Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 60

Morgunblaðið - 14.12.2008, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2008 Eitt af því sem netið hefurkomið til leiðar er aðhljómsveitir skjótastupp á toppinn af meiri hraða en nokkru sinni, í einu vet- fangi er hljómsveit komin á allra varir, inn á allar bloggsíður og í öll deiliforrit. Að sama skapi hverfa sveitir hraðar en nokkru sinni; sumar svo ört að setja má spurn- ingarmerki við það hversu þekktar þær urðu í raun. Hljómsveitarkíf Bandaríska rokksveitin Deer- hunter vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir tvær plötur; breiðskífuna Cryptograms, sem kom út í janúar, og EP-plötuna Fluorescent Grey, sem gefin var út í maí. Segja má að allt hafi hjálpast að, sérlundaður söngvari sem var að auki haldinn hættulegum sjúkdómi og grípandi tónlist sem sór sig í ætt við hljóm- sveitir fyrri tíma, sveitir eins og My Bloody Valentine, The Jesus and Mary Chain og Stereolab. Ýmislegt getur gengið á í ævi einnar hljómsveitar og Deerhunter fékk ríkulegan skammt af slíku. Fyrir það fyrsta þá er það sjúk- dómur sá sem hrjáir söngvara sveitarinnar og höfuðpaur, Brad- ford Cox, Marfan-heilkennið, og kynhneigð hans (hann segist nú ókynhneigður), andlát eins stofn- anda hennar í hjólabrettaslysi og svo hamagangur mannabreytinga og misvísandi yfirlýsingar í kjölfar þess að sveitin sló í gegn. Hvað sem því öllu líður vöktu skífurnar tvær, Cryptograms og Fluorescent Grey, mikla hrifningu og það að verðleikum. Mikið undir Í ljósi látanna á síðasta ári þegar einn höfuðás sveitarinnar hætti og hætti svo ekki áður en hann hætti alveg, eða var kannski rekinn, og stirðra samskipta Cox við fjölmiðla var ljóst að það væri mikið undir við næstu plötu. Ný breiðskífa Deerhunter heitir Microcastle og kom út á diski fyrir stuttu. Platan var reyndar tilbúin í apríl sl. og kynnt á tónleikum í þeim mánuði. Hún hefur reyndar verið á ferð um netið að segja allt árið, maður rakst fyrst á hana á bloggsíðum í maí, en eiginleg út- gáfa var fyrst í stafrænu formi í ágúst sl. Loks þegar hún kom svo út á disk var búið að skeyta við aukadiski með þrettán lögum til viðbótar. Sá diskur er nokkuð frá- brugðinn Microcastle, tilrauna- kenndari og ómstríðari, og heitir líka sérstöku nafni innan sam- steypunnar: Weird Era Cont. Tvöfaldur skammtur Weird Era Cont. er ekki síðri plata en Microcastle, og magnað að hljómsveit skuli hafa náð að senda frá sér svo mikið af góðri tónlist á einu ári, að ekki sé talað um þegar henni tekst svo vel að búa til sjálf- stæðar plötur, tvennu en ekki eina óvenju langa skífu. Það er reyndar eitt lag á báðum plötunum, „Cal- vary Scars“; ósköp meinlaust og þægilegt á fyrri plötunni (Micro- castle) en fær öllu beittari af- greiðslu á þeirri seinni og er að auki mun lengra þar. Skýringin á tilurð Weird Era Cont. er reyndar nokkuð sérstök; þegar Microcastle fór á netið ákvað sveitin að skella sér í hljóðver að taka upp aðra plötu til þess að vera ekki að selja gamla músík þegar platan kæmi loks út. Mögnuð samsuða Áður er getið nokkurra sveita sem Deerhunter vísar í, og reyndar ekki feimin við það, en í ljósi Microcastle og fylgidisks hennar er óhætt að bæta við áhrifum frá David Bowie, Pavement og Bítl- unum. Semsagt: Mögnuð samsuða og óhemju fjölbreytt. Þeir örfáu sem ekki hafa fallið fyrir disknum hafa einmitt sett fyrir sig fjöl- breytnina og kallað sundurleysi en alla jafna má lesa út úr slíku að menn hafa einfaldlega ekki hlustað nóg. Í því sambandi má nefna til gamans að í viðtali fyrir stuttu lýsti Cox því að sveitarmenn hefðu einmitt lagt hart að sér til að tryggja að platan væri sem heil- steyptust. Tvöfaldur skammtur, magnaður Mögnuð Bandaríska rokksveitin Deerhunter á eina af bestu skífum ársins. Bandaríska rokksveitin Deerhunter átti eina af bestu plötum síðasta árs. Hún bætir um betur á þessu ári, því ný skífa hennar, Microcastle, er ekki plata einsömul eins og upphaflega stóð til. Árni Matthíasson TÓNLIST Á SUNNUDEGI • Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum sem vilja skoða sameiningar með hagræðingu í huga. • Heildverslunin Tinna óskar eftir meðeiganda-samstarfsmanni. Tinna selur prjónagarn og skyldar vörur í yfir 50 verslanir um land allt. Mjög góður rekstur í miklum vexti. Skuldlaust fyrirtæki. • Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg. Ársvelta 320 mkr. EBITDA 48 mkr. • Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. • Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90 mkr. Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta. • Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 mkr. Góður hagnaður. Auðveld kaup fyrir duglegt fólk. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 620 mkr. Skuldsett með hagstæðu erlendu láni. • Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með rekstrarvörur. Ársvelta 180 mkr. EBITDA 40 mkr. Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 Netfang: kontakt@kontakt.is • www.kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson, lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is UU EFTIR GEORG FRIEDRICH HÄNDEL Hátíðartónleikar á 250 ára ártíð G.F. Händel Fyrsti flutningur með barokkhljómsveit á Íslandi Flytjendur: Schola cantorum Alþjóðlega Barokksveitin í Den Haag Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran Andrew Radley kontratenór Gissur Páll Gissurarson tenór Alex Ashworth bassi STJÓRNANDI: HÖRÐUR ÁSKELSSON Nýársdagur 1. janúar 2009 kl. 17 Laugardagur 3. janúar 2009 kl. 17 Miðaverð kr. 4.900Gjaf akort Miðasala í Hallgrímskirkju, s. 510 1000, Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, s. 528 4200 og á list@hallgrimskirkja.is • listvinafelag.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.