Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Page 39
og „mesial“ og „distal“ fletir jaxla efri góms vandlega
kannaðir. Þá eru „mesial“ fletir á 4+4 áhugaverðir, þar
sem „prognosa“ þessara tanna er yfirleitt slæm, þegar um
djúpstæða tannslíðurbólgu er að ræða.
Oft á tíðum er „rótarkomplex“ hinna sýktu jaxla hulið
tannholdi, enda þótt „marginalt“ bein sé staðsett „apicalt“
við rótarsökkul. Kliniskt útlit svæðisins ber þá oft í
fljótu bragði fá einkenni liins „periodontala“ sjúkdóms.
Þéttleiki „gingiva“ og útlit virðist næsta eðlilegt,
en við rannsókn verður allt aimað uppi á teningn-
um. Það er reynsla flestra peridontista, að þessi sjúk-
dómsmynd sé mun varhugaverðari en hin, því að samfara
henni eru beinpokar tíðum dýpri og batahorfur að sama
skapi verri, enda þótt færri sýktar tennur kunni að finn-
ast í tannsettinu. Það ber því að kanna tannholds-
festu allra jaxla nákvæmlega áður en viðgerð þeirra
fer fram, enda þótt röntgenmynd kunni að vera negativ
og útlit stoðvefs eðlilegt að sjá.
ÆSKUMAÐUR SEM ÖLDUNGUR HAFA „SULCUS-
BOTNINN“ STAÐSETTAN VIÐ SAIMSKEYTI KRÓNU
OG RÓTAR, HAFI TANNHOLD ÞEIRRA HALDIZT
HEILBRIGT. „Sulcusbotninn“ flyzt ekki til vegna hækk-
andi aldurs. „Collagen fibrur“ eyðast ekki við það, að
organisminn eldist (Ham Histology, 1965, 221:1041). Það
losnar ekki um þær vegna „fysiologiskrar“ hnignunar eða
breytinga i tannskorpunni með hækkandi aldri. Bólgur
(gingivitis simplex, periodontitis marg. chron.) í stoð-
vef tannanna eru andsvar líkamans við staðbundnu áreiti,
sem birtist í formi bacteria.
FLOKKUN
Tannklofsbólgu má flokka niður eftir því, hversu mikil
eyðing hefir átt sér stað i tannklofsbeininu. Flokkunin er
því gerð með væntanlega meðferð í huga:
Fyrsta stigs tannklofsbólga (Incipient) kallast bólgan,
37