nema eitt lag, sem var reyndar í meira lagi þunnt, en ekki verður
fundið að öðru hjá Tjalz Gissur.” Emilíana var rekin í kjölfarið.
Emilíana fann betur fjölina með Spoonog lyfti þeirri sveit óneitanlega talsvert
upp með engilblíðum söng sínum. Tvö lög
sem hún söng, „Taboo” og „Tomorrow”
urðu vinsæl, einkum hið síðarnefnda og þau
heyrast reyndar enn annað slagið á öldum
ljósvakans. Platan mokseldist þar að auki. Í
gagnrýni um plötuna var innleggi Emiliönu
hrósað, en það harmað að hún syngi ekki
meira. „Á meðan liðsmenn Spoon átta sig
ekki á þeim einfalda sannleik, verður ekki
mikið úr sveitinni annað en þessi breiðskífa.”
Sem varð raunin.
Hjarta landans tók óneitanlega kipp þegarfréttist að Emilíana ætti að syngja aðallagið
í Turnunum tveimur,
öðrum hluta Hringa-
dróttinssögu, en fyrsta
myndin hafði slegið ræki-
lega í gegn á heimsvísu.
Björk átti upprunalega að
sjá um verkið en varð að
bakka út sökum þess að hún var ófrísk. „Það var mjög
mikil óvissa um hvort ég gæti gert þetta því ég er
alveg óþekkt,” sagði Emilíana hæversklega í samtali
við Morgunblaðið á sínum tíma.
1 3
G
ra
fí
k:
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
El
ín
Es
th
er
Goðsögn
Ofurstjarna
Stjarna
Fræg
Þekkt
Efnileg
Óþekkt
Gengisvísitala
Emilíönu Torrini
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 20071994 19951993 2008
Rokkuð og biksvört Emilíana tekur
þátt í Músíktilraunum með Kópa-
vogssveitinni Tjalz Gissur.
1
Emilíana sigrar í söngkeppni
framhaldsskólanna með
laginu „I Will Survive“.
Sama ár kemur út samnefnd
plata Spoon, þar sem hún
syngur nokkur lög.
2
Fyrsta sólóplata Emilíönu,
tökulagaplatan Crouçie
D’où Là kemur út og
selst vel. Jón Ólafsson
upptökustýrir. Efnisvalið
er býsna smekklegt; en
höfundar á borð við Van
Morrison, Pizzicato
Five, Memphis Minnie
og Aretha Franklin eiga
þar lög.
Höggvið er í sama
knérunn með plötunni
Merman. Hún selst enn
betur en síðasta plata og
Emilíana er orðin fræg
og umtöluð. Sama ár
sýnir Emilíana að það er
dýpra á henni en margur
heldur og leggur til rödd
á plötu jaðarrokkaranna
í Slowblow. Næstu
ár er hún iðin við að
leggja til rödd í hin ýmsu
verkefni.
Emilíana tekur þátt
í fyrstu plötu gus
gus hópsins.
Emilíana flytur
út til Brighton og
hefur stýrt sínum
ferli þaðan síðan.
Love in the Time of Science
kemur út. Innihaldið fágað, drama-
tískt popp og er hún m.a. unnin
með Roland Orzabal, Tears for
Fears meðlimi. Platan kemur út á
alþjóðavettvangi ári síðar og er lífi
haldið í henni lengi, en heilar fimm
smáskífur koma út af plötunni.
Emilíana hitar upp fyrir
Sting í Royal Albert Hall
og er valin söngkona
ársins á Íslensku tón-
listarverðlaununum.
Markviss vinna við að
kynna Emilíönu á erlendri
grundu er í fullum gangi.
Henni er boðin söngvara-
staða í heitri nýbylgjusveit,
Sneaker Pimps, en
hafnar boðinu.
Emilíana fer í ferðalag
um Bandaríkin ásamt
stórstjörnunum Dido
og Travis og síðar
Tricky. Vinna við
plötuna Fisherman’s
Woman hefst.
Emilíana semur lag fyrir Kylie
Minouge, „Slow“, ásamt
samstarfsmanni sínum Dan
Carey. Lagið er fyrsta smá-
skífan af plötu Minouge, Body
Language. Laginu farnast
vel og fer á toppinn í nokkrum
löndum.
4
Emilíana vinnur lag
með hinum heims-
þekkta plötusnúð
Paul Oakenfold og
viðurkennir í viðtali,
kæruleysislega kúl,
að hún hafi aldrei
heyrt tón með honum.
Sama ár syngur hún
„Gollum’s Song“
titillagið í öðrum hluta
Hringadróttinssögu
Peter Jackson.
3
Emilíana er tilnefnd
til hinna virtu Ivor
Novello-verðlauna
vegna „Slow“. Hins
vegar vinnur hún
Grammyverðlaunin
fyrir lagið sem sópaði
auk þess að sér
hinum og þessum
verðlaunum öðrum.
Hin langþráða Fisherman’s
Woman kemur út í upphafi árs
og slær í gegn hérlendis og selst
gríðarlega vel. Emilíana tekur
að nálgast það sem mætti kalla
heimsfrægð og er mærð mjög
af erlendum ritum. Hún er orðin
eftirsótt, tónleikar hennar vekja
athygli og þetta árið er hún er
fengin í dómnefnd kvikmynda-
hátíðarinnar í Feneyjum.
5
Platan Me & Armini
kemur út og er lofuð
í hástert, af lærðum
sem leikum, jaðar-
rottum sem popp-
músum. Emilíönu
virðist með öllu
ómögulegt að stíga
feilspor eins og graf
þetta undirstrikar.
6
Rólegt ár hjá
Emilíönu sem vinnur
í hægðinni að Me
and Armini. Hún
heiðrar hins vegar
heimabæinn sinn,
Kópavog, um vorið
með tónleikum
og treður upp
með Skólakór
Kársness.
Emilíana spilar í Bræðslunni,
Borgarfirði eystra, ásamt skosku
nýbylgjupoppsveitinni Belle &
Sebastian. Fisherman’s Woman
er þaulsætin á vinsældalistanum hér
á landi og selst stöðugt og vel út árið.
5000
eintök
6000
eintök
12.000
eintök
200.000
eintök
150.000
eintök
100.000
eintök*
2
*Ath. Me & Armini er sem stendur í bullandi sölu og þessi tala á því eftir að hækka. Af grafi mætti álykta að sala á plötum Emilíönu sé
dalandi en sú mynd er villandi. Tölurnar eru uppsafnaðar og þannig hefur Love... platan mjakast út jafnt og þétt allt frá því að hún kom út.
Emilíana Torrini er mikið í umræðunni nú um stundir enda nýbúin að senda frá sér plötuna Me & Armani sem er líkast til það
besta sem hún hefur gert á sínum söngferli – hingað til þ.e.a.s. Ferill hennar er þannig ein samfelld sigurganga, ekkert hefur verið
um flopp, misstig eða vitleysisgang. Jafnt og þétt, í nokkurs konar rólegheitagír, hafa vinsældir og virðing henni til handa hins vegar
aukist í gegnum árin. Emilíana er ekki ein af þeim sem eru stöðugt í gulu pressunni eða uppi á rauðum dreglum en í þau skipti sem
hún stígur fram er rækilega eftir því tekið. Sjálf sinnir hún svo sinni sköpun með hægð og situr stóísk í auga stormsins. Þessi vel
þokkaða díva var því algerlega „dýfu“-laus þegar kom að því að rissa upp hjálagða gengisvísitölu!