Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Síða 24
TILLAGA UM STOFNUN
„TANNVERNDARFÉLAGS
ÍSLANDS“
1 hinum svokölluðu menningarþjóðfélögum mun eng-
inn sjúkdómur útbreiddari eða almennari en tannmein
og tannáta, og er því ekki að neita, að í þessum efnum
er ástandið enn verra í liáþróuðu þjóðfélagi okkar, en í
flestum öðrum menningarlöndum heims. T.d. er hér önn-
ur hver manneskja yfir 18 ára með falskar tennur, og er
það án efa heimsmet! Hér þarf þess vegna á almennings-
átaki að halda!
Munn og tannsjúkdómar eru að vísu ekki jafn alvar-
legir og ýmsir aðrir sjúkdómar, en þeir hafa þó mun
skaðlegri áhrif, b;eði líkamlega og' andlega, en flestir gera
sér grein fyrir.
Þannig er hægt að benda á, að melting fæðunnar hefst
í raun og veru í munninum, og hafa lélegar tennur eða
tannleysi því neikvæð áhrif á allt hið almenna heilsufar.
Heilar og fallegar tennur auka sjálfsöryggi manna og
líkamlega og' andlega vellíðan í sama mæli og ljótar
tennur liafa í för með sér vanlíðan og minnimáttarkennd.
Er því fyllilega tímabært, að stofnað verði tannvernd-
arlelag, sem hefði það að markmiði að aðstoða tannlækna
eftir megni i baráttunni á móti þessum þjóðfélagsvágesti,
sem munn- og tannsjúkdómar eru orðnir hér.
Á öllum hinum Norðurlöndunum hafa tannverndarfé-
lög verið starfandi fleiri tugi ára t.d. í Noregi frá 1911,
með ágætum árangri.
Tilgangurinn með þessu bréfi er að kanna, livort nægi-
legur áhugi er fyrir liendi til þess að hægt sé að stofna
slíkan lelagsskap hér líka.
22