Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Page 42

Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1971, Page 42
teygir sig inn á milli rótanna. Ennfremur ræður sköpu- lag rótanna miklu um meðferðina. Reynt er að eyða pokanum með því að hefla til beinið og stuðla að mynd- un svokallaðrar „interradikulær papilla“, þ. e. tannholdið vex inn á milli rótanna og fyllir upp bilið. Meðferð þessi ber ekki árangur, þegar pokinn nær inn á milli rótanna, sem svarar hálfri þykkt tannklofsbeinsins eða meira. Þá er um tvennt að velja: fjarlægja leifarnar af beininu eða draga tönnina. Þær aðgerðir, sem að auki eru tiltækar við annars stigs tannklofsbólgu, eru: gingivectomi, muco-gingival-plastic, sulcusplastic, osteoplastic, osteo- ectomi, odontoplastic. Þriðja stigs tannklofsbólga. Meðferð er fólgin í: 1. kirurgiskri opnun, 2. odontotomi eða hemisection, 3. tanndrætti. Kirurgisk opnun. Aðgerð þessi er ómetanleg, þegar að- stæður allar eru henni meðmæltar, en hún krefst mikillar nákvænmi, tæknilega séð, er tímafrek (kostnaðarsöm), bæði sjálf aðgerðin og eins eftirmeðferð (4—5 vikur). Anatomisk forsenda fyrir aðgerðinni er, að rætur standi gleitt. Hún er vel framkvæmanleg á 6—6 og í einstaka tilfellum á 7—7. Miklar kröfur verður að gera til sjúkl- ingsins um reglubundna og ítarlega hreinsun. Hætta á tannholdsbólgu eftir kirurgiska opnun margróta jaxla er ekki meiri en gengur og gerist, þegar um einróta tennur er að ræða. öllu fremur myndast tannáta í „subpulpala“ veggnum, en þar finnast oft „dentincementlistar“ (Eve- rett et al: 76% af rannsökuðum 6+6), sem hindra full- komna hreinsun. Á efri góms jöxlum getur opnun farið fram milli allra þriggja rótanna, en það er skilyrði að viðkomandi tönn standi aftast í röðinni, þar sem ekki verður komið við 40

x

Árbók Tannlæknafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tannlæknafélags Íslands
https://timarit.is/publication/739

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.